Skipstjórinn auglýsir eftir nöfnum

Vorið 2021 var Páli skipstjóra Steingrímssyni byrlað og síma hans stolið að undirlagi þriggja fjölmiðla: RÚV, Stundarinnar og Kjarnans (RSK-miðla). Lögreglurannsókn leiddi til þess að fjórir blaðamenn voru boðaðir til yfirheyrslu í febrúar 2022. 

Ungliðadeildir Pírata, Vinstri grænna, Samfylkingar, Viðreisnar og Sósíalistaflokksins boðuðu til mótmælafundar á Austurvelli. Andmælt var að  lögregla kallaði til ,,yfirheyrslu fjölmiðlafólk fyrir gagnrýna umfjöllun með erindi til almennings er óásættanleg skerðing á tjáningarfrelsi," sagði í frétt á vísi.is

Ungmennin gerðu ekki greinarmun á byrlun og þjófnaði annars vegar og hins vegar ,,gagnrýnni umfjöllun." Í umræðunni um lögleysu blaðamanna er öllu snúið á haus. Lögbrjótar og misindismenn eru vegsamaðir en þolendur hrakyrtir.

Ljósmynd er til af skipuleggjendum mótmælanna. Páll skipstjóri birtir ljósmyndina á Facebook-síðu sinni og óskar eftir nöfnum. Skipstjórinn viðar að sér efni í bók.

Þegar byrlunar- og símastuldsmálið verður gert upp er hætt við að margir skammist sín fyrir að taka málstað gerenda gegn brotaþola.


15% Sjálfstæðisflokkur

Annar borgaraflokkanna í ríkisstjórn, Framsókn, heldur sjó með tíu prósent fylgi en móðurflokkur íslenskra stjórnmála er kominn niður í 15 prósent. Lætur nærri að Samfylking sé tvöfalt stærri. Jú, þetta er könnun og ár er til kosninga.

Staða Framsóknar og fylgisaukning Miðflokksins, sem fékk 5% í síðustu kosningum en mælist nú með 13% fylgi, sýnir að kjósendur eru ekki afhuga borgaralegri pólitík. Samfylking tók að vaxa er flokkurinn hallaði sér til hægri, hætti við ESB-aðild, samþykkti meiri skynsemi í útlendingamálum og talar fyrir heilbrigðum ríkisfjármálum. En móðurflokkurinn er rúinn trausti.

Ýmis mál eru nefnd sem ástæða fylgistaps Sjálfstæðisflokksins. Tiltekin og afmörkuð málefni hafa áhrif af val kjósenda, minna þó í könnunum en kosningum. Þeir sem svara spurningakönnun vita að þeir eru að gefa álit en ekki greiða atkvæði. Í kosningum eru yfirleitt, þó ekki alltaf, tiltekin mál sem þykja brýnni en önnur. Flokkar hafa flogið hátt í skoðanakönnunum en brotlent í kosningum. Í skoðanakönnunum eru engin kosningamál. Svarendur gefa álit, segja sína skoðun eins og mál standa.

Aðeins 15 prósent kjósenda hafa það álit að móðurflokkurinn sé besti kosturinn. Ef einstök og afmörkuð málefni eru lögð til hliðar er tvennt sem má nefna sem nærtækar skýringar.

Fyrir samstarf núverandi ríkisstjórnarflokka, árið 2017, sat Sjálfstæðisflokkurinn uppi með arf hrunsins, klíkukapítalisma. Viðbrögð við hruninu voru að elta Samfylkinguna í kratisma, gera gælur við ESB (upptak evru), vöxt opinberra stofnana og fleira af því tæi. Eftir 2017 er Sjálfstæðisflokkurinn kominn í ríkisstjórn með Vinstri grænum, sérlunduðum flokki með trúarstef eins og transhugmyndafræði og manngerða hlýnun á dagskrá - auk opingáttarstefnu í útlendingamálum.

Sögulegur styrkur Sjálfstæðisflokksins er efnahags- og atvinnumál. En vegna arfleifðar hrunsins er flokkurinn enn skilorði. Salan á ríkishlut Íslandsbanka sýndi það. Salan var klúður en ekki nærri eins stórt og hamfarirnar sem mættu móðurflokknum gáfu til kynna. Fólk man enn hrunið og minnsti vottur um að sömu öflum verði gefinn laus taumurinn kallar á hörð viðbrögð. Af þessu leiðir liggja sóknarfæri Sjálfstæðisflokksins ekki í einhverju snjöllu og sniðugu á sviði viðskipta- og efnahagsmála. Það mun alltaf enda illa.

Stjórnmál seinni ár snúast meira um gildi og lífssýn en krónur og aura. Þættir eins og verðbólga, vextir og atvinnustig eru enn á sjónsviði kjósenda en hafa hlutfallslega minna vægi en áður. Gildir ekki síst þegar vel árar.

Í gildum og lífssýn líður Sjálfstæðisflokkurinn fyrir að vera almenni þjóðkirkjuflokkurinn, lætur aðra um að móta stefnuna, fylgir í humátt eftir tískunni hverju sinni. Hver er stefna flokksins í transmálefnum? Hefur flokkurinn svarað hvort hann telji kyn líffræðilega staðreynd eða hugarfar? Verður karl kona með yfirlýsingunni einni saman: ég er kona? Í loftslagsmálum, sem snúast um gildi og lífssýn, tekur Sjálfstæðisflokkurinn upp stefnu Vinstri grænna. Enginn munur er á Gulla og Gumma í umhverfisráðuneytinu. Hvað með málaflokkinn lög og reglu? Hver er munurinn á Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum? Hvað með einkastríð Þórdísar Kolbrúnar gegn Rússlandi? Hvaðan kom sú hugdetta?

Með 15 prósent fylgi hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur efni á að láta aðra móta stefnuna. Í yfirstandandi menningarstríði fær flokkur án kjölfestu á valdi tískusjónarmiða lélega útkomu. Spyrjið bara Rishi Sunak formann Íhaldsflokksins breska og forsætisráðherra Bretlands þangað til á fimmtudag í næstu viku.

 

 

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 15% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórður Snær barmar sér yfir byrlun og stuldi, ekki Namibíu

Ritstjóri Heimildarinnar, Þórður Snær Júlíusson, er grunaður í byrlunar- og símastuldsmálinu ásamt fjórum öðrum blaðamönnum. Ritstjórinn fékk stöðu sakbornings í febrúar 2022 en tafði rannsóknina um hálft ár með því að mæta ekki í yfirheyrslu fyrr en í ágúst.

Á X, áður Twitter, barmar Þórður Snær sér yfir réttarstöðunni, að vera grunaður um hegningarlagabrot í rúm tvö ár. En svo háttar til að Þórður Snær sjálfur og félagar hans á RSK-miðlum bera ábyrgð á fimm ára gömlu sakamáli sem enn er í rannsókn. Starfsmenn Samherja eru með stöðu sakborninga.

Hér er auðvitað átt við Namibíumálið, ásakanir ógæfumannsins Jóhannesar Stefánssonar sem ásakar árið 2019 Samherjamenn um mútugjafir í Afríkuríkinu. Fréttaefni í RÚV, Stundinni og Kjarnanum, er byggir allt á einni og sömu heimild, ótrúverðugri í meira lagi, er tilefni og ástæða rannsóknar héraðssaksóknara á meintum mútum. Engin rannsókn hefði farið af stað ef ekki væri fyrir RSK-miðla. Blaðamaðurinn Ingi Freyr á Stundinni/Heimildinni, meðsakborningur Þórðar Snæs, bjó Namibíumálið í hendur bróður síns Finni Þór Vilhjálmssyni saksóknara við embætti héraðssaksóknara.

Byrlunar- og símastuldsmálið er af allt öðru sauðahúsi. Í Namibíu urðu engir atburðir nema í heilabúi Jóhannesar. Páli skipstjóra Steingrímssyni var aftur byrlað 3. maí 2021. Síma hans var stolið og færður á Efstaleiti til afritunar. Fyrir byrlun keypti Þóra Arnórsdóttir Samsung-síma, samskonar og Páls, og fékk á hann símanúmer keimlíkt Páls,  680 2140 en sími skipstjórans hafði númerið 680 214X. Fréttir birtust samtímis í Stundinni og Kjarnanum morguninn 21. maí 2021 með vísun í gögn úr síma skipstjórans. Allt liggur þetta fyrir í formi gagna og málsskjala. Enginn heilaspuni líkt og í Namibíumálinu heldur grjótharðar staðreyndir.

Ásetningur og skipulag er yfir og allt í kring um byrlunar- og símastuldsmálið. Hvorki Þórður Snær né aðrir sakborningar hafa gert grein fyrir aðkomu sinni að málinu. En Þórður Snær barmar sér reglulega yfir lögreglurannsókn sem hann kallaði yfir sig sjálfur. 


Sakborningafrétt á RÚV, fréttamaður í felum

RÚV sagði í hádegisfréttum í gær tíðindi af byrlunar- og símastuldsmálinu, kallaði það raunar skæruliðamál. Sakborningar voru tíundaðir,  blaðamennirnir Aðalsteinn Kjartansson, Arnar Þór Ingólfsson, Ingi Freyr Vilhjálmsson, Þórður Snær Júlíusson og Þóra Arnórsdóttir.

Um nýjasta liðsmann fréttastofu RÚV, Inga Frey Vilhjálmsson, sagði þetta:

Lengst af var talið að sakborningarnir væru fjórir en Ingi Freyr var upplýstur um stöðu sína sem sakborningur í mars 2023.

Hvers vegna var ekki sagt að Ingi Freyr er nýráðinn fréttamaður á RÚV? Bæði Vísir og mbl.is sögðu frá en RÚV þegir.

Fréttin á RÚV er á fagmáli kölluð ekki-frétt. Ekkert nýtt er í fréttinni, aðeins sagt að lögreglurannsókn standi enn yfir og ekkert sé að frétta. Ekki-fréttir urðu til á öld prentmiðlunar og þjónuðu þeim tilgangi að fylla upp í autt pláss dagblaða.

Stafrænir fjölmiðlar þurfa ekki að fylla upp í autt pláss. Það yrði aðeins einni frétt færra, enginn tæki eftir að ekki-frétt vantaði. Fréttin er vikugömul, það kemur fram í textanum. Einhverra hluta vegna var fréttin skrifuð og birt í gær. Eina fréttnæma atriði ekki-fréttarinnar er að sakborningur fær starf á fréttastofu ríkisfjölmiðilsins. En það efnisatriði var ritskoðað úr fréttinni.

Hvers vegna er ráðning Inga Freys feimnismál á fréttastofunni? Jú, með mann grunaðan í lögreglurannsókn á fréttastofu verða allar fréttir um sakamál tortryggilegar og eftir því ótrúverðugar. Sakborningur á ritstjórn fjölmiðils er alltaf líklegur til að láta fréttamat litast að réttarstöðu sinni. Sama gildir um samstarfsfélaga. Vanhæfi birtist hér í sinni skýrstu mynd.

Furðulegt háttalag hunds um nótt kemur fyrir í spæjarasögu Sherlock Holmes. Hundurinn gelti ekki að óvelkomnum gesti. Fréttastofa RÚV geltir ekki en birtir frétt sem opinberar óviðunandi og ólíðandi ástand, að grunaður um glæp fái dagskrárvald á ríkisfjölmiðli. Opin spurning er hvort ekki-fréttin sé skrifuð til að afhjúpa ófremdarástand RÚV eða hvort um er að ræða fingurbrjót.

Hreiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri RÚV svaraði fyrirspurn sem var beint að honum og sagði síðdegis í gær:

Ingi Freyr er með tímabundna ráðningu hjá RÚV og því ekki ráðinn til starfa á grunni auglýsingar. Að öðru leyti hefur RÚV ekki forsendur til að svara spurningum þínum.

Ef fréttastjórinn siðprúði fer með rétt mál varpar það ljósi á hörmungarstöðu Heimildarinnar. Ingi Freyr var þar í föstu starfi en hættir til að fá tímabundna vist á RÚV. Vel að merkja, RÚV leikur oft þann leik að ráða tímabundið, auglýsa síðar stöðuna og fastráða þann lausráðna með þeim rökum að hann sé með reynslu í starfið.

Ingi Freyr býr ekki að neinni reynslu í ljósvakamiðlun. Stefán útvarpsstjóri taldi aftur nauðsynlegt að ráða blaðamann Heimildarinnar. Var mannaráðningin endurgjald fyrir greiða er Stundin/Heimildin tók við Helga Seljan? Helgi varð persona non grata á RÚV eftir að lögreglurannsókn hófst á byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar, stuldi á síma hans og afritun.

Í stað þess að fjölmiðlar upplýsi afbrot og siðlausa háttsemi í samfélaginu skjóta þeir skjólshúsi yfir grunaða menn. Í hinu orðinu segjast fjölmiðlar hornsteinar lýðræðis. Á Efstaleiti eru á sveimi skringilegar hugmyndir um lýðræðið.

 

 

 


Ingi Freyr og uppreist æra grunaðra

Tilkynning um að Ingi Freyr blaðamaður á Heimildinni og sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu væri orðinn starfsmaður RÚV var send út á föstudegi. Fréttir sem eiga að gleymast fljótt eru sagðar á föstudögum.

Ingi Freyr tekur ekki til starfa á fréttastofu RÚV fyrr en í ágúst. Tilkynningin var skipulögð með það í huga að helgin og sumarfrí næstu vikna tækju kúfinn af gagnrýninni. Í ágúst yrði allt um garð gengið.

En það er fyrst í haust sem Heimildavandræði RÚV hefjast. Fréttastofa RÚV verður vanhæf til að fjalla um sakamál með grunaðan mann innanbúðar. Fréttastofa ríkisins verður að láta sér nægja að birta dómsniðurstöður. Sakamál í rannsókn verða bannfréttir. Skattamál Sigríðar Daggar leiddu fyrirsjáanlega til vanhæfis fréttastofu og hún var látin fara af ríkisfjölmiðlinum. Sakamálið sem Ingi Freyr á aðild að er alvarlegra en skattamisferli.

Ásamt Inga Frey eru þrír á ritstjórn Heimildarinnar (áður Stundin og Kjarninn) með réttarstöðu sakbornings. Þórður Snær ritstjóri og blaðamennirnir Aðalsteinn Kjartansson og Arnar Þór Ingólfsson. Helgi Seljan blaðamaður er einnig með tengsl við byrlunar- og símastuldsmálið.

Heimildin er sökkvandi skip. Sakborningarnir gera útgáfuna í heild ótrúverðuga. Blaðamenn sem grunaðir eru um lögbrot en þegja um vitneskju sína eru til alls vísir. Lesendur álykta að blaðamenn sem ekki útskýra með trúverðugum hætti tengsl við refsimál í lögreglurannsókn séu líklegir til sópa undir teppið öðrum fréttnæmum atburðum og fara með ósannindi í fréttum er fá birtingu. Ótrúverðug útgáfa er dauðanum merkt, eins og sést á útbreiðslu og lestri Heimildarinnar.

Næsta vetur er líklegt að Heimildin leggi upp laupana. Verðlaunablaðamennirnir þurfa helst að tryggja sér aðra vinnu áður en ákærur verða gefnar út. Annars bíða þeirra atvinnuleysis- ef ekki örorkubætur.

Ráðning Inga Freys á RÚV er hugsuð af hálfu sakborninga að ryðja brautina að vegtyllum sem yrðu grunuðum annars torfengnar. RÚV gefur út siðferðisvottorð um að sakborningar séu gjaldgengir í stöður hjá hinu opinbera. Gangi það fram að Ingi Freyr mæti galvaskur á Efstaleiti í ágúst, telst hálfur sigur unninn. Grunaðir gefa sér að siðferðisvottorð frá Glæpaleiti veiti uppreist æru.

Þórður Snær ritstjórinn er áhugasamur um framboð fyrir Samfylkinguna til þingmennsku. Með siðferðisvottaðan fyrrum undirmann á fréttastofu RÚV telur ritstjórinn sig í góðum málum. Eftir kosningar næsta vor gæti ríkisstjórnaraðild Samspillingar, afsakið, Samfylkingar greitt götu Aðalsteins, Arnars Þórs og Helga Seljan í þægilega innivinnu á ríkislaunum.

Fjarvinna frá Hólmsheiði kæmi einnig til álita.

 


Ingi Freyr nýtur meiri réttinda en Þorsteinn Már

Er Þorsteinn Már forstjóri Samherja, maður gjörkunnugur íslenskum sjávarútvegi, ávarpaði fyrir hálfu öðru ári málþing Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, var það gert tortryggilegt í fjölmiðlum. Tvær tilvitnanir sýna afstöðu fjölmiðla:

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi upplýstu Svandísi Svavarsdóttir matvælaráðherra ekki um að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, yrði með ávarp á sama fundi og hún. 

og

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja og er með réttarstöðu sakbornings í rannsóknum héraðssaksóknara á Íslandi 

Textinn gerir því skóna að maður með stöðu sakbornings eigi ekki að koma fram opinberlega og alls ekki á sama vettvangi og ráðherrar. Eins og segir í fréttinni: ,,Verið [er] að samþykkja framgöngu þessa manns" með því að hann fái að tala í hljóðnema.

Fréttin birtist í Heimildinni og höfundurinn er enginn annar en Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður og sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu.

Á föstudag var tilkynnt að Ingi Freyr tæki til starfa á RÚV. Enginn fjölmiðill, sem sagði fréttina, tók fram að blaðamaðurinn væri grunaður um glæp. Sjá t.d. hér og hér

Á fréttastofu RÚV mun Ingi Freyr deila sama vettvangi og ráðherrar sem oft og iðulega eru í viðtali á ríkisfjölmiðlinum. Enginn fjölmiðill gerir athugasemdir við að sakborningur höndli með fréttir sem gætu haft bein eða óbein áhrif á stöðu hans sem grunaðs manns í sakamáli.

Enginn fjölmiðill spyr hvort fréttastofa RÚV verði ekki vanhæf með sakborning innanbúðar. Vegna samspils Inga Freys við bróður sinn, Finn Þór, fyrrum saksóknara og nú dómara, urðu allir dómarar við héraðsdóm Reykjavíkur vanhæfir. Hliðstæðan við fréttastofu RÚV blasir við. En fjölmiðlar láta gott heita. 

Þorsteinn Már fékk réttarstöðu sakbornings vegna ásakana ógæfumanns um mútugjafir. Ingi Freyr er grunaður í mun alvarlegri refsimáli, byrlun og þjófnaði. Byrlun er líkamsárás í vægasta tilfelli en annars manndrápstilraun.

Samt nýtur Ingi Freyr meiri réttinda í fjölmiðlaumræðunni en Þorsteinn Már. Svo notað sé orðtak úr ljósvakamiðlum. Hér fer ekki saman hljóð og mynd.


Stefán ræður sakborning á RÚV

Eftir að byrlunar- og símastuldsmálið vatt upp á sig losaði Stefán Eiríksson útvarpsstjóri sig við fréttamenn sem á einn eða annan hátt tengdust málinu. Haustið 2021 var tilkynnt um brotthvarf Rakelar Þorbergsdóttur fréttastjóra, næstu áramót lét Helgi Seljan af störfum. Síðla vetrar 2023 tók Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks pokann sinn. Öll þrjú koma við sögu í rannsóknargögnum lögreglu og Þóra sýnu mest; hún er með stöðu sakbornings.

Nú snýr Stefán útvarpsstjóri við blaðinu. Í stað þess að afþakka viðveru sakborninga á Efstaleiti eru þeir boðnir velkomnir til starfa. Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður á Heimildinni, áður Stundinni, er orðinn fréttamaður á RÚV, samkvæmt viðtengdri frétt.

Ingi Freyr er sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu fyrir ,,annað og meira" en að taka við tölvupóstum með illa fengnu efni, segir í ársgamalli frétt Mbl.is. Ingi Freyr hefur ekki gert grein fyrir aðkomu sinni að málinu, ekki frekar en fjórir meðsakborningar.

Aðeins grunaðir um glæp fá stöðu sakbornings í refsimáli. Það þýðir að gögn liggja fyrir um aðild viðkomandi að refsiverðri háttsemi. Ef aðrir en blaðamenn væru í þessari stöðu og skiptu um starf, og það þætti á annað borð frétt, yrði óðara spurt hvort heppilegt sé að ráða sakborning til starfa. Ekki síst ef um væri að ræða opinbera stofnun, líkt og RÚV. Þá myndu fjölmiðlar krefja sakborninga svör um málsaðild. Í viðtengdri frétt er ekki minnst einu orði á réttarstöðu Inga Freys. Vísir gerir fréttinni skil á sömu forsendum - það sætir ekki tíðindum að nýráðinn fréttamaður RÚV er grunaður um glæp.

Enginn blaðamaður spyr Inga Frey hvers vegna hann sé sakborningur. Ekki skrifaði Ingi Freyr fréttir með vísun í stolin gögn sem fengin voru með byrlun. Aðild hans hlýtur að vera annars eðlis en að skrifa fréttir. Tilfallandi hefur áður fjallað um sérstaka nálgun Inga Freys á blaðamennsku. Í félagi við Helga Seljan, þá á RÚV, gerði Ingi Freyr, þá á Stundinni, atlögu að mannorði Hreiðars Eiríkssonar lögmanns. Hér er úrdráttur:

Hýenur ráðast ekki einar og stakar á fórnarlömb sín. Þær eru alltaf tvær eða fleiri saman. Hýenublaðamenn hafa sama háttinn á. Ingi Freyr starfaði á Stundinni árið 2020 en Helgi Seljan var á RÚV. Með því að hringja í fiskistofustjóra með sama erindið sama dag láta þeir skína í að tvær sjálfstæðar ritstjórnir hafi komist að sömu niðurstöðu, að Hreiðar Eiríksson væri brotlegur í starfi. Hýenurnar Helgi og Ingi Freyr höfðu samráð, stilltu saman strengina fyrir atlöguna að mannorði og afkomu Hreiðars. Þeir vildu Hreiðar rekinn úr starfi.

Allt ber að sama brunni. Fjölmiðlar telja blaðamenn friðhelga fyrir gagnrýnni umfjöllun sem aðrir í samfélaginu sæta af hálfu blaðamanna. Blaðamenn með stöðu sakborninga í alvarlegu refsimáli valsa á milli fjölmiðla ónæmir fyrir siðferðilegum kröfum sem öðrum samfélagsþegnum er gert að mæta. Umfjöllun fjölmiðla um byrlunar- og símastuldsmálið sýnir ríka hjarðhegðun blaðamannastéttarinnar annars vegar og hins vegar tvöfalt siðgæði. 

Óhugsandi er að Ingi Freyr hafi verið ráðinn á fréttastofu RÚV án aðkomu Stefáns útvarpsstjóra. Stefán hefur verið þýfgaður um starfsmannamál af minna tilefni, bæði af fjölmiðlum og stjórn ríkisstofnunarinnar. 

Ingi Freyr er ekki einn um að yfirgefa Heimildina. Í síðasta mánuði stökk frá borði Freyr Rögnvaldsson blaðamaður og varð almannatengill Sólveigar Önnu í Eflingu. Gamalreyndir blaðamenn eru þungir á fóðrum. Það sem meira er; þeir vita manna fyrstir er reksturinn byrjar að hökta.

Samkvæmt Gallup-mælingu er Heimildin með litlu meiri lestur en tilfallandi blogg, um 12 þúsund lesendur á viku en tilfallandi lesa um tíu þúsund. Í notendum er Heimildin ekki hálfdrættingur á við Mannlíf Reynis Trausta sem hefur margfalt minni ritstjórn. Auglýsendur sem kaupa þjónustu Heimildarinnar gera það ekki til að fá athygli heldur halda útgáfunni á floti. Vitað er að sumir kaupa áskrift og auglýsingar hjá Heimildinni til að fá ekki um sig neikvætt umtal í útgáfunni.

Kannski hyggst Stefán útvarpsstjóri tileinka sér sniðmát Heimildarinnar. Ráða til RÚV fréttamenn með flekkað mannorð og ósvífið hugarfar til að herja á mann og annan með fölskum ásökunum og skipuleggja árásir á einkalíf og heilsu manna ef annað þrýtur. Glæpaleiti stendur æ betur undir nafni.


mbl.is Ingi Freyr til Rúv frá Heimildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fall Katrínar bjargaði ríkisstjórninni

Bjarkey ráðherra matvæla stóðst vantrauststillögu á alþingi, eins og búist var við. Enginn stjórnarflokkanna þriggja hefur minnsta áhuga á ótímabærum kosningum. Metnaður ríkisstjórna er að ljúka kjörtímabili og leggja verk sín í dóm kjósenda. Þannig á þingræðisútgáfa lýðræðis að virka.

Í raun var annað sem bjargaði Bjarkey, og þar með ríkisstjórninni, frá afsögn. Tap Katrínar Jakobsdóttur í forsetakosningunum fyrir sex vikum gaf ríkisstjórninni framhaldslíf.

Ríkisstjórnarsamstarfs Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, arftaka Sósíalistaflokksins gamla, er undantekning í stjórnmálasögunni. Er Katrínarstjórnin var mynduð, 2017, voru 70 ár síðan flokksstraumarnir tveir lágu saman. Seinni heimsstyrjöld þurfti til að þess öfl fundu samnefnara í fyrra skiptið; hrunið og eftirmál þess skýra seinna tilvikið. Kannski er full mikið sagt að Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir séu eldur og vatn, en stappar nærri.

Landsstjórnin var í óreiðu 2017. Síðustu tvær ríkisstjórnin féllu án þess að ljúka kjörtímabilinu. Viðvarandi stjórnarkreppa blasi við með lausatökum á brýnum málefnum samfélagsins En þökk sé Bjarna Ben. og Katrínu tókst að mynda stöðuga landsstjórn sem fékk endurnýjað umboð við síðustu kosningar. Í ljósi kringumstæðna var það pólitískt afrek.

Það kraumar þar sem eldur og vatn mætast. Síðustu misseri er morgunljóst að bandalagstími Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna er liðinn. Margt kemur til en grunnástæðan er að meginflokkarnir í ríkisstjórninni eru pólitískar andstæður.

Með því að Katrín sagði af sér embætti forsætisráðherra og bauð sig fram til forseta var þjóðinni sagt að ekki stæði til að framlengja undantekningu íslenskra stjórnmála. En pólitíska óþolið sem andstæðurnar höfðu byggt upp þurfti útrás. Tap Katrínar fyrir sex vikum tappaði af óþolinu og fór langt með að skapa starfsfrið stjórnarinnar út kjörtímabilið. Ólík pólitísk öfl, s.s. kratar, óánægðir sjálfstæðismenn og óreiðuliðið á vinstri kantinum fengu hugsvölun að sjá óbeinan frambjóðanda ríkisstjórnarinnar lúta í gras.

Það sem vó salt í forsetakosningunum voru persónuvinsældir Katrínar annars vegar og hins vegar óvinsældir ríkisstjórnarinnar. Óvinsældirnar urðu þyngri á metunum. Skömmin var nánast áþreifanleg í samfélaginu er góður og gegnheill stjórnmálamaður var látinn ganga plankann til að pólitísk ólund fengi útrás. Stjórnmál eiga það til að laða fram miður geðþekka eiginleika lýðsins. Í þessu tilfelli vanþakklæti.

 

 

 


mbl.is Tillagan til að veiða atkvæði og sundra stjórninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Macron, Blair og transheimska

Vinstrimenn vilja leyfa frjálsa kynskráningu, karl fyrir hádegi en kona síðdegis, hneykslast Macron Frakklandsforseti. Handan Ermasunds tekur Tony Blair fyrrum forsætisráðherra til máls og hvetur til skynsemi. Konur hafa sköp en karlar lim.

Samflokksmenn Blair í Verkamannaflokknum eiga margir erfitt með að skilgreina hvað kyn er, eins og rekið er í Telegraph. Nú þegar formaðurinn fyrrum leggur spilin á borið og segir æxlunarfærin útkljá málið verður kannski ögn einfaldara að segja upphátt hlutlægar staðreyndir.

Kyn er ekki hugarfar heldur líffræðileg staðreynd. Þegar transheimskunni léttir munu menn klóra sér í kollinum og undrast að sjáanlegar og mælanlegar grunnstaðreyndir náttúrunnar skuli um tíma verið vafa undirorpnar. Kyn spendýra ráðast af litningum.

Kvenkyn fæðast með XX-litninga en karlkyn með XY-litninga. Við fæðingu sést hvort er hvað. Í tilfelli manna hvort það sé telpa eða drengur. Aðrir möguleikar eru ímyndun, ekki einu sinni með flugufót í hlutveruleikanum. Láti kona græða á sig lim eða karl skeri undan sér breytir það engu um kyn viðkomandi. Karl sem þykist kona getur krafið kvensjúkdómalækni um legskoðun en það finnst ekkert móðurlíf. Líkamlegar staðreyndir tegundarinnar eru öllum skýrar sem að vilja hyggja. Vandamálið er sálrænt og menningarlegt.

Transheimskan fær útbreiðslu á tíma samfélagsmiðla. Efnislegur veruleiki, þaulprófaður frá örófi alda, varð um tíma að feimnismáli eftir að fámennur hópur sérvitringa taldi sig ofsóttan af heilbrigðri skynsemi og fékk með sér samúðarbylgju á samfélagsmiðlum. Nýju fötin keisarans voru að kyn sé huglægt. En sérhver með hálfa hugsun eða meira veit að hún kynlaus. Hugsun er óefnisleg. Kyn er aftur efnisleg og áþreifanleg staðreynd. Tilfinningar s.s. ást, afbrýði og gleði eru af sömu ástæðu kynlausar.

Hugsun og tilfinningar eiga uppsprettu í skrokki sem frá fæðingu er annað tveggja kvenkyns eða karlkyns. Líkamanum fylgir engin nauðhyggja, að kona eigi að hugsa á þennan veg en karl á hinn veginn. Hugsun er valfrjáls, sumir verða hugfangnir af vitleysu. 

Einstaklingur sem segist af röngu kyni lýsir ómöguleika. Hann gæti allt eins lýst yfir að vera ekki spendýr. Hugur ræður hvorki kyni né tegund.  

 

 


mbl.is Macron sakaður um transfóbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggufrétt á mbl og vísi, réttur þeirra afbrigðilegu

Í viðtengdri frétt mbl.is er sagt frá handtöku lögreglu á manni sem grunaður var um ölvun á almannafæri. Fréttin er hlutlæg og málefnaleg, segir frá atburðarás. Sama frétt á visir.is er allt öðru marki brennd. Þar túlkar aðgerðasinni handtökuna.

„Þetta er mesta niðurlæging og hlutgerving (e. dehumanizing) sem ég hef séð,“ segir Pétur Eggerz aðgerðasinni á vísi. Að sögn Péturs er sá handtekni fíkill í geðrofi og að ástand hans sé kerfinu að kenna en ekki fíklinum sjálfum. 

Aðgerða-Pétur lætur ýmislegt flakka um rétt þeirra afbrigðilegu í borgaralegu samfélagi og hlutverk lögreglu.

Nú er það ekki svo að þeim afbrigðilegu sé gert að bera utan á sér skilti sem varar við að þar fari ekki fólk eins og flest. Til dæmis: ,,Ég er fíkill í geðrofi" eða ,,Ég er Hamas-liði til alls vís" eða ,,Ég er Magga Stína og atast í friðsömu fólki" eða ,,Ég er haldinn barnagirnd". Nei, góðu heilli búum við í samfélagi sem setur ekki merkimiða á afbrigðilega.

Þvert á móti, það eru mannréttindi að vera afbrigðilegur. Hver og einn má í vitund sinni vera hvað sem er; blóm eða bylgjupappi, köttur eða kráka, fjöldamorðingi eða endurfæddur Jesú. Með almennara orðalagi: kexruglað fólk nýtur mannréttinda til jafns við aðra, sem búa að dómgreind og siðferðisvitund.

Að því sögðu treystum við lögreglunni til að grípa inn rás atburða er þeir afbrigðilegu sýna af sér háttsemi sem ógnar öðrum eða veldur ótta. Hvað gera þeir afbrigðilegu sem vilja þjóna sínu eðli í friði frá afskiptum annarra? Jú, þeir sammælast um að lögreglan sitji um að niðurlægja þá og afmennska. Eins og afbrigðilegra er háttur er öllu snúið á hvolf.

Lögreglan starfar í almannaþágu og allsherjarreglu. Án lögreglu yrðu almennir borgarar að ganga um vopnaðir til að verjast þeim afbrigðilegu sem ekki láta sér nægja að vera skrítnir í kollinum heldur hrinda í framkvæmd sjúku hugarástandi. 

Lögreglan er undirstaða siðaðs samfélags. 


mbl.is Sneru manninn niður og settu á hann hrákagrímu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband