Bardagajól

Jólin verða notuð til að hvessa kuta. Fréttahönnun baugsmiðla gagnvart þremenningunum í þingflokki Vinstri grænna sem stóðu upp í hárinu á sköllóttum fjármálaráðherra og gráhærðum forsætisráðherra gefa tóninn fyrir það sem koma skal. Annað tveggja gerist að þingflokkur Vinstri grænna verður barinn til hlýðni við formanninn eða að stjórnin falli.

Almennir flokksmenn fylgja þremenningunum enda eru þeir sál og inntak flokksins. Á meðan formaðurinn nýtur hóglífis valdanna klóra félagsmenn Vinstri grænna sér í kollinum og spyrja sig til hvers flokkurinn var stofnaður fyrir áratug.

Rangt svar: til að dekka gnægtaborð valdsins fyrir Steingrím J. og Árna Þór.

Rétt svar: til að verja velferðarkerfið og halda Íslandi utan Evrópusambandsins. 


Verkföll eða kosningar í vor

Valið eftir áramót mun standa á milli þess að ríkisstjórnin sitji og samfélagið logi í verkföllum eða boðað verði til kosninga í vor. Ríkisstjórnin á ekkert inni hjá verkalýðshreyfingunni og almenningur hefur snúið baki við Jóhönnu Sig. og Steingrími J. Skötuhjúin notuðu illa þann tíma sem friðarskylda var á vinnumarkaði og geta ekki keypt sér lengri frest.

Ef ríkisstjórnin segir af sér og boðað verður til kosninga myndast aðstæður til að ný stjórn leggi grunn að endurreisn í þágu þjóðarinnar. Verkföllum yrði frestað fram á haust til að gefa nýrri ríkisstjórn færi á að sýna á spilin.

Þjóðin þarf kosningar í vor.

 


mbl.is Pantanir streyma inn hjá ríkissáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kona strýkur karli um kinn

Dómstólafréttin um fimmtuga konu sem fékk skilorðsbundið fangelsi fyrir að löðrunga lögreglumann en segist aðeins hafa strokið honum um kinn minnir á hversu auðveldlega má misskilja athafnir mannanna. Blíðuhót konunnar voru sýndust lögreglunni vera tilburðir til líkamsmeiðinga. Líkast til hefur lögregluþjóninn náð að segja nei við konuna áður en höndin snerti vangann. Allir vita jú að í samskiptum kynjanna þýðir nei aðeins nei.
mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir kinnhest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar sameini Samfylkingu og Vg

Stjórnarflokkarnir eru báðir komnir að fótum fram. Upplausn ríkir í Vg vegna svika forystunnar við grunngildi flokksins. Samfylkingin á fyrir höndum eyðimerkurgöngu þar sem Jóhanna hættir og aðalmálefni flokksins, umsóknin um ESB, liggur í tætlum.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti bjó til ríkisstjórn Jóhönnu Sig. Þegar það liggur fyrir að blessuð vinstribörnin kunna ekki fótum sínum forráð verður foreldrið að stíga fram á sviðið og axla sína ábyrgð.

Ólafur Ragnar er snjallastur íslenskra stjórnmálamanna, það sýndi hann í Icesave-málinu. Verðugt verkefni fyrir hann er að sameina undir formennsku sinni Samfylkinguna og Vinstrihreyfinguna grænt framboð. 

 


Sátt um fjármálafestu

Í nýrri skýrslu Seðlabankans eru kynntir möguleikar á peningamálastjórnun og einn þeirra er ,,verðbólgumarkmið-plús" og er átt við aukinni samþættingu peningamálastjórnunar, sem er í höndum Seðlabanka, og fjármálastjórnunar sem er í höndum ríkisvaldsins.

Eftir hrun er brýnt að nota tækifærið og taka af meiri festu á peningamálum og fjármálastjórnun. Hrunið sýndi okkur villimenn í umgengni við peninga og við svo búið má ekki standa. Tryggvi Þór Herbertsson hefur kynnt tillögu um að setja í lög fjármálareglu sem gerir stjórnvöldum hvers tíma illmögulegt að segja sig frá traumhaldinu.

Fjármálafesta er meginþáttur í endurreisn þjóðarbúaskapar okkar.


mbl.is Verðbólgan í samræmi við markmið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðsovéskur Júdas

Forysta Vinstri grænna er komin út í horn og berst þar í tapaðri stöðu með óþverrameðölum. Tveir ráðherrar, annar núverandi og hinn fyrrverandi, gera stöðu Steingríms J. og Árna Þórs að umtalsefni í greinum í Morgunblaðinu í dag. Hjörleifur Guttormsson spyr um Júdas í postulahópnum og Ögmundur Jónasson frábiður sér síðsovéskar hreinsanir í þingflokknum.

Klukkan glymur forystu Vinstri grænna.


Bloggfærslur 22. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband