Miðvikudagur, 29. janúar 2020
Ragnar Þór: ég er ekki Gunnar Smári
Ragnar Þór í VR og Gunnar Smári í Eflingu/Sósíalistaflokknum keppa um að verða byltingarforingjar þjáðra öreiga sem vart eiga til hnífs og skeiðar.
Á meðan Gunnar Smári bjó í 120 milljón króna villu í Skerjafirði gerði Ragnar Þór upp hús í Árbæ.
Nauðsynlegt að vita fyrir verkalýðinn hvernig forkólfarnir búa.
Svona býr Ragnar Þór formaður VR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 29. janúar 2020
Sósíalistar og 0,1 prósentið
,,Að skoða ævintýralega dýrar eignir á Seltjarnarnesi er svo kexrugluð innsýn í 0,1 prósentið," segir í háðsfrétt DV um húseign á Nesinu með ásett verð upp á 130 milljónir.
Í meðfylgjandi frétt mbl.is segir af sölu á húseign Gunnars Smára formanns Sósíalistaflokks Íslands. Ásett verð: 119 milljónir.
Þegar talsmenn öreiga selja eignir í sama verðflokki og 0,1 prósentið sem ,,á Ísland" er einboðið að stéttabaráttan er ekki lengur háð á efnahagslegum forsendum. Baráttan stendur á milli dómgreindar og þeirra sem hafa hana ekki.
Brynhildur keypti glæsihús Gunnars Smára og Öldu Lóu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)