Laugardagur, 24. mars 2018
Múslímar herja á Evrópu
Herskáir múslímar, oft dćmdir glćpamenn, efna til hryđjuverka í nafni trúarinnar og drepa drepa fólk viđ hversdagslega iđju í Evrópu. Á síđustu árum er Frakkland einkum í skotlínu herskárra múslíma.
Hryđjuverkamennirnir koma iđulega af annarri og ţriđju kynslóđ múslíma sem hafa veriđ bođnir velkomnir í Evrópu. Gestrisnina gjalda ţeir međ blóđsúthellingum. Í moskum og trúarmiđstöđvum múslíma eru hryđjuverkin lofuđ, stundum ţögguđ í hel en sjaldnast fordćmd.
Austur af Frakklandi liggur Ţýskaland, sem síđustu ár hefur veitt mörg hundruđ ţúsund múslímum viđtöku. Í nýrri ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara er opinskátt rćtt hvort múslímatrú eigi erindi til Ţýskalands. Í vestrćnu ríki, ţar sem trúfrelsi er viđurkennt, er erfitt ađ vera á móti trúarbrögđum, sama hvađa nafni ţau nefnast.
En Ţjóđverjar kćra sig ekki um ađ ala upp kynslóđir af múslímskum öfgamönnum sem einn daginn láta sér detta í hug ađ efna til blóđsúthellinga á saklausu fólk. Múslímsk trúarmenning verđur seint ađlöguđ vestrćnni. Farsćlast er ađ múslímar haldi til í heimaríkjum sínum.
Lögreglumađurinn lést af sárum sínum | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 24. mars 2018
Barnavernd og kosningaréttur
Ekki eru nema rúm 20 ár síđan sjálfrćđisaldur var hćkkađur úr 16 árum í 18. Breytingin kom í kjölfar ţjóđfélagsţróunar ţar sem ungmenni dvöldust lengur í foreldrahúsum. Ýmsar reglur, t.d. ađgengi ađ tóbaki og áfengi, ganga í sömu átt á seinni árum.
Tillaga um ađ lćkka kosningaaldur úr 18 árum í 16 gengur ţvert á ríkjandi barnaverndarhugsun síđustu áratuga. Lćkkun kosningaaldurs myndi í senn valdefla 16 til 18 ára ungmenn en jafnframt gera aldurshópinn 14 til 16 ára ađ skotmarki stjórnmálaafla.
Pólitískum skilabođum yrđi beint ađ börnum frá fermingaraldri. Í ljósi ţess hve beinskeytt pólitísk skilabođ eru orđin, međ netvćddum samfélagsmiđlum, er vafasamt, svo ekki sé meira sagt, ađ fćra kosningaaldur niđur í 16 ár.
Kosningalög óbreytt um sinn | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)