Fimmtudagur, 11. júní 2020
Vinstrimenn: 3 tilraunir til að brjálast
Ekki-ráðning Þorvaldar Gylfasonar var sumartilraun vinstrimanna að brjálast. Brandari í afmælisveislu var í boði Semu Erlu Serdar tilraun til að tryllast. Leiðtogi sósíalista, Gunnar Smári, vill ekki láta sitt eftir liggja og býður styttu Ingólfs Arnarsonar sem tilefni til að ganga af göflunum.
Má ekki gera ráð fyrir málþingi í Háskólanum, upplestri í Borgarleikhúsinu og mótmælafundi á Arnarhvoli?
Svona þegar vinstrimenn eru búnir að ákveða hvað tryllir þá mest sumarið 2020.
Þorvaldur eigi tæplega samleið með ráðuneyti Bjarna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 11. júní 2020
Farsóttin felldi lífskjörin
Aðeins verkalýðsrekandi skilur ekki að farsóttin felldi lífskjörin. Atvinnustarfsemi býr til lífskjör, eins og þau eru mæld í krónum og aurum. Samdráttur í atvinnustarfsemi þýðir síðri lífskjör.
Hvernig getur það verið flókið?
Verkalýðsrekendur halda að peningar vaxi á trjánum eða komi með félagsgjöldum óháð efnahagslegum veruleika.
Samningurinn að óbreyttu fallinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)