Miðvikudagur, 16. desember 2015
RÚV er síðasta flokksútgáfan
RÚV er eftirlegukind frá þeim tíma þegar stjórnmálaflokkar stjórnuðu öllum fjölmiðlum landsins. Fréttastofa RÚV er enn rekin eins og flokksútgáfa vinstriflokkanna.
RÚV lærir ekki að fóta sig í gerbreyttu fjölmiðlandslagi og verður að mæta afleiðingunum.
Engin ástæða er til að liðka fyrir RÚV þegar stofnunin stendur sig jafn illa og raun ber vitni.
![]() |
RÚV-frumvarp fast í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 15. desember 2015
Björk leiði kosningabandalag Pírata og vinstriflokka
Píratar eru lykillinn að mögulegri vinstristjórn, segir Samfylkingar-Kjarninn í pólitískri fréttatilkynningu. Birgitta Jónsdóttir yrði á hinn bóginn kosningafæla og gæti ekki verið oddviti í slíku bandalagi.
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna er með það gegn sér að hún er hluti flokkanna sem þjóðin hafnaði í síðustu kosningum og ekki tekið í sátt síðan.
Björk Guðmundsdóttir gefur til kynna að hún sé tilkippileg í pólitík og gæti orðið utanþingssamnefnari Pírata og vinstriflokka. Birgitta er einlægur aðdáandi Bjarkar og það er alltaf byrjun.
![]() |
Gunnar Bragi frussaði í vandlætingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 15. desember 2015
Stóra múslímastríðið - fyrsti þáttur, bandalög
Múslímar skiptast í tvær meginútgáfur: súnnítar og shítar. Sádi-Arabar líta á sig sem höfuðpostula súnna en Íran er aðalvígi shíta. Bandalag Sáda við Tyrki og fleiri þjóðir er ekki gegn hryðjuverkum Ríkis íslam, þeir eru líka súnnar, heldur gegn Íran.
Hryðjuverkahóparnir, sem dreifa úr sér í Sýrlandi og Írak, eru aðeins yfirskin hernaðaruppbyggingar fyrir stóra múslímastríðið sem mun setja mark sitt á mið-austurlönd um fyrirsjáanlega framtíð.
Herfræðingurinn Edward Luttwak þakkar það George W. Bush forseta Bandaríkjanna að hrinda úr vör stríði súnna og shíta, sem ,,mun vara í þúsund ár. Algjör snilld." Bush hóf Íraksstríðið árið 2003. Síðan er viðvarandi stríðsástand í heimshlutanum.
Líkt og í 30-ára stríðinu sem lagði Evrópu í rúst á 17. öld, einkum Þýskaland, eru trúarbrögð átakalínur yfirborðsins. Undirliggjandi er áskorun olíuríkjanna að eina náttúrulega auðlind þeirra verður æ verðminni. Loftslagsráðstefnan í París skrifaði dauðadóm jarðefnaeldsneytis.
Arabaríkin sem lifa á olíu verða umbyltingu að bráð. Stríð, eins og dæmin sanna, flýta fyrir umbyltingu. Þrjátíu ára stríðið í Evrópu bjó í haginn fyrir þjóðríkjaskipulagið og iðnbyltinga. Þegar rykið sest á vígvellina í mið-austurlöndum í stóra múslímastríðinu eru við öll dauð sem spáum í úrslitin á öðrum áratug 21stu aldar.
![]() |
Hernaðarbandalag 34 landa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 15. desember 2015
Nóttin geymir stjórnarandstöðuna best
Vel fer á því að málþóf stjórnarandstöðunnar standi yfir að næturlagi. Stjórnarandstaðan talar út í tómið, án stefnu eða málefna. Austurvöllur er tómur enda nenna aðgerðasinnar ekki lengur að púkka upp á hryggðarmyndina sem er minnihlutinn á alþingi.
Stjórnarandstaðan veit upp á sig skömmina. Í vöku leggur hún til að utanþingsstjórn bjargi stjórnarandstöðunni frá því að axla ábyrgð.
Stjórnarandstaðan á alþingi Íslendinga kjörtímabilið 2013-2107 er sú lánlausasta í sögunni.
![]() |
Fundað til þrjú í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 14. desember 2015
Vinstriflokkar reyna fjárkúgun
Pólitísk fjárkúgun stjórnarandstöðunnar misheppnast með því að forsætisráðherra stendur fast á þeirri meginreglu að semja ekki við ófyrirleitna tækifærissinna.
Hótun stjórnarandstöðu um að slá Íslandsmet í málþófi verður henni sjálfri að fjörtjóni.
Stjórnarandstaðan er ekki með nein þau málefni sem eru henni skjól fyrir málþófið. Við blasir hreinn og klár vandalismi, tilgangslaus skemmdarverk. Forsætisráðherra vex með því að standa í ístaðinu og gefa ekki eftir gagnvart óaldarflokknum á alþingi.
![]() |
Við ætlum ekki að bjóða neitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 14. desember 2015
Vinstrimenn hætta í stjórnmálum - vilja utanþingsstjórn
Vinstri grænir og Samfylkingin eru með 9,4% fylgi. Báðir flokkar missa fylgi síðustu tvo mánuði. Fylgi Bjartrar framtíðar er stöðugt undir lágmarki til að fá fulltrúa kjörinn á alþingi, eða 4,6%.
Við þessar aðstæður stingur Róbert Marshall þingmaður fylgislausrar framtíðar upp á sameiningu vinstriflokkanna.
Stóra sameiningarmál vinstrimanna er að utanþingsstjórn taki völdin að loknum næstu þingkosningum. Tilboð vinstrimanna til þjóðarinnar: kjósið okkur til að aðrir stjórni landinu.
![]() |
Píratar og Framsókn bæta við sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 14. desember 2015
Öfgajöfnuður sem bitnar á konum
Til eru Íslendingar sem segjast ekki búa hér á landi vegna þess að jöfnuður er of mikill. Til dæmis Björn Eydal Davíðsson aem kennir jöfnuðinn við fákeppni: ,,Önnur birtingarmynd þessarar fákeppni, sem birtist bæði meðal fyrirtækja og einstaklinga, er jöfnuður, bæði í verðlagi og launum."
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vakti máls á því að mögulega er jöfnuðurinn kominn út í öfgar. Vinnandi fólk fær minna í laun en bótaþegar.
Einn angi öfgajafnaðar er kynjamisrétti. Í nafni jafnaðar er háskólamenntun gjaldfelld með því að laun menntaðs vinnuafls eru litlu hærri en ómenntaðs. Konur eru æ stærri hluti menntaða vinnuaflsins og verða því fyrir barðinu á þessari þróun á meðan ómenntaðir karlar hagnast.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 13. desember 2015
Dagur: stærstu mistök Samfylkingar
Án þess að ætla sér það bendir Dagur B. Eggertsson á stærstu mistök Samfylkingar þegar hann segir
Að mínu mati er lykillinn að því að ná góðum árangri í næstu kosningum að sækja í þennan gamla grunn sem Samfylkingin var stofnuð á; að vera breytingaafl, jákvæður og uppbyggilegur farvegur fyrir brýnustu breytingarnar sem þarf að gera í samfélaginu á grundvelli jafnaðarstefnunnar.
Almenningur hafnaði Samfylkingunni við síðustu þingkosningar vegna þess að flokkurinn ætlaði að farga stjórnarskránni og flytja fullveldið til Brussel.
Samfylkingin sem ,,breytingarafl" er annað orð yfir stjórnskipunarbyltingu. Það er einfaldlega engin eftirspurn er slíkri byltingu, nema hjá jaðarhópum samfélagins.
Samfylkingu sem ,,breytingarafli" fylgir orðræðan um ónýta Ísland. Réttlætingin fyrir að bylta og breyta er sótt í fordæmingu á því sem fyrir er.
Það segir heilmikla sögu um Dag B. sem stjórnmálamann að hann vill endurtaka stærstu mistök Samfylkingar og býst við allt annarri útkomu en síðast.
![]() |
Dagur B. stefnir ekki á formannsframboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13. desember 2015
Lygi, fullvissa og lífshætta
Enginn veit neitt með vissu um framtíðina, hvorki stjórnmálamenn, vísindamenn eða hversdagsfólk. Samt sem áður verjum við tíma okkar og fjármunum í ráðstafanir vegna framtíðarinnar.
Loftslagsráðstefnan í París, sem þykir marka tímamót, kveður á um tiltekin markmið í loftslagsmálum til næstu tíu til 15 ára. Forsendur ráðstefnunnar eru að maðurinn ráði miklu um loftslag jarðarinnar. Engu að síður er vitað að náttúrulegar sveiflur á loftslagi gerast án aðkomu mannsins og eru m.a. raktar til sveiflna í styrk sólarinnar. Engin vissa er fyrir því að stór og göfug markmið, gangi þau fram, muni breyta loftslagi á jörðinni til hins betra.
Ofmælt væri að segja að lygin ríkti ein í öllu sínu veldi þar sem ekki væri fullvissa. Það eru líkur, meiri eða minni, á tilteknar staðhæfingar séu sannar en aðrar ósannar.
Viðtekin sannindi eru oft aðeins þau sem breið samstaða er um að hafa fyrir satt. Til skamms tíma var það haft fyrir satt að múslímatrú og hryðjuverk væru tveir aðskildir hlutir. Ekki lengur. Æ fleiri hallast að þeirri skoðun að múslímsk trúarmenning veiti bæði réttlætingu og hvatningu til hryðjuverka. Voru fyrri sannindin þá lygi?
Oft er ekki langt á milli lygi og fullvissu. Hvort sem bilið er breitt eða mjótt vitum við að lífshættan liggur þar á milli.
![]() |
Allir stjórnmálamenn ljúga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 12. desember 2015
Vandræðalega gott ástand á Íslandi
Hagvöxtur, kaupmáttaraukning, nær ekkert atvinnuleysi, innanlandsófriður takmarkast við eirðarleysi góða fólksins; Ísland er í vandræðalega góðu standi.
Vandræðaleysið gerir toppurunum erfitt fyrir - þeir seilast sífellt lengra í himinblámann í leit að samjöfnuði þar sem hallar á Ísland.
![]() |
Hæstu launin á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)