Fimmtudagur, 14. nóvember 2019
RÚV breytir frétt: hannar nýjan veruleika
Frétt á RÚV um Samherjamálið var breytt í kvöld. Í útgáfu fréttarinnar var harmað að frumvarp forsætisráðherra um vernd uppljóstrara myndi ekki vernda starfsmann Seðlabanka Ísland sem lak upplýsingum til RÚV um húsleit hjá Samherja.
RÚV leggur ofurkapp á að fá vernd fyrir samstarfsmann sinn í Seðlabankanum. Fréttamaður RÚV sakaði Katrínu forsætisráðherra um hræsni í fréttaviðtali í gær vegna málsins.
Seinni útgáfa fréttarinnar í kvöld var breytt til að draga athyglina frá samvinnu RÚV og Seðlabanka í aðförinni að Samherja sem upphaflega fréttin afhjúpaði.
Í lok nýrrar útgáfu fréttarinnar segir RÚV: ,,Fréttinni hefur verið breytt. Í upphaflegri útgáfu stóð að frumvarpið næði ekki yfir fyrrverandi starfsmenn fyrirtækja."
Fyrirsögnin í upphaflegu fréttinni krafðist verndar fyrir seðlabankamanninn sem lak trúnaðarupplýsingum í RÚV.
RÚV hannar nýjan veruleika í takt við áróðursstöðuna hverju sinni. Í Efstaleiti er ekki stunduð fréttamennska heldur áróður.
Umfjöllun Kveiks einhliða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. nóvember 2019
Albanskur hælistúrismi, Namherji og RÚV-dramatík á alþingi
Fyrir viku bjó RÚV til handrit að sólarhringsdrama á alþingi vegna albanskrar fjölskyldu í leit að velferðaraðstoð hér á landi. RÚV-leikritið í þessari viku heitir Namherji.
Áhrifin eru þau sömu. Þingmenn Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar taka heljarstökk í takt við fyrirskipanir frá Efstaleiti. Í síðustu viku voru Íslendingar mannfjandsamlegir; í dag spilltir.
RÚV-leikritin svara eftirspurn eftir sjálfshatri.
Spillingarbæli eða óþarfa dramatík? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. nóvember 2019
RÚV: Namibía fyrirmynd Íslands
Fyrsta frétt RÚV í gærkvöldi var að namibískir ráðherrar hefðu sagt af sér vegna spillingarásakana frá ríkisfjölmiðli í landi hvítra norður við Dumbshaf. Afrískir stjórnmálamenn eru næmir á vilja ríkisvalds hvítra Þróunaraðstoð gæti verið í hættu þegar þeir hvítu byrsta sig.
Frétt RÚV segir drjúgleg að ,,fátt annað sé rætt á kaffistofum" í Namibíu. En þar liggur einmitt sérhæfing ríkisfréttastofunnar, að búa til umræðu þar sem fólk slúðrar.
Í beinu framhaldi er sjávarútvegsráðherra Íslands kallaður á teppið í Kastljósi RÚV og spurður hvort hann ætli ekki að segja af sér líkt og þeir namibísku.
Ástæðan?
Jú, hann fór á makrílveiðar við Íslandsstrendur á einu skipa Samherja.
Glottið á RÚV-spyrlinum sást alla leið til Namibíu.
Láttu ekki svona, Einar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)