Lýðræði á bakvið grímu

Trump, fólkið í kringum hann og fjölmiðlar til hægri (þeir fáu) sjást sjaldnast með grímu. Þessu er öfugt farið með Biden og hans lið og fjölmiðla til vinstri (þeir mörgu), þar sést fólk varla án grímu.

Gríman er sóttvörn, að sögn, en líka tjáning á ótta. Þegar sjónvarpsmaður talar í hljóðnema með grímu í ljósvakamílna fjarlægð frá áhorfendum eru skilaboðin ótti en ekki sóttvörn. Gríman verður yfirlýsing um hörmungar handan við hornið.

Sigri Biden, sem meiri líkur en minni eru á, boðar meiri breytingar en margur hyggur. Það verður ekki afturhvarf til áranna fyrir Trumpsigurinn 2016. 

Lýðræði á bakvið grímu mun reynast heldur síðra en það grímulausa.


mbl.is Trump eigi 5-10% líkur á sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný Pútín-flétta fjölmiðla um Trump

Kosningasigur Trump fyrir 4 árum var í raun krýning Pútín lávarði Rússlands á forseta Bandaríkjanna.

Sögðu fjölmiðlar. 

Margra ára rannsóknir afhjúpuðu Pútín-samsærið sem heilaspuna frjálslyndra og fjölmiðla.

Degi fyrir kjördag 2020 undirbúa frjálslyndir fjölmiðlar (sama liðið) nýja Elvis Prestley lifir kenningu.

Að Trump lýsi yfir sigri þótt hann tapi. Rökin verða þau að Trump sigri á kjördag en enn séu ótalin x milljónir utankjörfundaratkvæða.

Kannski sigrar Trump, en kannski tapar hann. Kannski verður jafntefli á kjördag, eða því sem næst. Enginn veit.

En allir sem fylgjast með vita að stærsti rugludallurinn í alheimstjörninni eru frjálslyndir fjölmiðlar. 


mbl.is Hyggst lýsa yfir sigri og saka demókrata um svindl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísindi, ótti og almenn skynsemi

Börn smitast síður en aðrir aldurhópur af Kínaveirunni. Í þeim tilfellum sem þau smitast eru börnin ólíkleg til að smita aðra. Segja altso vísindin, - a.m.k á talandi stundu. Af því leiðir, segir menntamálaráðherra, er óþarfi að loka grunnskólum, líkt og framhalds- og háskólum.

„Það getur aldrei verið réttlætanlegt að gera minni kröfur til sóttvarna barna en annarra þjóðfélagsþegna, þvert á móti ber okkur að verja þau framar öllum öðrum," segir í ályktun Félags grunnskólakennara.

Grunnstef sóttvarna, bæði á Íslandi og erlendis, er ótti við lamað heilbrigðiskerfi, ótímabæran dauða og langvinn veikindi.

Við höfum séð að í farsóttinni tala vísindin tungum tveim, og sitt með hvorri. Það sést t.d. á vísindum um gagnsemi andlitsgrímu og hvort samfélagslokanir geri lýðheilsu gagn eða ógagn, þegar allt er reiknað.

Óttinn á hinn bóginn talar einni tungu. Lífhræðsla er máttug tilfinning, hvort sem hún er byggð á raunsæju mati eða ímyndun.

Á milli svokallaðra farsóttarvísinda og skelfingar um fjöldadauða og hruns siðmenningar væri æskilegt að koma við almennri skynsemi. Það er aftur hægara um að tala en í að komast.

Þó má vona að Íslandi takist, með einsleitri menningu og stórum höfuðstól félagslegs auðmagns, sem birtist m.a. í tiltrú á stjórnvöldum, að sigla farsóttarskipinu í höfn. En það má ekki mikið útaf bregða til að illa fari.

 


mbl.is Stjórnvöld endurskoði undanþágur í grunnskólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. nóvember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband