Föstudagur, 17. apríl 2020
Um 15 þús. útlendingar í íslenskri ferðaþjónustu
Í skýrslu KPMG segir að árið 2008 hafi launþegar í ferðaþjónustu verið um 15 þúsund. Árið 2020 voru launþegarnir 32 þúsund.
Útlendingar eru líklega um helmingur launþega í ferðaþjónustunni. Á Keflavíkurflugvelli er varla töluð íslenska seinni árin, sama gildir um fjölmörg fyrirtæki í atvinnugreininni. Erlent farandverkafólk var í góðærinu flutt inn í flugvélaförmum að sinna störfum sem Íslendingar vildu ekki.
Sjálfhætt er að flytja útlent vinnuafl til landsins eftir hrun ferðaþjónustunnar.
Djúp lægð næstu eitt til tvö árin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 17. apríl 2020
Lífskjör þjóðarinnar eru í uppnámi, Ragnar Þór, ekki samningar
Við verðum að vinna meira fyrir minni pening. Þau skilaboð koma ekki frá atvinnurekendum eða ríkisstjórn heldur farsóttinni.
Atvinnulífið er í kaldakoli. Ekki bara á Íslandi, heldur heimsbyggðinni allri.
Krakkarnir í fílabeinsturni verkó, Ragnar Þór, Drífa og Sólveig Anna, skilja ekki að góðærið er farið. Hallæri blasir við.
Hallærið mun vinsa út bjána frá fullorðnum. Verkó er illa mönnuð af fullorðnum.
Lífskjarasamningur í uppnámi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 17. apríl 2020
Kínversk lygi, WHO meðsek - eins og Trump sagði
Kínversk stjórnvöld lugu um kórónuveiruna. WHO, Alþjóða heilbrigðismálastofnunin, tók undir kínversku lygina og gerði lítið úr smithættu og dánartíðni.
Trump forseti hafði rétt fyrir sér.
Frjálslyndir alþjóðasinnar og fjölmiðlar á þeirra vegum höfðu rangt fyrir sér.
En það verður bið á því að Trump fái afsökunarbeiðni. Alþjóðlega falsfréttasmiðjan er ekki vön að biðjast afsökunar.
Sláandi dánartölur frá Wuhan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)