Magma er innflutt útrás

Magma er framhald af útrásargeggjun sem fólst í að auðmenn gerðu bandalag við spillta stjórnmálamenn um aðgang að orkuauðlindum. REI/Geysir Green sameiningin fyrir tilstilli auðmanna eins og Jóns Ásgeirs og Hannesar Smára og stjórnmálamanna á borð við Björns Inga Hrafnssonar þáverandi borgarfulltrúa náði ekki fram að ganga. 

Magma er skilgetið afkvæmi græðgisvæðingarinnar. Ásgeir Margeirsson forstjóri Magma var meðhlaupari Jóns Ásgeirs og Hannesar Smára. Árni Magnússon, áður ráðherra Framsóknarflokksins og síðar auðlindabraskari  í Glitni/Íslandsbanka er enn á vettvangi þótt leynt fari. Kanadíski braskarinn sem íslensku gæðingarnir hafa bundið trúss sitt við er enn annar þáttur í sama leikriti.

Samfylkingin hefur tekið að sér að halda lífinu í þessum framhaldsharmleik þar sem tekist er á um auðlindar þjóðarinnar. Samfylkingin sýnir eins og jafna samstöðu með auðmönnum.


mbl.is Íslensk lög einungis útskýrð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafnlaus lögfræði siðlausar stjórnsýslu

Unnur G. Kristjánsdóttir formaður nefndar um erlenda fjárfestingu segir fjögur lögfræðiálit til grundvallar niðurstöðu nefndarinnar um að skúffufyrirtæki hafi heimild að kaupa orkulindir þjóðarinnar.

Lögfræðingarnir eru allir nafnlausir og hæfir þar skel kjafti siðlausrar stjórnsýslu.

 


mbl.is Fundað um Magma í iðnaðarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aronska Svavars G.

Auðrónadeild sjálfstæðismanna og Samfylkingin eiga málefnalegt skjól í Fréttablaðinu. Svavar Gestsson fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins er kominn með fast horn á leiðarasíðu Baugsútgáfunnar. Í dag nálgast hann Evrópumálin frá sjónarhorni sem hét aronska þegar helsta deiluefni utanríkissamskipta landsins var afstaðan til NATO og herstöðvarinnar á Miðnesheiði.

Aronska var stefna um að taka gjald fyrir veru Bandaríkjahers hér á landi, eins konar leigugjald fyrir aðstöðu. Auðrónadeild sjálfstæðismanna þess tíma var hlynnt aronskunni en meginlínan í flokknum var að taka ekki gjald enda væri um samstarf lýðræðisríkja að ræða gegn ógninni frá Sovétríkjunum.

Svavar vill ,,láta reyna á umsóknarferlið" til að komast að því hvað Evrópusambandið býður. Fullveldi og forræði eigin mála er aukaatriði hjá Svavari G. sem einu sinni taldist til þeirra sem töldu þjóðfrelsi nokkurs virði.

Til vara teflir fyrrum formaður Alþýðubandalagsins fram þessu sjónarmiði: ,,Sumir segja: Samþykkjum umsókn til að fella aðild." Valkvæð heimska af þessu tagi er aumkunarverð. Evrópusambandið býður ekki upp á annað en aðlögunarferli, ,,accession process." Þegar Evrópusambandið fær til sín umsókn lítur það svo að staðfastur vilji sé hjá viðkomandi þjóða að fá inngöngu í sambandið.

Þegar búið er að samþykkja umsóknina í Brussel fer af stað aðlögunarferli og aðeins lítill hluti þess ferlis er samningaviðræður um tímabundnar undanþágur frá reglum Evrópusambandsins. Aðalvinnan er fólgin í að umsóknarríkið aðlagi sig að reglum Evrópusambandsins. Þjóðaratkvæði í lok þessa ferlis er markleysa því í reynd er viðkomandi ríkið þegar gengið í sambandið.

Dapurt hjá þér, Svavar Gestsson.

 

 

 


Samfylkingin og siðlaus stjórnsýsla

Forysta Samfylkingarinnar pantaði niðurstöðu nefndar um erlendar fjárfestingar enda var iðnaðarráðherra Samfylkingarinnar búinn að lofa stuðningi sínum við Magma-málið.

Ásgeir Margeirsson var forstjóri Geysir Green þegar Glitnir og FL group,  Jón Ásgeir Baugsstjóri, Hannes Smárason og fleiri, ætluðu að gera út á íslenskar orkuauðlindir. Eftir REI-klúðrið sem felldi meirihlutann í Reykjavíkurborg fengu með sér þekkta fjárfesta s.s. Ólaf Jóhann rithöfund og Wolfenson-fjölskylduna

Í októberhruninu 2008 hrökkluðust fjárfestar frá Geysi Green. Íslandsbanki, sem var reistur á grunni gjaldþrota Glitni, ákvað að halda orkuútrásinni áfram og keypti hlut Ólafs Jóhanns og fleiri. Ásgeir var áfram forstjóri.

Í iðnaðarráðuneytinu var fundað árið 2009 um hvernig mætti halda verkefninu áfram. Þar var m.a. rætt um skúffufyrirtæki í Svíþjóð til að komast hjá íslenskum lögum. 

 Ásgeir Margeirsson sagði upp störfum hjá Geysir Green. Tveim mánuðum síðar er Ásgeir kynntur sem forstjóri Magma á Íslandi.

Kennitöluflakkið, þar sem Geysir Green er sett í gjaldþrot og nýtt fyrirtæki stofnað um sama verkefni, er í skjóli iðnaðarráðuneytis

Stjórnsýsla sem tekur þátt í kennitöluflakki og sýndargjörningum er siðlaus.

 

 


Ríkisvaldið ráðleggur um lögbrot

Fjármálaráðuneytið býður fram þjónustu til að auðvelda fólki skattaundanskot - einkum ef útlendingar eiga í hlut.  Félagsmálaráðuneytið veitir ráðgjöf um svindl á tryggingakerfinu; menntamálaráðuneytið hvernig hægt er að fá vafasöm prófskírteini í útlöndum tekin góð og gild hér heima. Fordæmi fyrir siðspilltri stjórnsýslu er komið í iðnaðarráðuneytinu.

Iðnaðarráðuneytið ráðleggur útlendum braskara í samstarfi við íslenska útrásarafganga hvernig eigi að sniðganga íslensk lög um fjárfestingar í  orkufyrirtækjum.

Ef ríkisstjórn Jóhönnu Sig. blessar gjörning iðnaðarráðuneytisins í Magma málinu er siðleysi stjórnsýslunnar staðfest. 


Bloggfærslur 12. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband