Mánudagur, 3. ágúst 2009
Icesave er spurning um reisn eða uppgjöf
Icesave-samningurinn er tveggja þátta. Annars vegar er hann afleiðing af óheftri fjármálastarfsemi óreiðufólks og hins vegar milliríkjasamningur þar sem í húfi er það litla sem eftir er af orðspori landsins. Óheft fjárplógsstarfsemi íslensku bankanna í útlöndum var í skjóli regluverks Evrópusambandsins. Samningurinn leggur alla ábyrgðina á herðar Íslendinga og er aukinheldur þannig úr garði gerður að við stöndum undir hærri fjárhæðum en lög standa til, sbr. gagnrýni Ragnars Hall.
Efnahagslegu, lagalegu og siðferðislegu álitamálin í Icesave-samningunum eru slík að óráð er að samþykkja hann. Umræðan er nær öll á þann veg að forsenda fyrir endurreisn þjóðarinnar er að við höfnum samningnum með þeim orðum að semja verði upp á nýtt þar sem sanngirni kæmi í stað yfirgangs.
Þjóðin er tilbúin að berjast fyrir réttlætinu í Icesave. Ríkisstjórnin er á hinn bóginn búinn að gefast upp.
Mánudagur, 3. ágúst 2009
Utanumhaldari Jóhönnu gefur línuna
Á eftir Steingrími J. og Össuri Skarphéðins er Hrannar B. Arnarsson valdamesti maðurinn í ríkisstjórninni. Hann er önnur kynslóð utanumhaldara Jóhönnu Sigurðardóttur, tók við því hlutverki af fóstra sínum Óskari Guðmundssyni. Smettiskrudduskot Hrannars B. á Evu Joly var hugsað sem línugefandi í besta anda vinstristjórnmála þar sem valdamiðjan lætur hjörðina vita hvaða skoðun sé góð og gild.
Ríkisstjórnin vill samþykkja Icesave-samningana og færa Evrópusambandinu landið og miðin á silfurfati. Allt sem truflar óþurftarverk ríkisstjórnarinnar er vanheilagt, Eva Joly meðtalin.
Viðbrögðin við línugjöf Hrannars B. sýna að ríkisstjórnin er algjörlega úr takti við þjóðina. Almenningur vill ekki gefast upp fyrir ofríki Breta, Hollendinga og Evrópusambandsins en ríkisstjórnin er komin í neðanjarðarbyrgið og hefur tryggt sér besta rýmið.
Þjóðin á ekki skilið þessa ríkisstjórn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 2. ágúst 2009
Þjófar, meðhlauparar og sauðir
Lánabók Kaupþings, Baugsviðskiptin rétt fyrir hrun, gjaldþrot Björgólfs eru staðfesting á að útrásarauðmennirnir voru þjófagengi sem myndaði með sér bankabandalag þar sem sjálftekt ofurríkra var sett ofar reglum um eðlileg bankaviðskipti. Bankaleynd á að tryggja eðlileg bankaviðskipti og þegar Nýja Kaupþing notar þær reglur til að hylma yfir með þjófagenginu er það í óþökk samfélagsins.
Þjóðin þarf blóð útrásarauðmanna; það verður að hundelta þá, leysa upp fjárfestingafélög þeirra og keyra í gjaldþrot sé þess nokkur kostur.
Meðhlauparar útrásarinnar voru millistjórnendur og fjölmiðlatíkur. Þeir fyrrnefndu sáu til þess að kerfið virkaði og þjónaði þjófagenginu og fjölmiðlatíkurnar lugu að þjóðinni að allt væri í stakasta lagi. Þegar húsbændurnir standa afhjúpaðir eru meðhlaupararnir í óða önn að skipta um lið. Lekinn úr sódómu þjófagengisins er fyrir tilstilli millistjórnenda og í fjölmiðlum má lesa hneykslisskrif fólks sem fékk menntun sína í blaðamannaakademíu Baugs.
Sauðir mynda þriðja hópinn. Þeir halda að veröldin sé eins eftir hrun og hún var fyrir. Vísast er stjórnendateymi Nýja Kaupþings sambland af meðhlaupurum og sauðum. Eiginlega ætti að vera hægt að tala um súper-sauði því annað eins klúður og að krefjast lögbanns á umfjöllun um opinberar upplýsingar úr lánabók Kaupþings er svo yfirgengilegt að orð ná ekki yfir það.
Sauðirnir læra á endanum, meðhlaupararnir skipta um lið en þjófagengið verðum við að uppræta til að að taki ekki upp fyrri iðju.
![]() |
Lögbanni mögulega hnekkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 1. ágúst 2009
Jörðum Kaupþing
Mannvitsbrekkurnar sem stýra Nýja Kaupþingi tala um að bankaleynd verði að virða. Téð bankaleynd var notuð til að koma þjóðinni á vonarvöl. Fábjánakennd viðbrögð við upplýsingum um að þeir sem áttu gamla Kaupþing voru glæpamenn í jakkafötum sýna svo ekki verður um villst að Nýja Kaupþing er hýsill græðgisveirunnar sem bíður að spretta fram aftur þegar heiðarlegt fólk á sér einskins ills von.
Við verðum að jarða Nýja Kaupþing djúpt oní jörðina og lýsa grafreitinn hættusvæði um ókomna tíð.
![]() |
Kaupþing fékk lögbann á RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 1. ágúst 2009
Síðasti naglinn í líkkistu Icesave
Eftir grein Evu Joly getur ríkisstjórnin ekki þvingað Alþingi til að samþykkja Icesave-samninginn. Stjórn Jóhönnu er komin í bullandi mínus vegna þess að hún les ekki skriftina á veggnum. Með Brussel-umsókn kyssti ríkisstjórnin á vöndinn sem Bretar, Hollendingar og Evrópusambandið settu saman til að kaghýða Íslendinga. Icesave-samningurinn er aflátsbréf Evrópusambandsins fyrir liðónýtu regluverki sem íslensku fjárglæframennirnir nýttu sér.
Ríkisstjórnin hefur logið linnulítið að þjóðinni um efnisinnihald Icesave-samningsins í veikri von um að moldviðrið feli afglöpin sem gerð eru í samningnum.
Þjóðin lét ekki plata sig; Jóhanna, Steingrímur J. og Össur hafa verið vegin á pólitískri vog og léttvæg fundin. Þegar sérstakur ráðgjafi ríkisstjórnarinnar tekur undir með gagnrýnendum ríkisstjórnarinnar er ekki mikið eftir fyrir þremenningana en að þakka fyrir sig.
![]() |
Stöndum ekki undir skuldabyrði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)