Ráðherrar ofar lögum? Spilling, já takk.

Ef ráðherrum finnst eitthvað annað en lög mæla fyrir, hvort á að gilda skoðun ráðherra eða lögin?

Svarið er einboðið. Ráðherra á að fara að lögum. Annars misnotar hann vald sitt.

Samt sem áður eru settar fram kröfur að ráðherrar misnoti vald sitt í þágu meints góðs málefnis.

Meint góð málefni réttlæta ekki lögbrot.

Ákallið um lögbrot ráðherra kemur helst frá þeim sem tryllast fyrst og stökkva á fordæmingarvagninn þegar minnsti grunur vaknar um afbrot ráðherra í starfi.

Spilling þrífst helst þar sem lögin víkja fyrir geðþótta.


mbl.is Senda fjölskylduna í COVID-19-skimun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hópreiði, Jón Steinar og Björn Leví

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar um hóphyggju í Mogga dagsins. Einkenni hóphyggju er að einstaklingar móta sér skoðanir til að þóknast hópnum er þeir vilja tilheyra.

Skoðanir verða í auknum mæli til á samfélagsmiðlum, oft í samstarfi við fjölmiðla, og fara eins og logi yfir akur. Áður en nokkur veit af blasir við sviðin jörð rétttrúnaðar hóphugsunar þar sem málefni og staðreyndir liggja eins og hráviði út um allt.

Björn Leví þingmaður Pírata útskýrir í leiðaraopnu sama Mogga hvernig á að hrinda úr vör bylgju hóphugsunar. Aðferðina kallar þingmaðurinn ,,réttláta reiði." Hún byggir á öfund og útúrsnúningum, að telja fólki trú um að það hafi það skítt af því aðrir sitji yfir hlut þess. Ásakanir um spillingu krydda reiðina og gera hana réttláta.

Afleiðingin verður hópreiði er skilar sumum auknum þingstyrk en veldur annars leiðindum í samfélaginu.


Bloggfærslur 14. september 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband