Föstudagur, 31. ágúst 2007
Málfrelsi og múslímar
Á yfirborðinu krefjast múslímar þess að spámanninum sem trúarbrögð þeirra eru kennd við sé sýnd sú tillitssemi að birta ekki af honum mynd opinberlega, hvað þá skopmynd. Í reynd er krafa múslíma að þeirra gildi skuli ríkja en þau vestrænu víkja.
Með þeim fyrirvara að múslímar tala ekki einum rómi, ekki fremur en Vesturlandabúar, verður að setja ritskoðunaráráttu þeirra samhengi við togstreituna sem er á milli þessara tveggja menningarheima.
Með því að bera fram kröfu um ritskoðun á götum og torgum Vesturlanda færa múslímar víglínuna frá heimahögunum, þar sem þeir streitast gegn vestrænum áhrifum með misjöfnum árangri, yfir í okkar heimshluta.
Viðspyrnan sem múslímar hafa fyrir kröfu sinni er pólitískur rétttrúnaður en rætur hans liggja í tískufyrirbrigðinu sem oft er kallað fjölmenningarsamfélagið. Það samfélag er hvergi til en lifir sem hugmynd. Í nafni hugmyndarinnar er blátt bann lagt við mismunun menningarheima og innflytjendur til Vesturlanda eru hvattir til að rækta eigin menningarkima í nýjum heimkynnum.
Gagnólík afstaða múslíma og Vesturlandabúa til málfrelsis er staðfesting á þeim augljósu sannindum að menningarheimar geta aðeins verið jafnir hver í sínum heimkynnum. Á Vesturlöndum á að ríkja vestræn menning, í löndum múslíma múslímsk menning. Innflytjendur í hvorum menningarheimi lagi sig að aðstæðum. Tiltölulega einfalt.
![]() |
Svíar kallaðir á teppið í Pakistan vegna skopmynda af Múhameð spámanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Samfylkingin er áfram upphlaupsflokkur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Stefnir í þrjá tapleiki í röð
Á skrifandi stundu eru Red Sox tvö núll undir í fimmtu lotu í þriðja leiknum gegn New York Yankees. Síðdegisleikurinn er á síðasti og ef hann tapast eru Yankees fimm leikjum frá Red Sox á toppi austurdeildarinnar í Ameríkudeildinni.
Schilling er á hólnum og þótt tvö hlaup eru ekki mikið á fimm lotum þá er Wang búinn að éta sóknina hjá Red Sox, þeir hafa ekki komist á fyrstu höfn nema með fyrir útafkast hjá Wang.
En það eru fjórar lotur eftir og kannski, ef Wang þreytist, þá koma Soxarar kyflu á boltann. Það er stórt kannski.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 29. ágúst 2007
Þegjandi samkomulag um ólöglegt erlent vinnuafl
Þenslan á vinnumarkaði undanfarin ár hefur skapað viðskiptatækifæri fyrir innflytjendur á vinnuafli sem greiða launþegum lægri laun og búa þeim verri aðstæður en tíðkast hjá íslensku launafólki.
Eftir fjölmiðlaumræðu fyrir nokkrum misserum og þrýsting frá verkalýðsfélögum var gerð gangskör í að bæta eftirlit með erlendu vinnuafli í byggð. Hálendið var aftur á móti tekið út fyrir sviga og þar látin viðgangast félagsleg undirboð, ekki síst til að tryggja framgang virkjanaframkvæmda.
Spillingin sem þrífst í skjóli ólögmæts innflutnings á erlendu vinnuafli er á ábyrgð stjórnvalda. Óátalin grefur spillingin undan lífskjörum íslensks launafólks í bráð og lengd.
Þótt fjölþjóðlegir samningar kveði á um frjálsa för launafólks er stjórnvöldum í lófa lagið að stemma stigu við óheftum innflutningi á vinnuafli. Það er viðurkennd stjórnsýsla að notendur borgi fyrir nauðsynlegt eftirlit með viðkomandi starfsemi.
Reynslan hefur sýnt að bráðnauðsynlegt er að stórefla eftirlit með innflutningi á erlendu vinnuafli. Stjórnvöld ættu að þekkja sinn vitjunartíma og búa svo um hnútana að það verði innflytjendum erlends vinnuafls verulega dýrara en það er núna að flytja inn láglaunafólk í samkeppni íslenskt vinnuafl.
Hér er spurt um pólitískan vilja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 28. ágúst 2007
Stórleikur í kvöld
Red Sox mæta New York Yankees í kvöld í fyrsta leik af þremur. Boston hefur átta leiki á Yankees á toppi austurdeildar Ameríkudeildarinnar. Andy Pettitte (11-7) kastar fyrir Yankees en Daizuke Matsuzaka (13-10) fyrir Red Sox.
Red Sox hafa verið á skriði undanfarið, tók fullt hús hjá Chicago White Sox í fjórum leikjum, á meðan Yankees lönduðu aðeins einum sigri í fjögurra leikja röð gegn Detroit Tigers.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 28. ágúst 2007
Hriplek málsvörn Björgólfsfeðga
Talsmaður Björgólfsfeðga hefur viðurkennt að bréfin voru seld með afslætti. Réttlætingin fyrir útsölunni á bréfum bankans er að kaupendurnir séu öflugir erlendir fagfjárfestar sem munu í fyllingu tímans styrkja fjárfestingabankann.
Það liggur í augum uppi að á meðan ekki er gefið upp hver þessi erlendi aðili er verður eignaraðild viðkomandi ekki til þess fallin að efla Straum-Burðarás. Þvert á móti er feluleikurinn með nafn nýja eiganda fimm prósent hlutafjár Straums-Burðarás líkleg til að draga úr trúverðugleika bankans, eins og fréttir síðustu daga bera óhrekjanlega vitni um.
Björgólfsfeðgar þverskallast að gefa upp nafn kaupanda þótt þær upplýsingar yrðu til þess að draga úr tortryggni vegna útsöluverðsins á hlutabréfunum. Réttmæti viðskiptanna stendur og fellur með nafni kaupandans. Að því gefnu, auðvitað, að kaupandinn haldi máli.
Talsmenn feðganna hafa ekki látið svo lítið að reyna að koma með útskýringu á því hvers vegna meintir erlendir kaupendur vilja ekki kannast opinberlega við að hafa keypt hlutinn. Varla er alþjóðlegt rykti Straums-Burðarás slíkt að fagfjárfestar út í hinum stóra heima skammist sín fyrir að eiga hlut í bankanum.
Engin haldbær skýring er á því að meintur erlendur kaupandi noti útibú Landsbankans í Lúxembúrg til að halda utanum viðskiptin. Ef um raunverulegan fjárfesti er að ræða, sem væri vel kynntur í fjármálaheiminum, annars væri jú Straumi-Burðarás enginn akkur í að fá hann í hluthafahópinn, er fjarska ólíklegt að hann noti útibú íslensks smábanka í lítilfjörlegu landi fyrir viðskipti af þessu tagi.
Björgólfsfeðgar, sonurinn þó fremur en faðirinn, fóru í viðskiptunum 17. ágúst á svig við gott viðskiptasiðferði. Mögulega var framið lögbrot verið það leitt í ljós að hluthöfum almenningshlutafélags hafi verið mismunað.
Málsvörn feðganna hingað til heldur ekki vatni. Takist þeim ekki að töfra fram á næstunni meintan kaupanda bréfanna og koma með trúverðuga skýringu á feluleik undanfarinna daga verður orðspor feðganna annað og síðra en hingað til.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 27. ágúst 2007
Heimsmeistarabræður grafa ekki stríðsöxina
Bobby spilaði fyrir Manchester United og en Jack fyrir Leeds. Rígurinn á knattspyrnuvellinum fór þó ekki með samband bræðranna heldur fjölskyldudeilur.
Eiginkona Bobby lenti upp á kant við móður bræðranna. Bobby og eiginkonan Norma slitu á samskipti við móðurina. Þegar móðirin lá banaleguna fékkst Bobby ekki til að sættast og Jack fannst það heldur bág frammistaða hjá yngri bróður.
Fyrir tíu árum lét Jack miður falleg orð falla í fjölmiðlum um Normu og ábyrgð hennar á deilunum. Bobby, sem er aðlaður og heitir sir að fornafni, hefur ekki fyrirgefið Jack að halla orði á eiginkonuna og bræðurnir verið saupsáttir síðan.
Bobby vantar tvo í sjötugt og er um þessar mundir að skrifa bók þar sem fjölskyldudeilurnar eru bornar á borð fyrir almenning. Jack er fjórum árum eldri og sem því nemur þroskaðri. Hann vill ekki tjá sig um efni bókar bróa.
Jack hefur hvergi sagt það upphátt en líklega er hann sammála Roy Keane, þjálfara Sunderland og fyrrum fyrirliða Manchester United, að eiginkonur knattspyrnumanna ráða margar hverjar alltof miklu um lífi þeirra. Það endar í tómu tjóni
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 26. ágúst 2007
Óhreint mjöl í poka Björgólfsfeðga?
Fyrir rúmri viku seldi Straumur - Burðarás eigin bréf með 400 milljón króna afslætti til óþekkts kaupanda. Talsmaður Björgólfsfeðga, sem eiga meirihluta í Straumi - Burðarás, útskýrði söluna með því að hún væri til útlendra fagfjárfesta og ætluð að styrkja bankann á alþjóðavísu.
Útlendir fagfjárfestar hafa ekki fyrir sið að dylja fjárfestingar sínar enda þjónar það ekki hagsmunum slíkra fjárfesta að eignarhald sé óljóst. Það vekur því grunsemdir að ekki sé allt með felldu við þessa sölu þegar breitt er yfir nafn og númer kaupanda.
Þegar líkur eru fyrir því, eins og þessi frétt gefur til kynna, að hlutabréfin umræddu séu vistuð á safnreikningi í útibúi Landsbankans í Lúxembúrg vaxa grunsemdirnar.
Björgólfsfeðgar eru húsbændur í Landsbankanum og þeir þurfa að útskýra hvort að tveir plús tveir séu ekki lengur fjórir.
![]() |
Landsbankinn skráður fyrir hlutnum í Straumi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 25. ágúst 2007
Wakefield klárar Chicago
Fiðrildaboltar Tim Wakefield smugu framhjá kylfurum Chicago White Sox í kvöld. Wakefield fékk ekki á sig stig í sjö lotum og Red Sox unnu þriðja leikinn 14 - 2. Ekkert var skorað fyrr en í sjöttu lotu þegar kylfarar Red Sox negldu Mark Buherle kastara White Sox og skoruðu fimm stig.
Red Sox eiga möguleika á fullu húsi þegar þeir mæta þeim hvítu á morgun.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. ágúst 2007
Red Sox byrja vel í Chicago
Red Sox unnu White Sox í Chicago núna áðan, 11 - 3. Varitek kláraði dæmið með tvöfaldri slemmu í níundu lotu og tryggði Beckett sextaánda sigurinn. Leiknum var frestað í gær vegna rigningar og því mætast liðin aftur í kvöld (nótt) í öðrum leik af fjórum.
Red Sox þurfa að vinna seríuna í Chicago því handan við hornið er sería gegn Yankees sem keppa við þá um sigur í austurdeild Ameríkudeildarinnar. Sex leikir skilja liðin að og Yankees þurfa að yfirvinna Tígrana í Detroit, sem mæta með sært stolt eftir tap gegn Indiana, áður en kemur að uppgjöri við Red Sox.
Schilling tekur hólinn í kvöld. hann er gamalreyndur en orðinn svolítið slitinn og gæti gefið tvö til fjögur hlaup í fimm sex lotum. Vörnin og umfram allt sóknin þarf að skila sínu til að sigur sé raunhæfur.
Utan Sox: Santana og Minnesota Twins mæta Baltimore Orioles í nótt og er það fyrsti leikur Santana eftir hann setti félagsmet fyrir fimm dögum gegn Texas Ranges og fór í gegnum sautján kylfara án hlaups.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)