Skammvinn kreppa

Líkur eru á að farsóttarkreppan verði skammvinn. Frá miðjum júní byrja ferðamenn að koma til landsins. Eyðsluglaði landinn keyrði upp hagkerfið með kaupum á vöru og þjónustu í maí.

Kálið er þó ekki sopið þó að í ausuna sé komið. Seinni bylgja farsóttarinnar gæti skollið á síðsumars.

En þangað til er allt í lagi að vera bjartsýnn. Og nota júní til ferðalaga innanlands, áður en þeir erlendu yfirtaka landið og miðin.


mbl.is Vilja opna á flugferðir til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar kvarði á andlega heilsu þjóðarinnar

Aukið fylgi Pírata er til marks um eftirspurn eftir óreiðu og upplausn. Hluti þjóðarsálarinnar er vanstilltur að upplagi og finnur sér farveg í píratisma.

Stærri hluti er hliðhollur stöðugleika og kýs Sjálfstæðisflokkinn. 

Á milli Sjálfstæðisflokks og Pírata eru flokkar misvel stilltir. 

Þekkt er að árstíðarskipti valda auknu álagi á geðheilsu þeirra sem eru tæpir. Vorkönnun sem gefur Pírötum aukið fylgi kemur ekki á óvart.


mbl.is Píratar mælast næststærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. maí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband