Lýðræði á bakvið grímu

Trump, fólkið í kringum hann og fjölmiðlar til hægri (þeir fáu) sjást sjaldnast með grímu. Þessu er öfugt farið með Biden og hans lið og fjölmiðla til vinstri (þeir mörgu), þar sést fólk varla án grímu.

Gríman er sóttvörn, að sögn, en líka tjáning á ótta. Þegar sjónvarpsmaður talar í hljóðnema með grímu í ljósvakamílna fjarlægð frá áhorfendum eru skilaboðin ótti en ekki sóttvörn. Gríman verður yfirlýsing um hörmungar handan við hornið.

Sigri Biden, sem meiri líkur en minni eru á, boðar meiri breytingar en margur hyggur. Það verður ekki afturhvarf til áranna fyrir Trumpsigurinn 2016. 

Lýðræði á bakvið grímu mun reynast heldur síðra en það grímulausa.


mbl.is Trump eigi 5-10% líkur á sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það eru engar afgerandi sannanir fyrir því að almenn grímunotkun dragi úr smiti. Þetta er einfaldlega umdeilt og verður það væntanlega áfram. Það er rétt að grímunotkunin er óttamerki, og grímuskylda er leið stjórnvalda til að gera óttann sýnilegan og ýta þannig enn frekar undir hann. Þetta skilur fólk sem neitar að bera grímu.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.11.2020 kl. 19:47

2 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

"Það eru engar afgerandi sannanir fyrir því að almenn grímunotkun dragi úr smiti". 

Er ekki örugglega kveikt á öllum ? 

Ég veit sumum er illa við C-19 en að berja hausnum svona rækilega við steininn er augljóslega rannsóknarefni í sjálfu sér.

Þannig allt það heilbrigðisfólk sem hefur sinnt aðgerðum, uppskurðum á öllum sjúkrastofnum heimsins í gegnum tíðina eru þá væntanlega bara með grímur fyrir vitum sínum fyrir lookið.

Stundum, sem betur fer toppa nokkrir snillar hér á Fróni , trúðinn í Hvítahúsinu.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 2.11.2020 kl. 21:14

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Sigfús, með hvaða tegundum af skurðstofugrímum mælir þú með fyrir börn og almenning?

Benedikt Halldórsson, 2.11.2020 kl. 21:25

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já, það er stór munur á skurðstofugrímum og tuskunum sem fólk hefur fyrir trantinum úti í búð. Ég trúi því nú varla að menn séu svo skyni skroppnir að ímynda sér annað.

Og veruleikinn er einfaldlega sá að það hafa engar sannanir komið fram fyrir því að þessar grímur virki. Þvert á móti geta þær jafnvel veitt falskt öryggi.

Það er mér í sjálfu sér að meinalausu þótt einhverjum líði betur ef maður er með þetta framan í sér í Bónus. Ég vorkenni hins vegar fólkinu sem þarf að bera þennan fjanda allan daginn.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.11.2020 kl. 22:38

5 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Contrary to common belief, studies in hospitals found that the wearing of a medical mask by surgeons during operations did not reduce post-operative bacterial wound infections in patients.

The WHO admitted to the BBC that its June 2020 mask policy update was due not to new evidence but "political lobbying".   We had been told by various sources WHO committee reviewing the evidence had not backed masks but they recommended them due to political lobbying. This point was put to WHO who did not deny.” (D. Cohen, BBC Medical Corresponent).

An analysis by the US CDC found that 85% of people infected with the new coronavirus reported wearing a mask "always" (70.6%) or "often" (14.4%). Compared to the control group of uninfected people, always wearing a mask did not reduce the risk of infection.

Contrary to common belief, studies in hospitals found that the wearing of a medical mask by surgeons during operations did not reduce post-operative bacterial wound infections in patients.

Researchers from the University of Minnesota found that the infectious dose of SARS-CoV-2 is just 300 virions (viral particles), whereas a single minute of normal speaking may generate more than 750,000 virions, making cloth face masks unlikely to prevent an infectious dose.

Benedikt Halldórsson, 2.11.2020 kl. 23:31

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já en Þorsteinn fólk er með þetta oftast vegna tillitssemi við aðra,eftir að dulan varð almenn, þannig upplifi ég hugsun þeirra mörgu sem ég umgengst.Hér gekk andstyggileg flensa árið 1988 og dóu þá fleiri en hafa fallið fyrir þessari,en þetta er raunar ekki búið ennþá.

Helga Kristjánsdóttir, 3.11.2020 kl. 01:07

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Að sjá fólk nota grimurnar er hreinn brandari. Sífellt fiktandi í þeim, dragandi þær upp og niður, undir höku og undir nefi. Það gætir sín ekki einu sinni þegar það er að dásama grímunotkun í beinni útsendingu. Horfið bara á fréttatímana.

Ragnhildur Kolka, 3.11.2020 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband