Föstudagur, 30. ágúst 2019
Manngert veður mesta blekkingin frá kommúnisma
Eftir að kommúnisminn leið undir lok, í Tékkó 1968 og formlega rúmum 30 árum síðar, er manngert veður mesta hugmyndafræðilega blekkingin sem völ er á.
Kommúnisminn byggði á vísindalegum sósíalisma, eins og kunnugt er.
Manngert veður hvílir á svindlvísindum sem boða heimsendi ef ekki verður komið á alheimsstjórn sem boðar og bannar fólki að lifa lífinu eins og það kýs. Allt í nafni ástar og friðar, rétt eins og kommúnisminn.
Vinstri grænir eru arftakar Kommúnistaflokks Íslands. Og trúa auðvitað á manngert veður. Tilgangurinn helgar meðalið.
Loftslagsmál brýnasta pólitíska viðfangsefnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 30. ágúst 2019
Frestum OP3 fram yfir kosningar
Áform um sæstreng eru komin langt á veg, þótt íslensk stjórnvöld þykist ekkert um það vita. Orkupakki 3 stuðlar að enn frekari markaðsvæðingu orkumála og veikir þar með varnir okkar gagnvart ágengum stórfyrirtækjum að virkja á Íslandi til að flytja rafmagn til Evrópu.
Umræða síðustu missera, stofnun fjöldahreyfingar gegn framsali orkuauðlinda, djúpstæður klofningur í stærsta stjórnmálaflokki landsins sýnir svart á hvítu að orkupakkamálið krefst frestunar fram yfir næstu þingkosninga þar sem þjóðin tekur til máls. Fyrir síðustu kosningar var málið alls ekki á dagskrá og því hefur sitjandi stjórn ekkert umboð til að innleiða orkupakkann.
Frestun málsins er sanngjörn. Orkupakki 3 var samþykktur í Evrópusambandinu 2009, fyrir tíu árum, og ekkert liggur á að við innleiðum hann núna.
Öllum, sem fylgst hafa með umræðunni, hlýtur að vera ljóst að orkupakkinn er stórmál sem ætti ekki að vera afgreitt á meðan djúpstæður ágreiningur er meðal þjóðarinnar um framtíðarstefnu í auðlindamálum. Eftir samþykkt orkupakka 3 er sú stefnumótun komin í hendur ESB.
Meginhlutverk stjórnvalda á hverjum tíma er að skapa sátt í samfélaginu. Ríkisstjórn sem elur á sundurþykkju og flytur forræði íslenskra mála til útlanda er komin í ógöngur. Enn er tími til að leita sátta. Frestun orkupakka 3 er gott fyrsta skref.
Vantar grænt ljós í Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)