Föstudagur, 27. apríl 2018
Alþingi vill yfirtaka stjórnsýsluna
Í samvinnu við falsfréttaútgáfur reynir stjórnarandstaðan á alþingi að yfirtaka stjjórnsýsluna. Krafa minnihlutans um aðgang að trúnaðarupplýsingum gengur þvert á mannréttindi og meginreglur um persónuvernd.
Alþingi getur ekki beitt fyrir sig götuútgáfum á netinu til að komast yfir persónuupplýsingar að nota í pólitískum hráskinnaleik.
Alþingi götunnar má ekki yfirtaka þjóðarsamkomuna.
Ljóst að hann sagði ekki rétt frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 27. apríl 2018
Smáflokkar og stórar hugsjónir
Flokkar verða stórir þegar þeir finna pólitíska samnefnara meðal fólks. Smáflokkar boða byltingarhugsjón byggð á trú, stétt eða kyni.
Aðeins við afbrigðilegar aðstæður ná byltingarflokkar árangri. Píratar urðu flokkur hinna óspilltu í nokkur misseri, þegar tókst að selja fólki hugmyndina um ónýta Ísland. Einfeldningslegar lausnir - ný stjórnarskrá - skiluðu Pírötum fylgi í könnunum en ekki kosningum.
Smáflokkar með stórar hugsjónir eru mælikvarði á vinsældir jaðarhugmynda í pólitík. Hvað Framsóknarflokkurinn er að gera hópi smáflokka í höfuðborginni er svo önnur pæling.
Meirihlutinn heldur naumlega velli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)