Helga Vala veðjar á hælisiðnaðinn

Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar endurnýjar lögmannsréttindi sín, segir í frétt á Vísi. Líklega sér þingmaðurinn viðskiptatækifæri í hælisiðnaðinum. Ferðaskrifstofur flytja fólki til landsins sem sækja um hæli og fá við það lögmannsþjónustu sem greidd er af ríkinu.

Stallsystir Helgu Völu, Arndís Anna Pírataþingmaður, stökk á tækifæri til að leika tveim skjöldum. Tilfallandi blogg frá í vor:

Arndís Anna K. Gunnarsdóttir þingmaður Pírata úthlutar almannagæðum, ríkisborgararétti, til skjólstæðinga sinna sem kaupa af þingmanninum lögfræðiþjónustu. Arndís Anna stundar einkarekstur sem lögfræðingur og færir skjólstæðingum sínum íslenskan ríkisborgararétt sem þingmaður.

Einkahagsmunir lögfræðingsins eru að skapa verðmæti fyrir kaupendur þjónustu. Þingmaðurinn skaffar þau gæði. Þegar lögfræðingurinn og þingmaðurinn eru einn og sami einstaklingurinn, Arndís Anna, er á ferðinni spilling í sinni tærustu mynd.

Helga Vala gefur enga skýringu á endurnýjun réttinda. ,,Helga Vala vildi ekki tjá sig um málið," segir í fréttinni á Vísi. Þingmennska gengur út á að tala í tíma og ótíma, jafnvel um mál sem viðkomandi hefur ekkert vit á. Þingmaður sem vill ekki tjá sig hefur vanalega eitthvað að fela.

 


Meðvitund og kynvitund, sami hluturinn

Meðvitundin er aðeins aðgengileg þeim sem býr að henni. Ein meðvitund hefur ekki beinan aðgang að annarri. Að því leyti er stök meðvitund lokað kerfi.

Maður ályktar um meðvitund annarra út frá fasi, framkomu og orðræðu. Sá sem talar ruglingslega er sennilega í uppnámi ef ekki í verra ástandi. Elskendur horfast í augu og finna ástarhug en komast aldrei inn í aðra meðvitund en sína eigin. Reiðisvipur er túlkaður þannig að sá sem hann hefur sé gramur, í það minnsta í þykjustunni.

Að lesa í meðvitund annarra þykir svo mikilvægur eiginleiki að þeir sem slakir eru fá sjúkdómsgreiningu.

Meðvitundin er ekki með sérstakt hólf fyrir kynhugsun eða kyntjáningu. Ekki frekar en að meðvitundin hafi sérherbergi fyrir fegurðarskyn, réttlætiskennd eða löngun til að veiða silung í Elliðavatni.

Meðvitundin er í senn einangruð við þann sem hana hefur og altæk, verður ekki smættuð í einingar til frekari rannsóknar. Allt er þetta vitað frá 17. öld er tekið var til að hugsa fræðilega um vitundarlífið. Frakkinn og fjölfræðingurinn Descartes orðaði hvað skýrast eðli og einkenni meðvitundarinnar. Cogito, ergo sum. Ég hugsa, ég er.

Hver þremillinn, kynni einhver að segja, vísindi samtímans hljóta að geta gert betur en einhver dúddi á 17. öld, þótt franskur sé og íhugull. Svarið er nei.

Heilasérfræðingurinn og geðlæknirinn Iain McGilchrist skrifaði doðrant um samspil vinstri- og hægri heilahvels (það er flókið). Bókin var tuttugu ár í smíðum. Hér skrifar hann um þekkingu okkar á meðvitundinni, bls. 19:

Er meðvitundin afurð heilans? Eina örugga svarið við spurningunni er að hver sem telur sig hafa öruggt svar - hefur örugglega rangt fyrir sér. Við höfum aðeins hugmyndir um meðvitundina og heilann til að vinna með; eina sem við vitum fyrir víst er að þær hugmyndir eru afurð meðvitundarinnar. Þetta er, vísindalega talað, mun öruggara en að meðvitundin sé afurð heilans.

Ekki jafn snjallt og orðfæri Descartes en segir sömu sögu.

Meðvitundin býr í heilanum þótt hún sé ekki endilega afurð hans. Heiladauður maður er meðvitundarlaus.

Í meðvitundinni verða til aðskiljanlegar langanir. Einhvern langar í kaffi, annan í tölvuleik, þann þriðja í útilegu og svo framvegis. Langanir spretta fleiri upp, hjá flestum, en hægt er að ráða við. Ævina á enda stendur yfir glíman við langanir og forgangsröðun þeirra. Sumar langanir eru skaðlegar, t.d. í fíkniefni, en aðrar saklausar; kaffibollinn.

Hafi maður löngun í eitthvað, sem er manni óhollt eða veldur öðrum skaða, er freistandi að telja sér trú um að látið sé undan lönguninni af nauðsyn. Ef frá er talin sú nauðsyn halda líkamanum gangandi með fæðu er, strangt tekið, engin nauðsyn í lífinu. 

Nú þegar eðli og einkenni meðvitundarinnar liggur fyrir má slá einu föstu. Sá sem segist ,,upplifa" sig í röngum líkama tjáir löngun en ekki röklegt samhengi hlutanna. Hugsanlegt er, og raunar dæmi um, að einhver vilji kynbreyta sjálfum sér. Það er löngun en ekki nauðsyn. Lögráða einstaklingur má gera hvað hann vill við líkama sinn, fá sér tattú eða skera undan sér. Láta undan löngunum sínum, brjóti hann ekki á öðrum.

Börnum og unglingum ætti aftur að halda utan við kynbreytingapælingar byggðar á löngun. Á æskuskeiði er altítt að ein löngun sé ráðandi fyrir hádegi en önnur síðdegis. Hlutverk fullorðinna er að sjá til þess að ungviðið valdi sér ekki óbætanlegum skaða með heimskulegum hugdettum. Kallast uppeldi. 

Meðvitundin er órjúfanlega tengd líkama þess sem hana hefur. Tal um þessa og hina vitundina, eins og meðvitundin sé safnhaugur margra vitunda, er merkingarlaust þvaður. Meðvitundin er heil og óskipt hjá þeim sem býr að henni. Meðvitundin er ekki til utan líkamans sem hýsir hana - líkami án meðvitundar er lífvana.

Það er á forræði handhafa meðvitundar að hugsa vitrænt eða vitleysu, ráða við langanir sínar og stilla þeim í hóf eða gefa þeim lausan tauminn. Einstaklingur þræll langana sinna og á valdi ranghugmynda er ekki á góðum stað í lífinu.

 

 

 


Skrítin frétt um hatur og fordóma

Morgunblaðið fjallaði um útilokun Samtakanna 22 frá opinberum vettvangi og hvernig Sigmundur Davíð kom mál- og fundafrelsinu til bjargar og leigði samtökum homma og lesbía sal Miðlokksins.

Frétt Morgunblaðsins um Sigmund Davíð birtist í fyrradag með fyrirsögninni Ógnað fyrir að hýsa fund um mannréttindamál.

Í gær var framhaldsfrétt um málið. Áhugavert, hugsaði tilfallandi lesandi, nú ætlar blaðamaður Morgunblaðsins að fá viðbrögð frá talsmönnum trans-aðgerðasinna sem skipulega reyndu að koma veg fyrir að Samtökin 22 fengu haldið málþing og ógnuðu í ofanálag formanni Miðflokksins fyrir það eitt að leiga fundarsal.

En fréttin í gær, sem er viðtengd blogginu, er hvorki um mál- og fundafrelsi né um trans-hugmyndafræðina. Fyrsta setning fréttarinnar er svohljóðandi:

Formaður Hinsegin daga segir það vera sorglegt ef transhatur verði „útflutningsgrein Miðflokksins“.

Fréttin í heild sinni er breiðsíða gegn Miðflokknum og formanni hans og meintu ,,transhatri."

Í fréttinni allri er ekki aukatekið orð um málefnið; hvort á Íslandi sé mál- og fundafrelsi til að ræða samfélagsleg málefni. Hvort það sé í lagi að þeim sé úthýst sem efast um transmenninguna.

Transhugmyndafræði vex og dafnar í skjóli þagnar. Börn eru helstu þolendur. Transtalsmenn þræða ekki Rótarýklúbba, fara ekki á Kiwanisfundi eða aðskiljanleg félög fullorðinna með boðskap sinn. Fullorðnir sjá fremur í gegnum blekkinguna en börn og óharðnaðir unglingar. Hjá ungviðinu má aftur fóstra ranghugmyndir.

Tavistock-klíníkinni, sem sérhæfði sig í að breyta líffræðilegu kyni barna, var lokað eftir fjöldamörg dæmi um að börnum hafi verið fórnað á altari hugmyndafræði um að hægt sé að fæðast með líkama af röngu kyni.

,,Mér var breytt í skrímsli," segir ung bandarísk kona, Chloe Cole. Tólf ára var henni talin trú um að hún væri í röngum líkama. Karlhormónum var dælt í stúlkulíkamann og brjóstin skorin af. ,,Trans átti að bjarga mér en eyðilagði líf mitt," segir Chloe.

Allt í nafni hugmyndafræði sem byggir á þeirri firru að sumir fæðist í röngum líkama. Það er líffræðilegur ómöguleiki.

Aftrönsun er það kallað þegar kynbreytt fólk, limlest og bjagað, leitar aftur í kynið sem það fæddist í. Chloe ásamt sex öðrum sat í pallborði þar sem skelfilegar afleiðingar kynbreytinga eru ræddar.

Meðvitundin er í heilabúinu. Þeir sem halda fram að hægt sé að fæðast í röngum líkama eru í raun að segja að nýburi fæðist með rangan heila. Enginn fæðist með rangan heila, ekki frekar en að fólk fæðist með rangan vinstrifót. Nýburi einfaldlega kemur í heiminn og er annað tveggja meybarn eða sveinn. Erfðaefninu verður ekki breytt, konur hafa XX-litninga en karlar XY. Frávikin frá meginreglunni eru læknisfræðilegt úrlausnarefni. (Innan sviga er þess að geta að heili karls er að jafnaði 10% stærri en konuheili. Engum dettur samt í hug að minnka eða stækka heilabúið í transferlinu).

Allir eldri en tvævetra vita að hægt er að hafa hugmyndir um lífið og tilveruna sem standast ekki skoðun. Ranghugmyndir má vinda ofan af enda verða þær til í samfélagi við aðra. Hvorki er hægt að skipta út heila eða líkama til að sigrast á hugsunum sem eru hindurvitni. Opin og frjáls umræða reytir á hinn bóginn fjaðrirnar af firrunum. Falsið verður ekki eins freistandi.

Talsmenn transhugmyndafræðinnar óttast umræðu og saka andmælendur um fjandskap, hatur og fordóma. Það eru menn eins og Sigmundur Davíð, einn örfárra stjórnmálamanna, sem þora að segja upphátt sannindi sem skipta máli. Velferð barna og unglinga er í húfi. 


mbl.is Sigmundur ber í „bakkafullan lækinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trans-ofbeldi í skjóli stjórnvalda

Lýsing Sigmundar Davíðs á framkomu trans-aðgerðasinna til að hafa fundarfrelsið af Samtökunum 22 ætti að vekja fólk til umhugsunar um hótanir og ofbeldismenningu sem þarf að stemma stigu við.

Samtökin 22 er félagsskapur homma og lesbía sem hafnar undirstöðukenningum trans, að hægt sé að fæðast í röngum líkama og að kyn sé huglægt en ekki líffræðileg staðreynd. Samtökin 22 höfðu leigt sal Þjóðminjasafnsins undir málþing. Stuðningsmenn trans tóku til við að herja á ríkisstofnunina sem afturkallaði útleiguna. Var þá leitað til Reiðhallarinnar í Víðidal sem leigði sal. Fór á sömu lund. Á bakvið tjöldin var séð til þess að Samtökunum 22 yrði úthýst á ný.

Samtökin 22 leituðu þá til Miðflokksins og fengu leigðan fundarsal. Segir Sigmundur Davíð að hann hafi

verið furðu lost­inn þegar hann heyrði að flokks­mönn­um hefði borist fjölda sím­tala frá aðgerðasinn­um sem bæðu þá um að blása þingið af.

„Hvernig kom­umst við á þann stað að op­in­ber­um stofn­un­um og stjórn­mála­flokk­um er ógnað fyr­ir að vera gest­gjafi fund­ar til að ræða mann­rétt­inda­mál?“ skrif­ar Sig­mund­ur.

Það sjá allir í hendi sér að hér er allof langt gengið. Í landinu er mál- og fundafrelsi sem eru forsenda annarra mannréttinda. Trúfrelsi verður merkingarlaust ef ekki má tjá hug sinn á samkomu.

Stjórnvöld bera þunga ábyrgð á trans-atlögunni að mannréttindum. Þau fjármagna transfélög og skrifa lög í þágu transmenningar. Sveitarfélög gera samninga við transfélög að útbreiða boðskapinn í skólakerfinu.

Þegar mannréttindi eru brotin til að koma í veg fyrir umræðu um sérviskulega hugmyndafræði, og það með velþóknun hins opinbera, er samfélagið komið á hættulega braut. 

 


mbl.is „Ógnað“ fyrir að hýsa fund um mannréttindamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BRICS, vestrið fær samkeppni

Leiðtogafundur BRICS-ríkjanna er nýlega afstaðin í Suður-Afríku. Auk fundarríkis eiga aðild Rússland, Kína, Indland og Brasilía. Leiðtogarnir buðu velkomin sex önnur ríki, m.a. Egyptaland, Íran, Sádí-Arabía og Argentínu. Fleiri eru á biðlista, t.d. Nígería.

Hugtakið BRIC varð til hjá forstjóra Goldman Sachs fjárfestingabankans um aldamótin og náði yfir nýmarkaðslönd með sérstaka vaxtarmöguleika. Vestrið, sem nýlega hafði sigrað kalda stríðið, var með BRIC-ríkin á matseðlinum, svo að segja. Nýmarkaðsríkin tóku forstjórann á orðinu; matseðilinn öðlaðist sjálfstætt líf.

BRIC-ríkin fimm stofnuðu félagsskapinn ekki fyrr en 2009. Tveim árum síðar bættist S-ið við, Suður-Afríka. Á næsta verða ríkin tólf. Helsti frumkvöðullinn er Pútín Rússlandsforseti.

Í frægri ræðu á öryggisráðstefnunni í Munchen árið 2007 boðaði Pútín margpóla heim sem valkost við einpóla veröld undir forystu Bandaríkjanna. BRICS er útfærsla á þeirri stefnu.

Viðskipti og gjaldeyrismál eru sem stendur höfuðviðfangsefni BRICS. Vegna ólíkrar menningar, sögu og landfræðilegrar stöðu aðildarríkja er engin hætta á samrunaþróun, líkt og ofin er í grunnþrætti Evrópusambandsins.

BRICS er andóf gegn vestrænu forræði í alþjóðamálum. Þeir sem tala fyrir vestrænni leiðsögn heimsbyggðarinnar, t.d. Daniel Hannan í Telegraph, óttast vöxt og viðgang samtakanna.

Úkraínustríðið litar heimspólitíkina. Vöxtur BRICS-ríkjanna á sama tíma og átökin á gresjum Garðaríkis standa yfir er stuðningur við málstað Rússa gegn vestrinu sem heldur uppi stríðsrekstri stjórnarinnar í Kænugarði.

Tilraunir á þessari öld til að vesturlandavæða heimsbyggðina sækja styrk sinn í hugmyndafræði sem varð til á tíunda áratug síðustu aldar, eftir fall Sovétríkjanna og þar með heimskommúnismans. Heimamenn í Afganistan, Írak og Sýrlandi keyptu ekki vestræna stjórnmálamenningu og lífshætti þótt hvortveggja væri á tilboðsverði. Vestrið nýtur ekki þeirra menningarlegu yfirburða sem margir vilja vera láta.

Úkraínu byggir klofin þjóð. Austurhlutinn er á menningarlegu áhrifasvæði Rússa en vesturhlutinn er hallur undir Evrópusambandið. Landamæri ríkisins endurspegla ekki vilja þeirra sem innan þeirra búa. Tvær leiðir voru mögulegar. Í fyrsta lagi sáttaleið. Eitt sambandsríki með sjálfsstjórn landshluta. Í öðru lagi stríð. Frá og með stjórnarbyltingunni 2014 var stefnt á stríð. Stjórnvöld í Kænugarði hefðu aldrei eins og sér undirbúið stríð. 40 milljón manna þjóð sigrar ekki 140 milljón manna þjóð. Stefnt var að stríði i krafti vestrænna yfirburða.  

BRICS er ekki heimskommúnisminn endurfæddur. Samtökin boða hvorki tiltekna hugmyndafræði, líkt og Evrópusambandið, né ein trúarbrögð eins og félagsskapur íslamskra ríkja, OIC. Enn síður veraldlega alheimstrú að manngerður koltvísýringur stjórni veðrum og vindum. Ekki heldur þá vestrænu sérvisku að kynin séu þrjú, fimm eða seytján.

BRICS er í stóra samhenginu afturhvarf til fornrar speki að hollur er heimafenginn baggi. 

 

 


Loftslagsvá er viðskiptamódel, byggt á blekkingu

Keyptir vísinda- og tæknimenn í þjónustu auðjöfra halda að almenningi, í samvinnu við fjölmiðla, þeirri blekkingu að loftslagsvá steðji að heimsbyggðinni. Allt er þetta viðskiptamódel, en ekki vísindi, og haldið gangandi til að skattpína almenning.

Á þessa leið skrifa Þjóðverjarnir Klaus-Dieter Döhler og Josef Kowatsch. Báðir eru umhverfisverndarsinnar og Döhler náttúrvísindamaður. Grein þeirra birtist í útgáfunni EIKE, hægt er að lesa hana í samantekt á ensku.

Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, IPCC, er svo gengumspillt, skrifa Döhler og Kowatsch, að flestir náttúruvísindamenn hafa sagt sig frá störfum fyrir nefndina. Eftir sitja félagsfræðingar, hagfræðingar og stjórnmálafræðingar.

Eins og gefur að skilja vita félagsvísindamennirnir ekkert um loftslagsvá, sem sérfræðingar, en þess meira um hvernig eigi með óttastjórnun, peningagjöfum og áróðri að halda viðskiptamódelinu gangandi.

Á seinni tíð eru náttúruvísindamenn, sem sjá í gegnum blekkinguna, farnir að taka af sér silkihanskana, kalla hlutina réttum nöfnum og leggja til hliðar fræðilegt orðalag. Eðlisfræðingurinn John Clauser, sem fékk Nóbelsverðlaunin árið 2022, sagði nýlega skýrt og skorinort að loftslagsvísindi hafi breyst í falsvísindi í þjónustu trúarbragða. 

Tilfallandi hefur síðustu ár vitnað til fjölda náttúruvísindamanna, t.d. Judith Curry, Richard Lindzen, William Happer, Roy Spencer, John Christy, Lennart Bengtsson og fleiri sem þvertaka fyrir loftslagsvá. Allt eru þetta loftslagsvísindamenn. Svikamyllan áfram þótt náttúruvísindamenn sem standa undir nafni sýna með rökum keisarann klæðalausan.

Hvers vegna?

Stutta svarið er peningar.

Í viðtengdri frétt segir af fyrirtækinu Carbfix. Tilfallandi hefur áður fjallað um stórkostlegan árangur fyrirtækisins fyrr á þessu ári, sjá hér og hér. Kjarni málsins:

Landsvirkjun og OR eru á kafi í hókus-pókus hagfræðinni þar sem peningar vaxa á trjám. Öllu heldur: fjármagn er búið til úr koltvísýringi, CO2.

Dótturfélag OR, Carbfix, fær uppslátt í þýsku útgáfunni Die Welt fyrir að þróa aðferð að dæla koltvísýringi úr andrúmsloftinu ofan í jörðina. 

Eldgosið í Fagradalsfjalli losar um 10 til 11 þúsund tonn af koltvísýringi, CO2, á dag, segir Jarðvísindastofnun. Fyrsta og stærsta heildstæða lofthreinsi- og förgunarstöðin í heiminum við Hellisheiðarvirkjun fangar 4 þúsund tonn af CO2 á ári.

Jú, þið lásuð rétt. Minna en hálfsdags framleiðsla litlu eldsumbrotanna í Fagradalsfjalli fer ofan í holu á Hellisheiði Á EINU ÁRI.

Landsvirkjun selur fyrir milljarða á ári upprunavottorð, sem er nútímaútgáfa aflátsbréfa miðalda. Upprunavottorðin eru keypt af orkusóðum í Evrópu til að sýna fram á orkuvæna framleiðslu. Vegna sölu á upprunavottorðum/aflátsbréfum er íslensk orka ekki lengur græn nema gegn gjaldi.

Hókus-pókus hagfræðin býr til peninga úr þeirri firru að koltvísýringur sé okkur lifandi að drepa. Veruleikinn er sá að ef við útrýmum koltvísýringi úr andrúmsloftinu jafngilti það sjálfsmorðssáttmála, segir William Happer loftslagsvísindamaður.

Carbfix, og hugmyndin að baki, er milli steins og sleggju. Í einn stað skiptir engu máli þótt einhverju smámagni af CO2 er dælt ofan í jörðina. Í annan stað, ef svo stórundarlega vildi til, að Carbfix fyndi aðferð að taka úr andrúmsloftinu stóran hluta koltvísýrings stafaði lífríki jarðarinnar hætta af. Án koltvísýrings verður engin ljóstillífun. Trjám og plöntum yrði útrýmt, jörðin stæði eftir sem eyðimörk.

Ef menn græða á að trúa blekkingum þá trúa menn blekkingum. Carbfixið er örlítill hluti af viðskiptamódeli en segir nokkra sögu um blekkinguna að baki.

Hugmyndafræði á skjön við veruleikann gengur svo lengi sem henni er haldið uppi með valdi, fjármagni og trúarkreddum. Fyrr heldur en seinna sigrar raunheimur fantasíuna. Þeir verða margir meintir sérfræðingarnir sem endurskrifa ferilsskrána og þykjast hvergi hafa komið nærri vitleysunni sem fjármagnaði starfsframann.


mbl.is Þróa nýja aðferð til að mæla bindingu koldíoxíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland heimsþorp hælisleitenda

Rúmlega 100 milljónir manna eru flóttamenn í heiminum, skv. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þegar hælisiðnaðurinn fréttir að íslensk stjórnvöld bjóði upp á búsetuúrræði og velferðarþjónustu til frambúðar fyrir ólöglega hælisleitendur verður straumnum beint hingað.

Ekki þarf nema örlítið brot af 100 milljónum flóttamanna að koma til Íslands, 0,1 prósent er 100 þúsund, til að hér verði heimsþorp hælisleitenda.

Alþjóðlegi hælisiðnaðurinn á talsmenn hér á landi. Á alþingi starfa hælisþingmenn sem beint og óbeint hagnast á innstreymi hælisleitenda. Úr skjólstæðingi má fá sauðtryggan kjósanda, þegar búið er að útvega ríkisborgararétt.

Því lengur sem ólöglegur hælisleitandi dvelur hér á landi því hærri verður lögfræðiþóknunin. Skattfé almennings borgar allt; fæði, húsnæði, velferðarþjónustu og lögfræðiþjónustu. Fyrir ólöglega hælisleitendur.

Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins skrifar færslu á Facebook af þessu tilefni:

Fólk sem hefur jafnvel dvalist hér í 3 ár með húsnæði, uppihald, þjónustu og lögfræðiaðstoð á kostnað skattgreiðenda og ítrekaðar áfrýjanir þar til kerfið hefur sig loks í að segja að rétturinn hafi aldrei verið til staðar.
Enginn í ríkisstjórninni virðist áhugasamur um að hugleiða eðli vandans, hvað þá taka á honum. [...]
Þetta ástand felur ekki í sér mannúð. Stjórnleysið og getuleysið kemur í veg fyrir að við nýtum möguleika okkar á að hjálpa sem flestum þeirra sem eru í mestri neyð.

Laukrétt hjá formanni Miðflokksins.

 

mbl.is Vinnur að frumvarpi um búsetuúrræði með takmörkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prigó­sjín, valdaránið og Pútín

Ef flugvél Prigó­sjín forsprakka Wagner málaliða var skotin niður rétt utan Moskvu eru allar líkur að valdaránstilraunin 24. júní hafi ekki verið sviðsett heldur föðurlandssvik. Drápið sé málagjöldin. 

Gagnrýni Prigó­sjín á yfirstjórn hersins gekk út á að rússneski herinn stígi alltof varlega til jarðar í Úkraínu. Ef frá eru taldar fyrstu vikur innrásarinnar, þegar beitt var leifturstríði, mallar rússneska hernaðarvélin hægt en stöðugt. Vestrinu og Úkraínu skal þrjóta fyrr örendið en Rússum er herfræðin. Engin meginbreyting er á herfræði Kremlarbænda eftir að stöðustríðið tók við af leiftursókninni í fyrravor.

Prigó­sjín er áhættusækinn og krafðist aukinnar hörku. Þar sem foringi Wagner-hópsins er ekki hermaður heldur herskár auðmaður er engin leið að sjónarmið hans fengju hljómgrunn nema með stuðningi valdamikilla einstaklinga í yfirstjórn hersins, - sem hefðu þá verið bandamenn hans í valdaránstilrauninni.

Færu Rússar halloka á vígvellinum gætu áhrifamenn í herstjórninni gripið til örþrifaráða. Stöðustríðið þróast Rússum í vil. Lítil efni eru til örvæntingar í þeirra herbúðum. Það eru ekki unglingar á gelgjuskeiði sem stýra hernum.

Surovíkin heitir hershöfðinginn sem fór fyrir hernaðaraðgerðum Rússa. Þangað til í síðustu viku að það spurðist út að Surovíkin væri fluttur til í starfi. Var hann bandamaður Prigósjín? Sé það tilfellið mun hann ekki kemba hærurnar. Landráð á stríðstíma er meira en brottrekstrarsök.

Eftir valdaránstilraunina fluttu Wagner-liðar til Hvíta-Rússlands, sem nánast er hjálenda Rússlands. Í herbúðum þeirra stendur yfir undirbúningur að endurnýjaðri aðild að stríðsátökum. Sjálfur valhoppaði Prigó­sjín milli landa, var oft í Rússlandi en fór líka til Afríku. Auðvelt skotmark í tvo mánuði eftir meinta tilraun til valdaráns. Hafi völd Pútín staðið tæpt 24. júní er 60 daga friðhelgi landráðamanns auglýsing um veikleika valdstjórnarinnar. Valdhafar opinbera ekki veikleika sína, síst á stríðstíma.

Engu að síður. Með Prigó­sjín í flugvélinni voru sex af æðstu yfirmönnum Wagner-liða. Hafi vélin verið skotin niður að undirlagi Pútín var í einum rykk gert út um helstu fyrirliða málaliðasveitarinnar. Trauðla gert nema Wagner-liðar ógnuðu öryggishagsmunum ríkisins. Vel að merkja, ekki er enn staðfest að Prigó­sjín sé meðal hinna látnu, aðeins að hann hafi verið á farþegaskrá.

En var flugvélin skotin niður? Ræma af hrapi vélarinnar sýnir að hún kemur niður í heilu lagi. Flugskeyti sem hittir flugvél ofar jörðu sprengir hana í lofti.

Tilfallandi telur enn að valdaránstilraunin 24. júní hafi verið sviðsett. Er þó ekki jafnviss í sinni sök og hann var 25. júní.

 

 

 


Tilgáta um aflýstan biskupsfund

Á föstudag boðaði biskup Íslands í samstarf við samtökin Engin landamæri (No Borders) til fundar vegna ólöglegra hælisleitenda, sem vísað hafði verið úr landi. Fundinn átti að halda í fyrradag, mánudag. Í samstarfi við fjölmiðla, sem fengu boðskort, átti að kúga stjórnvöld til að samþykkja ólöglega hælisleitendur. Hótunin, sem sveif yfir vötnum, var sú að tilgreindir ráðherrar yrðu úthrópaðir sem níðingar. Bannfæringarkraftur biskups átti að gera útslagið. 

En hvergi sjást fréttir um að fundurinn hafi verið haldinn. Ekki múkk frá biskupsstofu, No Borders-félögunum né fjölmiðlum. Fundinum var aflýst án skýringa.

Tilfallandi tilgáta er að viðtengd frétt frá mánudeginum sé skýringin. Þar segir að útlendingur hafi kveikt í heimilisbíl lögreglukonu.

Frekari rökstuðningur tilgátunnar er í Morgunblaðsgrein eftir Einar S. Hálfdánarson hæstaréttarlögmanns sem birtist í gær. Þar segir Einar

Útlendir glæpamenn, Sómalar, Palestínumenn og Albanar, eru farnir að hóta lögreglumönnum lífláti og fjölskyldum þeirra. „Við getum komist að hvar þú þú átt heima“ (sem reyndar ætti að vernda lögreglumenn gegn líkt og í öðrum löndum). Svo fylgja enn alvarlegri hótanir.

Tilgátan er þessi. Íkveikjan á bíl lögreglukonunnar tengist ólöglegum hælisleitendaiðnaði sem hefur fest rætur hér á landi. Ofbeldismenn og dólgar ganga lausum hala og þykjast á flótta. Ef ekki er farið að vilja þeirra er hótunum fylgt eftir. Biskup Íslands áttaði sig á að hann væri kominn í vafasaman félagsskap, svo vægt sé til orða tekið, og afboðaði aðild sína að fundi sem myndi blessa hryðjuverk. Þar með var fundinum sjálfhætt. Án biskups stóðu eftir öfgasamtök og meðreiðarsveinar.

Það rennir frekari stoðum undir tilgátuna að hælisþingmenn fara heldur hljótt, aldrei þessu vant. Höfuðmiðill hælisiðnaðarins, RÚV, er farinn að flytja fréttir um að fylgja eigi landslögum í málefnum hælisleitenda. Í gærkvöld fékk þó Helga Vala að þjóna sinni lund á Efstaleiti. Samhengið er að aflýsti fundurinn á mánudag er aftur kominn á dagskrá í dag. Hælisþingmenn, biskupinn og No Boarders-félögin heyktust á mánudagsfundinum en hafa unnið á bakvið tjöldin í tvo sólarhringa að skrapa saman í miðvikudagsmessu.

Enginn fjölmiðill varpar ljósi á hvað gerðist á bakvið tjöldin, hvers vegna ekkert varð úr blessun biskups á ólöglegu athæfi á boðuðum fundi í fyrradag. Dagana á undan kappkostuðu flestir miðlar að flytja fréttir um að stefna hælisiðnaðarins ætti að ráða en íslensk lög víkja. Nú ber svo við að fundurinn er aftur kominn á dagskrá. Engar skýringar, ekkert samhengi, aðeins sundurlausar uppákomur.

Þetta er orðið einkenni íslenskra fjölmiðla. Þeir starfa mest á bakvið tjöldin. Þingmenn, sem fara með fjárveitingavaldið, tryggja fjölmiðlum rekstarfé með ríkisframlögum. Krefjast á móti málafylgju í formi fréttaflutnings.

Fjölmiðlafréttir eru í æ meira mæli verkfæri pólitískra aktívista í blaðamannastétt, - sem víla ekki fyrir sér aðild að glæpum. Eins og dæmin sanna.

 

 


mbl.is „Ég veit hvar börnin þín fara í skóla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna varð að byrla Páli skipstjóra?

Ef síma Páls skipstjóra Steingrímssonar hefði verið stolið og komið í hendur RÚV, Stundarinnar og Kjarnans (RSK-miðla) sem myndu hafa nýtt sér gögn úr símanum til fréttaflutnings en síðan fargað símanum væri tilvera sakborninga í röðum blaðamanna öllu þekkilegri en hún er í dag.

Ekki er gott að eiga aðild að gagnastuldi. Öllu verra er aðkoma að byrlun, sem í besta falli er líkamsárás en í versta falli morðtilraun.

Hvers vegna tóku blaðamenn RSK-miðla þátt í ráðabruggi, stela síma skipstjórans, afrita og skila tilbaka, sem augljóslega fól í sér að skipstjórinn yrði gerðu óvígur í einn til tvo sólarhringa hið minnsta? Hvers vegna ekki að láta sér nægja símastuld?

Hugmyndin var að skipstjórinn yrði þess ekki var að síminn hefði komist í hendur óvandaðra einstaklinga. Fréttir upp úr símanum áttu að koma eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þar sem um var að ræða tölvupósta var mögulegt að þeir kæmu frá minnst tveim aðilum (enginn sendir tölupóst á sjálfan sig) eða fleiri. 

Þess vegna var ekki nóg að stela síma og eyða honum. Það varð að skila honum tilbaka. Grunur átti ekki að vakna um stuld. Og jafnvel þótt grunur vaknaði átti ekki að vera hægt að sanna stuldinn - símtækið var jú í höndum skipstjórans. 

Páli var byrlað 3. maí 2021, símanum var komið í hendur blaðamanna daginn eftir. Ekki síðar en 5. maí voru blaðamenn búnir að gera sér grein fyrir innihaldi símans og gátu skrifað fréttir.

En engin frétt birtist fyrr en 21. maí þegar Stundin og Kjarninn birtu samtímis áþekka frásögn um meinta skæruliðadeild Samherja en þar átti skipstjórinn að vera höfuðpaurinn.

Hvers vegna biðu blaðamenn með fréttir sem voru tilbúnar 6. eða 7. maí en ekki birtar fyrr en tveim vikum síðar?

Í snjallsímum er staðsetningarforrit sem skráir ferðalag símans allt að tvær vikur aftur í tímann. Blaðamenn gerðu ráð fyrir að skipstjórinn tæki til við að nota símann eftir að hann kæmist til meðvitundar.

Blaðamenn vissu nákvæmlega hvenær skipstjórinn komst til meðvitundar enda voru þeir í reglulegu sambandi við eiginkonu hans þáverandi sem sá um byrlun og símastuld fyrir RSK-miðla. Páll lá milli heims og helju á gjörgæslu í tvo daga en fékk meðvitund 6. maí.

Frá 6. maí til birtingar á fyrstu fréttum þann 21. maí eru 15 dagar. Blaðamenn töldu víst að staðsetningarbúnaður símans hefði uppfærst reglulega og geymdi ekki lengur staðsetninguna þá daga sem tækið var í þjófahöndum.

Skipstjórinn hafði á hinn bóginn tekið eftir að eitthvað athugvert væri við símann og slökkt á uppfærslubúnaði. Hann kærði málið til lögreglu 14. maí, viku áður en fyrstu fréttir birtust.

Til að sími Páls yrði sem skemmstan tíma í höndum blaðamanna varð að gera ráðstafanir fyrir byrlun. Frá eiginkonu skipstjórans fengu blaðamenn upplýsingar um hvernig símtæki hann notaði. Þóra Arnórsdóttir á RÚV keypti í apríl samskonar síma og Páll notaði, af gerðinni Samsung.

RÚV-síminn, sem notaður var til afritunar, fékk númerið  680 2140. Sími Páls er með keimlíkt númer, 680-214X. Í yfirlitum símfyrirtækja yfir notkun á símum er tveim síðustu tölustöfum símnúmera sleppt af persónuverndarástæðum. 

Blaðamenn RSK-miðla töldu sig hafa búið svo um hnútana að engin leið væri að rekja slóðina. Blaðamenn ætluðu, ef á þá yrði gengið, að svara því til að nafnlaus heimildamaður hefði látið þeim í té gögnin og skáka í skjóli laga sem vernda heimildamenn. 

En þar sem atlagan var byrla-stela-skila, en ekki einfaldur þjófnaður, var morgunljóst þegar í upphafi glæpsins hver sá um framkvæmdina; alvarlega andlega veik þáverandi eiginkona Páls skipstjóra.

Tvennt vekur sérstaka furðu í málinu öllu. Í fyrsta lagi að blaðamenn, sem eiga að heita heilir á geði, telji sómasamlegt að hagnast á svívirðilegum glæp, þar sem fársjúk kona gerir lífshættulega atlögu að eiginmanni sínum og tekur eigur hans ófrjálsri hendi. Í öðru lagi, að enginn blaðamannanna skuli hafa stigið fram, eftir að málið opinberaðist, játað vitneskju sína og beðist fyrirgefningar.

Ekki ætti að þurfa að segja upphátt að blaðamennska er ósamrýmanleg glæpastarfsemi. 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband