Þriðjudagur, 22. júní 2021
Haraldur: handlangari Þórdísar eða fallinn foringi
Tveir kostir Haraldar Benedikssonar eru að verða handlangari Þórdísar Reykfjörð annars vegar og hins vegar falla sem foringi.
Áður en Haraldur lét þau orð falla, að hann byði sig fram sem oddvita en ekki liðsmann, stóð sá möguleiki opinn að sætta sig við niðurstöðu prófkjörsins án opinberra eftirmála.
En Haraldur valdi þann kost að bjóða sig fram sem foringja en ekki félaga. Nokkur munur þar á.
Félagi getur sem best orðið handlangari ef það er í þágu flokks og málstaðar. Oddviti heldur síður, verður auðveldlega til ama, bæði sjálfum sér og öðrum.
Valþröng Haraldar sýnir tvöfeldni stjórnmálanna. Í einn stað eiga þau að þjóna samfélaginu. Í annan stað eru stjórnmál valdabarátta kallaðra, grimmust meðal samherja. Útvaldir eru fáir.
Haraldur ætti að axla sín skinn úr því sem komið er. Ef köllunin er enn á sínum stað rísa fallnir foringjar á fætur og finna sér annað föruneyti.
![]() |
Segir að snúið hafi verið út úr orðum sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 21. júní 2021
Eineltismenning blaðamanna
Um 35 blaðamenn hafa orðið fyrir einelti á vinnustað, samkvæmt könnun Blaðamannafélags RÚV.
Blaðamenn í vaxandi mæli stunda atlögufréttamennsku þar sem einstaklingar og fyrirtæki eru tekin fyrir með síbyljufréttum og virkni í athugasemdum á félagsmiðlum. ,,Að taka menn niður," er þetta kallað í faginu.
Þegar starfsstétt tileinkar sér harðsvíraðan afflutning málsatvika er hætt við að siðferði á vinnustað hraki. Það gæti skýrt eineltismenninguna.
Við bíðum eftir raðfréttum hagsmunahópsins á Efstaleiti um einelti í blaðamannastétt.
![]() |
Fjölmiðlafólki ógnað í starfi sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. júní 2021
Trans-ekkjur og byrði karlmennskunnar
Sumir karlar kikna undir oki karlmennskunnar og gerast konur, eru þá kallaðir transkonur. Eitruð karlmennska er viðkvæðið í menningunni og það er ekki allra að glíma við þá áþján.
Karlar í hjónabandi sem kvenvæðast með skurðaðgerðum og hormónameðferð skilja eftir sig það sem kallað er trans-ekkjur. Eiginkonan, sem áður var í gagnkynhneigðu hjónabandi, er komin í lesbískt samband eftir kynskipti eiginmannsins. Ef eiginkonan segir múkk er hún óðara stimpluð transfóbísk og fær hatursrússíbanareið á félagsmiðlum. Þess vegna þegir þorri trans-ekkna.
Í Bretlandi, móðurlandi vestrænna mannréttinda, eiga konur útgönguleið ef þannig háttar að karlinn fær löngun að verða kerling. Eiginkonurnar eiga þann rétt að ógilda hjónaband áður en það verður lesbískt. Þá verða karlar á leið í kynskiptaaðgerð að fá samþykki spúsunnar.
En nú er hætta á að þessari útgönguleið verði lokað. Krafa hinsegin-samtaka er að afnema skuli þann lagabókstaf er heimilar ógildingu hjónabands á þeim grunni að makinn skiptir um kyn. Ekki verður lengur krafist samþykkis maka fyrir vegferðinni frá einu kyni í annað, nái hinseginkrafan fram að ganga.
Telegraph fjallar um trans-ekkjurnar í Bretlandi og vandkvæði þeirra.
Valhöll og Vinstri grænir ættu kannski að kynna sér málið áður en lengra er haldið í kynrænu sjálfræði þar sem tíska og smekkur kemur á undan líffræði. Náttúran ákveður kyn. Þegar karl gefst upp á eigin kyni er það hans einkamál en ekki vandamál samfélagsins. Lög í andstöðu við náttúruna eru ekki sniðug þótt sumum þyki það hipp og kúl að Nonni geti orðið Jónína, detti honum það í hug.
(Innan sviga: hér að ofan, og í umfjöllun Telegraph, er aðeins fjallað um karla er verða kerlingar. Ekki um konur í karlleiðangri. Fæstum dettur í hug að skipta yfir í veikara kynið).
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 20. júní 2021
Miðflokkurinn sigrar í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins
Hvers vegna ættu sjálfstæðismenn að kjósa kynrænt frelsi, ESB orkupakka, hálendisþjóðgarð, Grétu Thunberg og lögleiðingu fíkniefna í boði Sjálfstæðisflokksins?
Samfylktum Sjálfstæðisflokki er ekki treystandi að standa í ístaðinu þegar borgaraleg málefni eru annars vegar.
Á vinatorg skrifar Gústaf Níelsson:
Auðvitað eiga þeir Haraldur og Brynjar að ganga til liðs við Miðflokkinn og flytja þar með vistarverur sjálfstæðisstefnunnar, þar sem henni hefur verið úthýst af skapara sínum í skiptum fyrir samfylkingarvæðingu Sjálfstæðisflokksins með femínísku ívafi.
Erfitt að vera ósammála Gústa.
![]() |
Þórdís sigraði, Haraldur í 2. sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 19. júní 2021
Marx, Peterson og óþörfin að bjarga heiminum
Á legsteini Karl Marx í Highgate-kirkjugarðinum í London stendur: Hugsuðir hingað til hafa reynt að skilja heiminn, en punkturinn er að heiminum þarf að breyta.
Marx er meginhöfundur vinstristjórnmála síðustu 150 ára. Tilraunir til að breyta heiminum í hans anda eru margar. Sovétríkin fyrir hundrað árum og Austur-Evrópa eftir seinna stríð. Kúba, Kambódía og Venesúela eru dæmi frá síðustu áratugum. Eftirtekjan er ónýt samfélög og ótaldar milljónir glataðra mannslífa.
Áður en þú breytir heiminum skaltu tileinka þér nennu og sjálfsaga að taka til í herberginu þínu, segir samtímahugsuðurinn Jordan Peterson. Punkturinn er sá að hafi maður ekki stjórn á eigin lífi sé borin von að maður eigi erindi að bjarga heiminum.
Vinstrimenn sleppa óreiðunni í eigin lífi lausri á samfélagið. Í stað þess að axla ábyrgð á sjálfum sér - taka til í herberginu - krefjast vinstrimenn að heimurinn aðlagi sig persónulegri óreiðu fárra. Menningarstríðið á vesturlöndum í seinni tíð er langvinnt frekjukast fólks sem hefur ekki stjórn á eigin lífi.
Til að ná markmiðum sínum stofna vinstrimenn og frjálslyndir ótal félög, hvert með sína útgáfu af heimsbjörginni. Félagakraðakið er í sífelldri leit að sameiginlegri óvinaímynd til að samfylkja gegn. Stöðugar upphrópanir á félagsmiðlum um þennan eða hinn heimsósómann eru bænakvak friðlausra hópsála sem eru ekki í rónni nema í samfélagsófriði.
Heiminum þarf ekki að bjarga. Óreiðusálirnar ættu að taka sér taki og læra sjálfsbjörg. Við það eitt yrði heimurinn snöggtum betri.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 18. júní 2021
Eimskip játar - hvað með Samskip?
Eimskip játar ,,alvarleg brot á samkeppnislögum vegna víðtæks samráðs við keppinautinn Samskip, sem fólst einna helst í samráði um breytingar á siglingakerfum, takmörkun á flutningsgetu, samráði um álagningu gjalda og afsláttarkjara, samráði um sjóflutninga beggja vegna Atlantshafsins og loks samráði um landflutningaþjónustu á Íslandi."
Hvað er að frétta af hlut Samskipa?
![]() |
Eimskip viðurkennir alvarleg brot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 18. júní 2021
Katrín forsætis: hvar er Umhverfisstofnun?
Forsætisráðherra splæsti á samlíkingu farsóttar og loftslagsváar í 17, júní-ræðu sinni. Katrín sagði:
Við þurfum að halda áfram að takast á við loftslagsvána rétt eins og við tókumst á við faraldurinn; sameiginlega, á grundvelli rannsókna og gagna og með sem bestum upplýsingum til allra þannig að við getum öll lagt okkar af mörkum til að ná árangri í þeirri baráttu.
Í farsótt var upplýsingum miðlað daglega og víðtæk umræða var um talnagögn, smitvarnir og bóluefni. Þegar kemur að loftslagsvá er aftur fátt að frétta.
Eldgosið í Fagradal er þriggja mánaða. Leikmenn hafa reiknað út að koltvísýringurinn, CO2, úr gosinu sé orðinn jafnmikill og árleg losun allrar bílaumferðar á landinu. Þá er eftir að reikna losun vatnsgufu sem er áhrifameiri gróðurhúsalofttegund en CO2. Um 60-70 prósent útblásturs jarðelda er vatnsgufa.
Umhverfisstofnun heldur bókhald um losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum. En þaðan heyrist ekki múkk um áhrif eldvirkninnar á bókhaldið.
Er það kannski vegna þess að í raun er allt bókhaldið byggt á pólitík en ekki vísindum?
![]() |
Hvenær erum við Íslendingar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 17. júní 2021
Ólafur þreyttur á Aufhäuser og Al Thani
Ólafur Ólafsson auðmaður varð stórvesír í íslensku fjármálalífi með kaupunum á Búnaðarbankanum með gervifjárfesti Hauck & Aufhäuser. Um þau kaup segir í frétt mbl.is
þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8% hlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi. Var það afdráttarlaus niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis að stjórnvöld hafi skipulega verið blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunnar.
Þegar veldi Ólafs, sem hverfðist um ráðandi hlut hans í Kaupþingi, riðaði til falls í hruninu var sett á svið annað leikrit, kennt við Al Thani. Ólafur fékk dóm fyrir Al Thani-málið, kærði dóminn til Evrópu, en afturkallaði kæruna sem var tilefnislaus þegar í upphafi.
Nú segist Ólafur þreyttur á að reka mál fyrir íslenskum dómstólum: ,,áhugi minn á að reka mál fyrir íslenskum dómstólum er lítill að fenginni reynslu."
En, óvart, standa mál þannig að Mannréttindadómstóll Evrópu nennir heldur ekki að hlusta á kveinstafi Ólafs.
Ólafi leiðist ekki að græða á viðskiptum á Íslandi, hann er enn að. Aftur finnst kappanum hann ætti að vera undanþeginn íslenskum lögum. Ekki rismikill maður hann Ólafur Ólafsson.
![]() |
Telur engan vafa að brotið hafi verið á rétti Ólafs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 17. júní 2021
Sjálfstæð kona þarf ekki kvóta
Í pólitík, einkum nútímapólitík, standa kynin jafnt, ólíkt t.d. í kraftlyftingum. Það sást síðast í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi þegar Guðrún Hafsteinsdóttir skákaði sitjandi þingmönnum og tók fyrsta sætið.
Þrátt fyrir þau augljósu sannindi að kynin standa jafnt í pólitík ber á þeirri hugsun að konur eigi frátekið sæti sakir kynferðis.
Dálítið gamaldags, satt best að segja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 16. júní 2021
Vændiskaup á Íslandi og Namibíu
Vændiskaup eru ólögleg á Íslandi, eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt.
Hvers vegna upplýsir ekki hagsmunahópurinn á Efstaleiti, sem sérhæfir sig í Namibíu-fréttum, hvernig tekið er á vændiskaupendum þar syðra?
![]() |
Tveggja ára fangelsi fyrir vændiskaup og ofbeldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)