Múslímskt þakklæti: drepum þá sem taka við okkur

Múslímsk hryðjuverk á vesturlöndum fylgja uppskrift. Íslömsku hryðjuverkamennirnir eru vanalega smáglæpamenn af fyrstu til þriðju kynslóð flóttamanna sem fá hæli í vestrænu ríki.

Þakklætið sýna múslímarnir með hryðjuverkum á þeim sem veita hælið.

Vinstrimenn kalla þetta fjölmenningu.


mbl.is Ísland bar á góma í umdeildri færslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðanefnd Samfylkingar er ósiðleg

Fáheyrt þætti að siðanefnd Blaðamannafélags Íslands tæki mál fyrir, afgreiddi fyrir luktum dyrum og birti ekki niðurstöðuna. En þetta gerir Samfylkingin.

Ef Samfylkingin væri spilaklúbbur væri hægt að réttlæta að brot á siðareglum sé innanfélagsmál. En Samfylkingin er stjórnmálaflokkur og sem slíkur á opinberu framfæri. Þeir sem starfa í flokknum freista þess að fá opinber völd til að móta samfélagið. Þess vegna getur það ekki verið innanflokksmál þegar flokksmenn brjóta af sér.

Trúnaðarnefnd Samfylkingar hlýtur að leggja spilin á borðið og upplýsa um þau fjögur mál sem nefndin hefur fjallað um og hvaða úrskurðir féllu.


mbl.is Samfylkingin hefur tekið fyrir fimm mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samúð og skammir á samfélagsmiðlum

Maðurinn sýnir sínum nánustu skilning og væntumþykju. Það er eðli mannsins að um leið og þeim nánustu sleppir er styttra í andúðina. Samfélagsmiðlar breyta ekki eðli mannsins.

Þegar einhver opnar sig, eins og það er kallað, um veikleika sína í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum, er viðkomandi kominn á annan vettvang en sinna nánustu. Ef um er að ræða samkeppni, t.d. í íþróttum eða stjórnmálum, verður veikleikinn notaður gegn þeim sem játar sig standa höllum fæti. 

Þetta er einfaldlega hluti af mannlífinu. Hæfileiki mannsins til að setja sig í spor annarra og finna til með ókunnugum er takmarkaður. Gagnvart utanaðkomandi er maðurinn oft í samkeppni um félagslega stöðu, völd og auð. Þar er spurt um styrk og veikleika.

Sú hugsun, sem örlar á í viðtengdri frétt, að ný boðskiptatækni, t.d. samfélagsmiðlar, breyti eðli mannsins er ávísun á vonbrigði. Maðurinn, með kostum sínum og göllum, tekur ekki eðlisbreytingu með nýrri tækni.

Á hinn bóginn geta tækniframfarir magnað upp sum einkenni mannlegrar náttúru. Til dæmis þau að baktala náungann, leyfa ókunnugum ekki að njóta sannmælis. 

 


mbl.is Hengdu þig almennilega næst!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. desember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband