Vg brennir brýr

Hvers eigum við kjósendur Vinstri grænna að gjalda? Við kusum Vg í þeirri trú að hann stæði við skýra og ótvíræða stefnu um að Íslandi væri betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess. Hvað gerir flokksforystan? Jú, hún fellst á að sótt verði um aðild.

Við kusum Vinstri græna til að standa vörð um íslenska hagsmuni. Hvað gerir formaður Vinstri grænna, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra? Hann berst eins og ljón fyrir handónýtum Icesave-samningi sem mátti ekki líta dagsins ljós til að alþjóð fengi ekki vitneskju um óhroðann. Verðmiðinn er á bilinu 700 til þúsund milljarðar króna sem á að senda ungum Íslendingum.

Við kusum ekki þá Vinstri græna sem nú véla um framtíð þjóðarinnar.


mbl.is Þjóðin kaus um Icesave í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Risavaxin hagfræðitilraun

Seðlabankar austan hafs og vestan gera hagfræðitilraun sem breytir skilningi manna á lögmálum hagfræðinnar ef hún tekst en steypir Vesturlöndum í efnahagslegt kviksyndi ef hún mistekst. Tilraunin felst í að stöðva lánsfjárkreppuna með nær óheftu peningaflæði úr seðlabönkum. Bandaríski seðlabankinn reið á vaðið en sá evrópski kemur í humátt á eftir, samanber meðfylgjandi frétt.

Allsendis óvíst er hvort tilraunin tekst og svo gæti farið að hún tækist í annarri álfunni en misheppnaðist í hinni. Líkurnar eru Bandaríkjamönnum í vil og njóta þeir þess að dollarinn er eina alþjóðlega myntin sem stendur undir nafni sem slík og að baki stendur ríkissjóður Bandaríkjanna. Evran er aftur með ótryggara bakland, þ.e. Evrópusambandið sem er samrunasamstarf þjóðríkja.

Anatole Kaletsky dálkahöfundur Times dregur upp dökka mynd af Evrópska seðlabankanum og segir hann halda á floti gjaldþrota ríkjum eins og Írlandi, Grikklandi, Spáni og Austurríki með því að lána bönkum gegn hæpnum veðum stórfé sem bankarnir lána aftur til gjaldþrota ríkissjóða.

Veruleg hætta er á að eitthvað fari úrskeiðis í hagfræðitilrauninni. Lítill neisti gæti kveikt bál sem færi eins og eldur í sinu um þurra lánsfjárakra Evrópu. Þá er gott að standa álengdar á eyju út í miðju hafi og draga lærdóma af stóratburðum í útlöndum. Vel að merkja - án Icesave-samninga.


mbl.is Evrópski seðlabankinn dælir út met fjárhæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþarfi að spara, við getum borgað allt

Ríkisstjórnin getur ekki í ein orðinu sagt að það þurfi að skera niður og sýna aðhald en í hinu orðinu að það sé til nægt fé til greiða Icesave reikninga upp á 500 til þúsund milljarða. Lágmarkssamræmi þarf að vera í málflutningi stjórnarinnar til að fólk sé tilbúið að leggjast á árarnar.

Icesave-samningurinn er handónýtur og hann þarf að fella. Alþingi hafnar samningunum og við semjum upp á nýtt. Þetta er eina færa leiðin og allir utan stjórnar sjá það.

Ríkisstjórnin er aftur búin að festa sig rækilega í Icesave-netinu að hún verður ekki starfhæf eftir að Alþingi fellir samninginn. Stundarvandamál í ríkisstjórninni má ekki verða að varanlegu þjóðfélagsböli.


mbl.is Getum staðið við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldarar stjórna umræðunni

Vextir á almennum bankareikningum er neikvæður um fimm til sjö prósent. Verðbólgan er 12 prósent, stýrivextir sömuleiðis en reikningar almennings í bönkum og sparisjóðum bera aðeins fimm til sjö prósent vexti.

Þegar stýrivextir voru yfir 15 prósent ætlaði allt að ganga af göflunum. Atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin hrópaði í kór og krafðist lækkunar. Árangurinn var sá að stýrivextir voru lækkaðir, krónan féll og verðbólga hækkaði. 

Skilaboðin sem almenningi eru send með neikvæðum vöxtum er að það borgi sig ekki að spara.


Mun Steingrímur J. espa útlendinga gegn Íslandi?

Pólitískt líf ríkisstjórnarinnar og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra sérstaklega hangir á bláþræði Icesave-samningsins. Steingrímur J. er búinn að hengja myllustein Icesave um háls sér og þarf aðstoð til að halda sér á floti. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra viðurkennir mistök í Icesave-málinu og þar með gefa ráðherrar Samfylkingarinnar tóninn; Steingrími J. má fórna.

Eina haldreipi Steingríms J. er að telja fólki trú um að Ísland einangrist nema að skrifa upp á manndrápsskuldbindingarnar. Formaður Vg er þarna kominn í framandi hlutverk, að hræða landsmenn sína til að gangast undir ofríki útlendinga. Sá hráskinnaleikur verður fjármálaráðherra dýrkeyptur þegar það rennur upp fyrir almenningi að pólitískt framhaldslíf Steingríms J. muni leiða óbornar kynslóðir Íslendinga í skuldafen. 

Það eru takmörk fyrir því hvað ráðherrastóll má kosta.


mbl.is Þjóðarbúið ekki á hliðina vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnin á að falla með Icesave

Ríkisstjórnin á að segja af sér um leið og Alþingi fellir Icesave-samninginn. Alþjóðasamfélagið skilur stjórnarkreppur, það er löng reynsla af þeim erlendis. Þótt við höfnum Icesave-samningnum erum við sem þjóð ekki þar með að segja að við munum ekki semja um málið. Við viljum betri samning.

Steingrímur ætti að spara heimsendavælið og horfast í augu við staðreynd málsins. Icesave-samningurinn er lélegur og við eigum að annan kost en að samþykkja hann. Þótt ein ríkisstjórn falli í leiðinni er það ekkert tiltökumál. Það kostar smáaura að búa til nýja ríkisstjórn og margir í biðröðinni til að sitja stjórnarráðið. Aftur er enginn í biðröð til að standa undir drápsklyfjum Icesave-samningsins.


mbl.is Strandi Icesave, strandar allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dramakerlingarnar Mörður og Silja Bára

Ef við samþykkjum ekki Icesave-samningana verður Ísland eins og Albanía, segir Mörður Árnason og hefur eftir Silju Báru Ómarsdóttur sem fékk það hjá nafnlausum Breta. Þegar aðildarsinnar og Icesaveistar eru komnir á kaf í valkvæða móðursýki hvernig væri að gefa okkur almennilegt trukk.

Hvað með þetta: Ef við samþykkjum ekki Icesave verður Ísland notað sem æfingasvæði fyrir kjarnorkusprengjur. 

Eða: ...við verðum öll flutt til Wales þar sem enginn vill búa.

 Annað:...íslenskar konur verða allar gerðar ófrjóar til að fyrirbyggja útungun á fjármálasnillingum.

 


Þjófnaður í aukasetningu

Verðbólga er samkvæmt nýjustu mælingum 12 prósent. Stýrivextir Seðlabankans eru sama prósentutala. Hvers vegna bera almennir reikningar sem fólk notar aðeins fimm til sjö prósent vexti? Hvers vegna stela bankarnir mismuninum?

Skýringin sem gefin er í fréttaskýringu Morgunblaðins í dag er ekki trúverðug. Þar segir í aukasetningu með umfjöllun um verðmat bankanna að það sé gjaldeyrisójöfnuður hjá bönkunum sem

felst í því að vextir bankanna af innlánum í krónum hafa verið mun hærri en vextir þeirra á útlánum í erlendri mynt.

Í framhaldi af þessum fjármálaprósa segir að bankarnir eigi svo mikið af útlendum peningum sem beri lága vexti og því sé nauðsynlegt að ræna íslenska sparifjáreigendur til að vega upp þann mun.

Ef bankarnir sitja uppi með fjallháa stafla af útlendum peningum á lágum vöxtum, hvernig væri að skipta þeim fyrir íslenskar krónur? Þá myndi gengi krónunnar hækka og verðbólga lækka.

Er skýringin kannski sú að fjármálafíflin sem komu okkur út í kviksyndið stýri enn peningageiranum og ljúga að okkur endurhannaðri sögu um nýju fötin keisarans?


Sátt um þjóðargjaldþrot, nei takk

Ef aðilar vinnumarkaðarins skrifa upp á sáttmála sem ekki gerir ráð fyrir að Icesave-samningarnir verði felldir er verið að sættast á þjóðargjaldþrot. Í samanburði við fjárhæðir Icesave, sem hlaupa á bilinu 650 - 800 milljarða króna, er verið að semja um tittlingaskít í svokölluðum stöðugleikasáttmála.

Það er eins og flestar meginstofnanir þjóðfélagsins ætli að læsa saman klónum og telja okkur trú um að Icesave sé tæknilegt úrlausnarefni.

Ef aðilar vinnumarkaðarins hafa minnsta áhuga á að vinna tilbaka glatað traust væri þeim nær að krefjast þess að Icesave-samningarnir verði felldir en að semja um smátilfærslur á skattabyrði og launaliðum.


mbl.is Undirritað ef sátt næst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðferðishannes

Siðferðishannes starfaði innan laga og reglna vegna þess að hann fékk rúmar reglur til að starfa eftir, einkum frá Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokki. Siðferðishannes var innan ramma siðgæðis vegna þess að viðskiptafélagar hans keyptu fjölmiðla til að víkka siðarammann. Siðferðishannes var alþýðuhetja sem viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson, lagði sig fram um að mæra.

Siðferðishannes mun ekki rotna í fangelsi vegna þess að Lögmannafélag Íslands vill slá skjaldborg um þjófa með hvíta flibba.


mbl.is Hannes segist ekki hafa brotið lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband