Danskt skilningsleysi á íslenskri umræðu

Innflutningur á útlendingum að tjá sig um Evrópusambandið og umsókn Íslands eykst í hlutfalli við meiri andstöðu Íslendinga við aðild. Utanríkisráðuneytið, RÚV og Fréttablaðið eru helstu viðtakendur útlendinga sem færa okkur fagnaðarerindið um sæluríkið í austri.

Í kvöldfréttum Sjónvarps var viðtal við danskan embættismann sem sagðist ekkert skilja í íslensku umræðunni um aðlögunarferlið.

Fréttamaðurinn sem tók viðtalið kann ekki fagið sitt betur en svo að hann gleymdi að spyrja danska embættismanninn hvað hann skilur í íslenskri umræðu svona almennt og yfirleitt. Spurningin hefði kannski afhjúpað að danskurinn vissi mest lítið um dagskrá umræðunnar hér heima.


Heimilisbókhaldið í útrás

Ein milljón í tekjur en skuld upp á tíu milljónir er hlutfall sem vaskir útrásarauðmenn þekkja út í hörgul og þótti ekki, og þykir kannski ekki enn, tiltökumál. Verstu synir Íslands voru fyrirmynd sumra, sem kannski lögðu of mikinn trúnað á fjölmiðla auðmannanna. Baugsmiðlar börðu í brestina og drógu fjöður yfir misfellur auðmannanna, hvort heldur þær efnahagslegu eða persónulegu.

Engu að síður: djöfull þarf maður að vera heimskur að fara með heimilisbókhaldið í útrás.


mbl.is Hæstiréttur vísar máli skuldara frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagskrárvald Jóns Ásgeirs

Jón Ásgeir fyrrum Baugsstjóri keypti fjölmiðla til að stýra umræðunni. Af óskiljanlegum ástæðum líðst Jóni Ásgeiri að eiga enn fjölmiðlareksturinn þótt flest annað sé farið í þrot.

Landsbankinn og Þórólfur Matthíasson prófessor sem vinnur í umboði ríkisstjórnarinnar að blessa afskriftir til auðmanna geta útskýrt þá undarlegu stöðu sem uppi er á íslenskum fjölmiðlamarkaði.

Auðmennirnir stjórna umræðunni um afbrotin sem þeir sjálfir frömdu.


mbl.is Fjalla minna um Jón Ásgeir en Björgólf Thor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vigdís býður sátt í ESB-málinu

Veikar forsendur fyrir samþykkt alþingis um að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu eru dragbítur á umsóknina. Staðfesting á því að Evrópusambandið tekur aðeins ný ríki í sambandið samkvæmt aðlögunarkröfum þar sem umsóknarríki lagar sig jafnt og þétt að regluverki ESB á meðan samningaviðræður standa yfir gengur þvert á loforð stjórnvalda um óskuldbindandi viðræður.

Nær engar líkur eru fyrir stjórnvöld að hnika umsókninni áfram við núverandi aðstæður. Aðeins hluti ríkisstjórnarinnar vinnur að framgangi málsins og engir úti í samfélaginu leggjast á árarnar með Samfylkingunni.

Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um að efnt verði til þjóðaratkvæðis um það hvort aðlögunarferlinu inn í Evrópusambandið skuli haldið áfram. Tillaga Vigdísar réttir sáttarhönd til þeirra sem vilja halda umsókninni til streitu. Til að nokkur einasti möguleiki verði fyrir umsóknina að verða að aðildarsamningi þurfa stjórnvöld umboð frá þjóðinni - sem þau hafa ekki í þessu máli.

Þegar fyrir liggur að ,,kíkja-í-pakkann" rökin eru steindauð þurfa aðildarsinnar að munstra áhuga þjóðarinnar á aðlögun.Tillaga Vigdísar hlýtur að vera fagnaðarefni.


Neyslan staðfestir kreppulok

Hagtölur segja Íslendinga bjartsýna á horfurnar framundan. Þegar Íslendingurinn tekur til við að auka neysluna, eins og hagtölur staðfesta, gefur hann yfirlýsingu um að bjartari tímar séu framundan. Landinn eyðir fyrirfram væntanlegum ábata enda skuldar hann iðulega eitt eða tvö vísatímabil.

Eftir áramót eykst krafan um kauphækkanir og það verður ekki hlustað á neitt rugl í samtökum afneitara (SA) að ekki sé meira til skiptanna.

Næsta vor græðum við aftur á daginn og grillum á kvöldin.

Skál.

 

 


mbl.is Landsframleiðslan jókst um 1,2%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífeyrissjóðirnir látnir redda fjárlögum

Hókus-pókus fjárlög ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. lækka útgjöld til vegamála sömu dagana og Kristján Möller fyrrum samgönguráðherra kemur reglulega í fjölmiðla að tilkynna um væntanlegan 40 milljarða samning ríkisins við lífeyrissjóðina um fjármögnun vegaframkvæmda.

Ráðherrar sitjandi stjórnar kunna flest betur en að segja hlutina eins og þeir eru. Blekkingar, fals og lygi er daglegt brauð stjórnarráðsins.

Þjóðin hefur ekki lengur efni á ríkisstjórn Jóhönnu Sig.


mbl.is Tekjur lækka um 11 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband