Mánudagur, 1. nóvember 2010
Allt búið, Dýrafjarðar-Jóhanna
Vinstristjórn Jóhönnu Sig. er pólitískt slys. Þjóðin bauð Samfylkingu og Vinstri grænum til hásætis en skötuhjúin Jóhanna Sig. og Steingrímur J. endurguldu traustið með heimsku, hroka og handvömm. Sjö af hverjum tíu kjósendum eru á móti stjórninni.
Samfylkingin hefur ekki mæst minni í skoðanakönnun í níu ár og er á góðri leið að verða áhrifalaus jaðarflokkur.
Ruslahaugur sögunnar bíður eftir líkinu af fyrstu og síðustu ríkisstjórn lýðveldisins sem aðeins er skipuð vinstriflokkum.
![]() |
Fylgi ríkisstjórnarinnar hrynur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 1. nóvember 2010
Hvert fer pólitíska frumkvæðið?
Sjálfstæðismenn ætla ekki að láta vinstriflokkana plata sig upp í stjórnarsængina sem er skíðlogandi. Tillögur Sjálfstæðismanna um að draga tilbaka skattahækkanir eru öndverðar við stjórnarstefnuna. Skattar eru gamalt og nýtt áhugamál sjálfstæðismanna og gæti skilað þeim árangri.
Þverrandi líkur á þjóðstjórn eykur möguleika á kosningum. Það liggur í augum uppi að sá stjórnmálaflokkur sem mætir kröfum almennings um kosningar er líklegur til að hrifsa pólitískt frumkvæði.
Sjálfstæðisflokkurinn á að sýna meira þor og bjóðast til að verja starfsstjórn Vinstri grænna vantrausti gegn því að gengið verði til kosninga í febrúar. Framsókn yrði með í þessum leiðangri.
Sá sem nær pólitíska frumkvæðinu sleppur við svarta Pétur.
![]() |
Vilja draga skattahækkanir til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 1. nóvember 2010
Stjórnmálastéttin feigðinni merkt
Almenningur knúði ríkisstjórn Geirs H. Haarde frá völdum með búsáhaldabyltingunni sem var sjálfsprottin hreyfing. Stjórnmálastéttin hefði betur hundskast til að læra af reynslunni, tekið til í sinum röðum og sammælst um ný vinnubrögð.
Gamla ónýta liðið hélt áfram klækjastjórnmálahefðinni. Jóhanna Sig. aldursforseti, Steingrímur J. með lengstan þingferilinn og Össur með æðstu gráðu í pólitískum subbuskap héldu sig hafa umboð til að haga sér eins og búsáhaldabyltingin hefði verið gegn einum stjórnmálaflokki öðrum fremur.
Búsáhaldabyltingin var gegn spillingu, sérgæsku og handvömm ónýtra stjórnmálamanna.
Jóhanna, Steingrímur J. og Össur reyna að slá skjaldborg um sig sjálf og fá stjórnarandstöðuna inn í stjórnarráðið. Hin raunverulega stjórnarandstaða er ekki á alþingi heldur á götum úti.
Kosningar strax er krafan.
![]() |
Hvetja atvinnurekendur til að gefa starfsfólki frí til mótmæla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 1. nóvember 2010
Kvosargrilla Guðmundar Andra
Útrásarauðmenn og meðhlauparar þeirra í listum og akademíu eru margir hverjir með annað tveggja búsetu eða starfsaðstöðu í Reykjavík 101; Jón Ásgeir, Hannes Smára; Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og félagi hans Hallgrímur Helgason og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur. Hrunkvöðlarnir eiga það sameiginlegt að telja sig starfa í almannaþágu þegar þeir maka krókinn.
Jón Ásgeir var sannfærður um að hann ynni í umboði þjóðarinnar þegar hann skóf að innan banka. Í dag skrifar Guðmundur Andri grein í blað Jóns Ásgeirs, Baugstíðindi, um að við ættum að ganga í Evrópusambandið til að hagur okkar neytenda vænkist.
Það liggur fyrir að göngum við í Evrópusambandið munum við greiða með okkur. Við munum greiða meira í sjóði sambandsins en við fáum tilbaka þar sem neytendur hér eru betur settir en að meðaltali í Evrópusambandsríkjum. Þessi staðreynd er margstaðfest, síðast gerði það aðildarsinninn dr. Magnús Bjarnason í Kastljósviðtali.
Neytendafrömuðurinn Guðmundur Andri gengur með þá kvosargrillu að ef skriffinnar í Brussel ákveða hvernig fjármagni sé útdeilt á Íslandi hljóti niðurstaðan að vera betri en ef ákvörðunin er tekin á Íslandi.
Kvosargrilla rithöfundarins er náskyld sjálfsblekkingu auðmannsins. Báðir telja sig starfa í þágu almennings en hvorugur gerir það.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)