Sunnudagur, 24. maí 2020
Samfylking: arður og ríkisaðstoð, já takk
Samfylkingin er hlynnt niðurgreiðslu ríkisins á arðgreiðslum til fyrirtækja. Helga Vala segir um sprotafyrirtæki:
Eigandinn þarf því að taka lán, veðsetja heimili fjölskyldunnar og svo framvegis, og verður þá að fá arð út til að geta borgað lánið niður.
Sprotafyrirtæki eru ekki lengur sproti heldur fullveðja stofn þegar þau greiða arð. Í dæminu sem Helga Vala tekur myndi ímyndaði eigandinn einfaldlega framselja lánið til fyrirtækisins sem greiddi afborganir af láninu - en ekki arð.
Hugmyndir Samfylkingar auðvelda skattsvik þar sem fyrirtækjaeigendur láta ríkið niðurgreiða arð og einkaneyslu.
Alltaf má treysta á að Samfylkingin taki rangan pól í hæðina.
Vikur í að ræða einstök flugfélög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 24. maí 2020
COVID-19 og Víetnam - pólitísk ábyrgð og falsfréttir
Tímaritið Life birti sumarið 1969 vikulista og ljósmyndir af föllnum Bandaríkjamönnum í Víetnam. Umfjöllunin leiddi marga Bandaríkjamenn til að spyrja um pólitíska ábyrgð á hörmungunum í Víetnam.
Listi New York Times yfir dauðsföll af COVID-19 þjónar sama tilgangi. Í ár eru forsetakosningar þar vestra. Kosningar eru pólitísk reikningsskil. Listinn er á forsíðunni ekki vegna upplýsingagildis heldur til að skapa hughrif. Skilaboðin eru að þúsund nafngreindir einstaklingar dóu og einhver skal svara til saka.
En það er lítilræði sem ber á milli. Víetnamstríðið var manngerður andskoti frá a til ö. Kórónuveiran gæti verið manngerð, og þá liggur ábyrgðin hjá Kínverjum, en fyrst og fremst er hún farsótt. Líkt og svarti dauði á miðöldum.
Listi New York Times er falsfrétt þótt staðreyndirnar séu allar réttar. Fölsunin liggur í því að bandaríska útgáfan gefur sér að dauðsföll vegna farsóttar sé hægt að skrifa á pólitískan reikning Donald Trump. Rétt eins og Kennedy, Johnson og Nixon báru ábyrgð á Víetnamstríðinu.
Frjálslynda vinstrið er við sama heygarðshornið. Trump og félagi hans Pútín bera ábyrgð á öllum hörmungum síðustu ára. Sjáið bara forsíðu New York Times.
Listi yfir látna á forsíðu: Ólýsanlegur missir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)