RÚV afhausar lögreglustjóra

RÚV vill höfuđ lögreglustjórans á Suđurnesjum á silfurfati. Međ dćmigerđri hýenufréttamennsku í nokkra daga grefur RÚV skipulega undan lögreglustjóranum međ ásökunum, mest frá ónafngreindum heimildum.

Gott og grandvart fólk verđur fyrir barđinu á hýenum Efstaleitis sem taka eina fjöđur og gera úr matarmiklar fimm hćnur. Einu málefnalegu rök RÚV er ađ lögreglustjórinn hafi ekki geymt skjöl á réttum stađ. Ţá er dćmigerđu vinnustađaslúđri gert hátt undir höfđi og látiđ eins og óljósar kvartanir séu sakfelling um brot í starfi.

Í kvöldfréttum RÚV í gćr átti ađ gefa lögreglustjóranum náđarhöggiđ. Í beinni útsendingu upplýsti fréttamađur ađ dómsmálaráđherra hefđi beđiđ lögreglustjórann ađ segja af sér ,,óformlega". Eins og opinber embćttismađur geti sagt af sér ,,óformlega".

Fréttapunkturinn er aftur sá ađ ef ráđherra biđur embćttismann ađ segja af sér ţýđir ţađ í raun ađ engin málefnaleg rök standa til ađ knýja fram afsögn.

Opin spurning er hvort RÚV stundi hýenufréttamennsku í verktöku eđa ađ ţađ sé liđur í valdeflingu Efstaleitis ađ afhausa saklausa mann og annan er stendur vel til höggs - til ađ sýna hvar valdiđ liggur. RÚV lifir sníkjulífi á skattpeningum almennings og stjórnmálamenn skulu gjöra svo vel ađ opna budduna. Ađ öđrum kosti er hýenum sleppt lausum.

Í lok samtals ţulu og fréttamanns í beinni útsendingu í gćr brá RÚV á gamalkunnugt ráđ - ađ hóta. Áslaug Arna dómsmálaráđherra vill ekkert viđ okkur tala, sagđi fréttamađurinn og gaf ţar međ til kynna ađ ráđherra vćri međ slćma samvisku og á flótta.

Hýenurnar á Efstaleiti kunna til verka. Ráđherra sýndur á flótta er stjórnmálamađur á leiđ úr pólitík.


mbl.is Vćrur innan lögreglunnar á Suđurnesjum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 24. júlí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband