Erfðamengi útrásarinnar

Feðgar og bræður eru áberandi gerendur í útrásinni. Baugsfeðgar, Wernersbræður, Björgólfsfeðgar, Existabræður, Sigfússynir; systkinin Hreiðar Már og Þórdís Sigurðarbörn sýna að kvenleggurinn er ekki undanskilin - móðir þeirra var með í Kaupþingsviðskiptum með syninum en Þórdís hjá Baugi/Dagsbrún.

Rannsókn á erfðamengi útrásarfjölskyldna gæti leitt í ljós sameiginleg eðliseinkenni. Tilgátur um hroka, undirferli, mannfyrirlitningu og hneigð til ofsóknaræðis koma til greina.

Kannski er hægt að finna þjófagenið. Nóbelsverðlaun eru veitt af minna tilefni.


Sérálit Jón Steinars styrkir úrskurðinn

Sérálit dómara vekja að jafnaði efasemdir um úrskurð réttar. Í þessu tilviki styrkir sérálit Jóns Steinars Gunnlaugssonar niðurstöðu Hæstaréttar. Sérálitið kippir stoðunum undan líklegustu málsvörn útrásarauðmannanna um að þeir verði fyrir einelti Davíðs Oddssonar og félaga - en Jón Steinar er þekktur vinur fyrrum forsætisráðherra.

Eftir úrskurð Hæstaréttar og séu fréttir um kyrrsetningu eigna auðmanna réttar er undanhald auðmanna staðfest. Auðmenn komast ekki lengur upp með að haga sér eins og þeir séu yfir lög og rétt hafnir. 

Kvörn réttvísinnar malar hægt en örugglega.


mbl.is Gæsluvarðhald staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ellihrum eins árs stjórn

Ríkisstjórnin er eins árs og komin að fótum fram. Rás atburða er hröð og tíminn skilur ríkisstjórn Jóhönnu Sig. eftir í rykmekki. Ríkisstjórnin býr ekki að neinni framtíðarsýn, ESB-helförin er í óþökk þjóðarinnar og norræna velferðin Steingríms J. er hærri skattar.

Umræðan um endurnýjun stjórnarinnar er að skipta út ráðherrum. Engir ráðherrar breyta þeirri staðreynd að ríkisstjórnin hefur lifað sjálfa sig. Stjórn Jóhönnu Sig. á ekkert erindi við íslenskan samtíma.

Hækja ríkisstjórnarinnar er vandræðagangur Sjálfstæðisflokksins sem stefnir hraðbyri í hatrömm innanflokksátök í stað þess að gera upp við eigin fortíð.

Ríkisstjórnin verður ekki tveggja ára.


Samfylkingin sekkur með evrunni

Evran var meginröksemd Samfylkingarinnar fyrir aðildarumsókn Íslands til Evrópusambandsins. Með evru í stað krónu átti að koma stöðugleiki og hagsæld. Evruland er í ljósum logum segir forsíða Spiegel og Economist líkir skuldum evruríkja við pláguna.

Kreppa evrunnar hefur afhjúpað að gjaldmiðill tryggir hvorki hagsæld né stöðugleika. Orðvar maður eins og nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, Paul Krugman, segir að eina von Grikkja til að komast út úr vítahring skulda og lélegrar samkeppnisstöðu sé að segja skilið við evruna.

Samfylkingin er vopnlaus í baráttunni um stuðning við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. 


Þjófar eru ærulausir

Sá sem stelur er áður búinn að tapa sjálfsvirðingunni. Samfélagsþjónusta færir engum sjálfsvirðinguna á ný. Til að hamla gegn þjófavæðingu síðustu ára þarf samfélagið að herða viðurlögin við þjófnaði. Ef þjófar vita fyrirfram að þeir sleppa ekki með væga refsingu eru örlitlar líkur á að þeir læri að bera virðingu fyrir lögum og reglu.
mbl.is Geta greitt sekt en borga ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evran er í gjörgæslu

Evran er misheppnaður gjaldmiðill og þarf þess vegna á neyðarhjálp að halda. Neyðarsjóðurinn sem ákveðið var í hasti að setja saman er til að hindra að áhlaup verði gert á skuldugustu evru-ríkin í Suður-Evrópu. Þeir sem borga stærstan hluta herkostnaðarins við að halda uppi ónýtum gjaldmiðli, Þjóðverjar, mótmæla hástöfum. Stjórnarflokkurinn, Kristilegir demókratar, beið afhroð í fylkiskosningum um helgina, ekki síst vegna vandræðanna með evruna.

Í frétt Spiegel er haft eftir Merkel kanslara að björgunaraðgerðir fyrir evru séu til að verja fjárhag þýsks almennings: Wir schützen das Geld der Menschen in Deutschland.

Alkunna er að evran er pólitískt verkefni Evrópusambandsins og alls ekki í þágu Þjóðverja sem bjuggu við stöðugt þýskt mark. Mótsögnin í orðum kanslarans, eins og málið blasir við Þjóðverjum, er að hún vill kosta meiru til að verja evrópska myntverkefnið sem sannanlega gengur ekki upp.

Lokamálsgrein fréttar Spiegel segir frá því að þýsk og hollensk stjórnvöld hafi komið í veg fyrir að neyðarsjóðurinn yrði færður í hendur embættismanna í Brussel. Evrópusambandið nýtir sér iðulega pólitískar og efnahagslegar viðsjár til að efla yfirþjóðlega valdið í Brussel. Ákvörðun um sameiginlega mynt var tekin fyrir 20 árum þegar þýsku ríkin sameinuðust.

Evran verður í gjörgæslu um langa framtíð enda eru þau margvísleg álitamálin sem fjármálakreppan þvingar Evrópusambandið og aðildarríki þess til að taka afstöðu til, eins og Evans-Pritchard segir frá í Telegraph.

 


mbl.is Vilja neyðarsjóð fyrir evruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Terrorupplegg Jóhönnu og Össurar

Jóhanna og Össur lögðu upp með þá dagskrá fundarins í kvöld að ræða sameiningu ráðuneyta og pólitíska aftöku Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Engin þörf var á þessum dagskrárlið.

Hugmynd Jóhönnu og Össurar er að knésetja andstöðuna í Vinstri grænum gegn aðildarferli að Evrópusambandinu með því að flæma Jón úr ráðherrastól.

Samfylkingin rekur sviðna-jörð-pólitík gegn Vinstri grænum.


mbl.is Breytingar ræddar áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vg standi í lappirnar

Vinstri grænir eru með hreinar hendur af útrás og spillingu. Samfylkingin er ormétinn af tækifærissinnum með styrkjafortíð og ferilsskrá meðhlaupara útrásar. Við þessar aðstæður ætti Vg að geta staðið í lappirnar og sagt hingað og ekki lengra við ruglmál Samfylkingarinnar.

Ríkisstjórnin hittist í dag til að leggja línur fyrir næsta þing. Meginkrafa Vg á að vera að draga tilbaka umsóknina um aðild að Evrópusambandinu. Flokksráð Vg samþykkti í janúar einarða afstöðu gegn aðild að ESB.

Vinstri grænir eiga sögulegt tækifæri til að láta að sér kveða í íslenskum stjórnmálum. Valið stendur á milli þess að vera áfram hækja Samfylkingarinnar eða taka skarið og setja sitt mark á umræðuna.


Stjórnmálafarsi er rökrétt niðurstaða afneiturnar

Sveitarstjórnarkosningarnar verða að farsa þökk sé grínframboðum í Reykjavík og Kópavogi. Grínið fær hljómgrunn vegna þess að stjórnmálaflokkarnir hafa ekki 20 mánuðum eftir hrun tekið til í eigin húsi. Útrásarlík eru í farangri Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins. Stjórnmálamenn sem hrunið úrelti sitja sem fastast og gefa þjóðinni langt nef.

Almenningur á ekki marga kosti til að sýna fyrirlitningu sína á afneitun flokkanna. Stuðningur við grínframboð er kærkomið tækifæri til að gjalda flokkunum lausung fyrir lygi.

Helstu fréttir næstu þrjár vikurnar af stjórnmálaumræðunni í landinu verða um frammistöðu og líklegan árangur brandaraframboða. Farsastjórnmál á alfarið að skrifast á reikning Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem bjuggu til jarðveginn fyrir fíflalátum.


mbl.is Heldur fleiri framboð en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Faglegur ruslahaugur Háskóla Íslands

Ríkisstjórnin eyðir hálfum milljarði króna í nefndir, samkvæmt fréttum. Alkunna er að nefndir ríkisins þjóna ýmsum tilgangi, til dæmis að svæfa mál eða veita launauppbót fyrir létt verk og löðurmannleg. Nefnd um faglegan grundvöll stjórnsýslu er trúlega svæfingaruppbótarnefnd fyrir fólk með lítið sjálfsálit en þörf fyrir uppgraderingu á ferilsskránni.

Formaður nefndarinnar er prófessor við Háskóla Íslands, Gunnar Helgi Kristinsson.  Sá prófessor er ruslútgáfa af fræðimanni og getur ekki leiðbeint einum eða neinum um fagleg úrlausnarefni.

Gunnar Helgi lét sér sæma að gefa könnunum Fréttablaðsins um afstöðu almennings til fjölmiðlafrumvarps ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar vetur og vor 2004 faglegt lögmæti með því að vera sérstakur álitsgjafi um niðurstöðurnar, samanber þessa frétt frá 2004.

Fréttablaðið var og er í eigu Baugsfjölskyldunnar sem barðist hatrammlega gegn fjölmiðlalögunum. Skoðanakönnun á vegum Fréttablaðsins 2004 er álíka trúverðug og ef Besti flokkurinn kynnti skoðanakönnum sem segði að 100% Reykvíkinga myndi kjósa flokkinn.

Hvað ætli Gunnar Helgi tæki fyrir að gefa álit á slíkri könnun?


mbl.is Faglegur grundvöllur stjórnsýslu veikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband