Smit berst á milli fólks - punktur.

Ísland er eyja, ţótt komiđ sé í tísku ađ tala um landamćri á Miđnesheiđi. Ef ekkert smit er í landinu ţá er ađeins einn möguleiki, - ađ smit komi međ ferđamönnum, íslenskum eđa erlendum.

Nú er í sjálfu sér ekkert stórmál hvers lenskur smitberinn sé, heldur hitt ađ hann er ferđamađur.

Ţrátt fyrir tvöfalda skimum á ferđamönnum er alltaf hćtt viđ ađ smit berist inn i landiđ.

En viđ getum gert okkur vonir um ađ yfirstandandi ţriđja bylgja farsóttar hjađni innan fárra daga. Einmitt af ţví viđ búum á eyju og stundum sóttvarnir.


mbl.is Ósanngjarnt ađ skella skuldinni á Frakkana
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Lög, siđir og pólitík

Deilur um hver skuli taka autt sćti hćstaréttardómara í Bandaríkjunum sýna náiđ samband laga, lagatúlkunar og stjórnmála.

Lög eru í grunninn siđabođ, mćla fyrir um hvađ má, hvađ ekki og viđurlög viđ brotum. Ein elstu. Ein elstu ţekktu lögin, kennd viđ Hamúrabí og eru meitluđ í stein tćplega 2000 árum fyrir Krist, lögbjóđa siđi í viđskiptum, einkalífi og félagslegu samneyti. Lagatöflur Rómverja voru upphaflega siđabođ rómverska lýđveldisins en urđu alţjóđaréttur eftir ţví sem Rómarveldi óx. Á alţingi áriđ ţúsund sagđi Ţorgeir Ţorkelsson ađ viđ yrđum hafa einn siđ og ein lög.

Ćđsti dómstóll fer međ endanlegt vald í túlkun á gildandi siđum í umdćmi dómstólsins. Í Bandaríkjunum eru tveir hópar, líkt og í Róm á mörkum lýđveldis og keisaratíma, sem berjast hatrammri baráttu um hvert skuli vera ríkjandi siđalögmál: frjálslyndir og íhaldsmenn.

Í Trump sameinast tvö rómversk stórmenni, Júlíus Sesar og Ciceró, sem hvor var í sínum hópnum. Vondu fréttirnar fyrir Trump eru ađ Sesar og Ciceró féllu báđir fyrir morđingjahendi.

 

 


mbl.is Trump tilnefni Barrett í sćti Ginsburg
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 26. september 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband