Þriðjudagur, 28. febrúar 2017
Píratar i fangi Soros milljarðamærings
Píratar eru sagðir hluti af pólískri áætlun milljarðamæringsins George Soros að gera vinstriflokka handgengna alþjóðahyggju, sem á í vök að verjast eftir Brexit og Trump-sigur.
Í fréttaskýringu er rakið hvernig Soros kaupir vinstriflokka í Evrópu til fylgilags við Evrópusambandið og opin landamæri. Píratar eru þar nefndir sérstaklega.
Helsta verkfæri Soros í þessum tilgangi er Open Society Foundations. Í fréttabréfi samtakanna er sagt frá vexti og viðgangi skjólstæðinganna. Fréttabréfið kemur út tvisvar í mánuði. Þegar Píratar fengu stjórnarmyndunarumboð í desember síðast liðnum var það fyrsta fréttin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 28. febrúar 2017
Salerni og réttindaofbeldi
Réttindaofbeldi er það þegar einhver tekur sér réttindi á kostnað annarra. Hefðir helga siðvenjur okkar; salerni í heimahúsum eru fyrir bæði kynin en opinber salerni eru kyngreind.
Nú kann einhver að búa yfir þeirri sjálfsvitund að erfitt sé að velja á milli karlasalernis og kvenna. Viðkomandi á rétt á sinni sjálfsvitund á meðan hún truflar enga aðra.
En það er réttindaofbeldi þegar sjálfsvitund fárra neyðir karla og konur að nota sama salernið, - þvert á siðvenjur.
Kynlaus klósett í Háskólanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 28. febrúar 2017
Landamæri, alþjóðavæðing og óvinaímyndir
Fjölgun landamæragirðinga víða um heim, ekki síst í Evrópu, er til marks um endalok alþjóðavæðingar síðustu áratuga.
Eftir fall kommúnismans í kringum 1990 virtist alþjóðavæðingu og opnun landamæra engin takmörk sett. En þegar á daginn kom að alþjóðavæðingin jók efnahagslegt misrétti á vesturlöndum kom bakslag. Vaxandi flóttamannastraumur til vesturlanda gróf enn undan alþjóðavæðingunni og landamærin tóku að lokast.
Óvinaímyndir eru fylgifiskur einangrunarhyggju. Í stað fjölmenningar kemur þjóðerniskennd. Þar sem áður voru vinsamleg samskipti ríkir nú tortryggni.
Hvergi er tortryggnin augljósari en í samskiptum Evrópusambandsins og Rússlands sem deila um áhrifasvæði í Austur-Evrópu. ESB stendur fyrir sérstöku áróðursátaki gagnvart Rússlandi til að kenna Rússum um flest sem aflaga fer í opinberri umræðu í ríkjum Evrópusambandsins.
Óvinaímyndir eru fyrsta stig stríðsundirbúnings.
Landamæraveggir víða um heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)