Baugsmaður formennskukandídat Sjálfstæðisflokksins

Hrunverjadeild Sjálfstæðisflokksins krefst afsagnar Bjarna Benediktssonar formanns og styður Þorstein Pálsson til formennsku í flokknum. Þorsteinn var ritstjóri Baugsmiðla og lagði nafn sitt og orðspor undir þegar hann sagði Jón Ásgeir minnihlutaeiganda Fréttablaðsins og að hann hefði áhrif eftir því.

Hrunverjadeild Sjálfstæðisflokksins hefur hreiðrað um sig hjá leifunum af Baugsveldinu. Í þessum hópi eru Ari Edwald forstjóri Baugsmiðla og Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins. Aðrir í deildinni eru Þór Sigfússon glæpsamlega snjall forstjóri Sjóvá, Sveinn Andri Sveinsson lögmaður glæpamanna og Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður sem hafði milligöngu um mútufé til Sjálfstæðisflokksins frá útrásarauðmönnum.

Sveinn Andri krefst fyrir hönd hrunverja afsagnar Bjarna Benediktssonar. Jafnframt að Illugi Gunnarsson þingmaður, sem er hægri hönd Bjarna, víki vegna stjórnarsetu í Sjóði 9 hjá Glitni.

Baugslýðveldið er í burðarliðnum.


Háskólar í klappstýruhlutverki

Viðskiptadeild Háskóla Íslands efndi til sérstakrar rannsóknaáætlunar um útrásina þar sem menn gáfu sér fyrirfram að útrásin væri heilbrigð viðskipti. Háskólinn í Reykjavík var fjármagnaður af útrásarauðmönnum.

Háskólasamfélagið brást meginhlutverki sínu um þátttöku í gagnrýnni umræðu. Háskóli Íslands hefur ekkert lært af útrásarruglinu. Evrópusambandið og umræðan um aðild Íslands fær sömu klappstýrumeðferðina og útrásin.


mbl.is Fundar með rektorum vegna skýrslunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnur skilur glæpamenn

Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Arion banka mylur undir útrásarauðmennina sem rændu banka innan frá á útrásarárunum. Fréttir um að Finnur sé grunaður maður vegna starfa sinna sem forstjóri Icebank renna stoðum undir þá kenningu að hann skilji glæpamenn og sé næmur á þarfir þeirra.

Finnur er bankastjóri í skjóli ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Ríkisstjórnin hvorttveggja í senn leyfir grunuðum mönnum eins og Finni að þjóna sínu eðli og jafnframt að  Arion banka leyfist að starfa hér á landi án þess að upplýst sé hverjir eigendur hans séu.

Ríkisstjórnin heykist á því að setja lög um gagnsæi fjármálastarfsemi og lætur menn eins og Finn Sveinbjörnsson stýra banka. 

Það eru fleiri en Finnur sem skilja glæpamenn og þarfir þeirra.


Evrópska kratafrjálshyggjan og hrunið

Íslensku bankarnir þöndust út í skjóli Evrópureglna um bankaviðskipti. Reglurnar eru samdar fyrir Stórríki-Evrópu og innleiddar af íslenskum frjálshyggjukrötum hér heima. Hvorki atvinnulífið á Íslandi né stjórnkerfið var undir það búið takast á við veruleika Stórríkis-Evrópu. Hrunskýrslan staðfestir það.

Brennt barn forðast eldinn og þess vegna munu Íslendingar ekki ljá máls á inngöngu í Evrópusambandið næstu 50 árin. Evrópuför Samfylkingarinnar verður feigðarför flokksins.


Samsæri stóru flokkanna um ábyrgðarleysi

Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin ætla að ná saman um pólitískt ábyrgðarleysi á hruninu. Gangi þessi ætlun fram er samfélaginu gefið langt nef. Stjórnmálamenn úr stórum flokkunum þurfa að axla ábyrgð. Eftir það sem á undan er gengið er ekki nóg að útrásarauðmenn komist undir manna hendur.

Pólitísk ábyrgð þeirra stjórnmálamann sem tóku þátt í útrásarkúltúrnum er veruleg. Stjórnmálamenn eiga að þjóna almennahagsmunum en margir gerðust sekir um sjálftektarhugsun græðgisvæðingarinnar.

Hrunverjar stóru flokkanna munu reyna að snúa bökum saman og gera lítið úr sakargiftum. Þeir stjórnmálamenn sem ætlar sér hlut í endurreistu íslensku samfélagi eiga að gera kröfu um pólitíska ábyrgð.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur víkur ekki frá ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðgisforysta Sjálfstæðisflokksins

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, er ásamt eiginmanni skráð fyrir tæpri tveggja milljarða króna skuld. Þau hjónin fengu niðurfelldar skuldir hjá Kaupþingi kortér fyrir hrun. Varaformaðurinn stendur keikur og telur sér stætt í embætti.

Án efa mun varaformaðurinn skáka í því skjóli að menn eins og Illugi Gunnarsson situr pollrólegur á þingi fyrir flokkinn með Glitnissjóð 9 á bakinu og Guðlaugur Þór er jafnframt í þingliðinu þrátt fyrir að vera milligöngumaður um flokksmútur frá útrásarauðmönnum vegna REI-málsins.

Sjálfstæðisflokkurinn kemst ekki upp með moðreyk eftir útgáfu hrunskýrslunnar. Pólitískt blóð þarf að fljóta úr Valhöll.


mbl.is „Skynjuðu að dansinum var að ljúka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugslýðveldið

Ef Fréttablaðið væri eitt um að segja frá hrunskýrslunni myndu lesendur halda að bankakreppan væri vegna stjórnvalda. Á forsíðu í dag er aðalfyrirsögnin Engin gekkst við ábyrgð. Í undirfyrirsögn er sagt frá mistökum og vanrækslu ráðherra, seðlabankastjóra og forstjóra FME áður en minnst er á eigendur bankanna. Orðalagið verður þá nærgætið: ,,Stærstu hluthafar bankanna fengu óeðlilegan aðgang að lánsfé."

Ólafur Stephensen nýkeyptur ritstjóri á Baugsmiðilinn dregur ekki dul á hver borgar honum launin í leiðara sem ber yfirskriftina Bananalýðveldið. Þar tíundar hann söguna um að persónuleg óvild milli manna hafi valdið hruninu og segir jafnframt að hörðust sé gagnrýnin í skýrslunni á Davíð Oddsson þegar ríkið yfirtók Glitni. Eins og menn muna kallaði Jón Ásgeir, sykurpabbi Ólafs, þann gjörning bankarán.

Fréttablaðið  er aumkunarverðasta útgáfan á norðurhveli jarðar.


Siðleysingjarnir meðal vor

Á morgun rennur upp nýr dagur bankaviðskipta. Stjórnendur endurreistra banka verða að taka ákvörðun um hvort þeir eigi að halda áfram að þjónusta auðmennina sem keyrðu bankakerfið í þrot haustið 2008.

Hrunskýrslan tekur af öll tvímæli  að eigendur gjaldþrota bankanna rændu þá innan frá. Það er ótækt að þessir þjófar fái fyrirgreiðslu til að halda áfram rekstri í einu eða öðru formi.

Arion banki og Landsbankinn viðhalda hugmyndafræði siðleysis með því að veita auðmönnum föllnu bankanna fyrirgreiðslu.

Hingað og ekki lengra. 


Brandaraafsögn Björgvins G.

Björgvin G. Sigurðsson segir af sér sem þingflokksformaður Samfylkingar og Jóhanna Sig. segir í ræðustól á alþingi að það sé að axla ábyrgð. Afsögin er brandari. Þingflokksformennska í Samfylkingunni er tildur sem engu skiptir.

Björgvin G. axlar ábyrgð með því að segja af sér þingmennsku.

Samfylkingin ber ábyrgð á viðskiptaráðherranum fyrrverandi.


mbl.is Björgvin stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískar hreinsanir eftir hrunskýrslu

Stjórnmálin bera ekki aðalábyrgð á hruninu, það gera útrásarauðmennirnir. Endurreisn stjórnmálanna er á hinn bóginn nauðsyn eftir hrunskýrsluna. Það verður á vettvangi stjórnmálanna með lagabreytingum, nýjum vinnubrögðum og ekki síst nýju siðferði sem endurreisn þjóðlífsins fer fram.

Til að stjórnmálin geti staðið undir verkefninu sem bíður verða að fara fram pólitískar hreinsanir. Tveir áfangar eru á nauðsynlegum hreinsunum. Í fyrsta lagi eiga starfandi stjórnmálamenn  að axla ábyrgð með afsögn. Í þessum hópi eru til dæmis Björgvin G. Sigurðsson þingflokksformaður Samfylkingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Í öðru lagi þarf að efna til alþingiskosninga hér á landi ekki síðar en næsta haust. Fyrir kosningar er raðað á lista framboða og þar verður endurnýjun. Við kosningar verður til stjórnmálaumræða sem þjóðin þarf á að halda eftir að hafa metið hrunskýrsluna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband