Laugardagur, 24. apríl 2010
Glæpir og siðvit þingmanns
Gangi einn glæpamaður laus skýtur skökku við að reynt sé að refsa öðrum glæpamönnum. Þessi rök sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson, hefur í frammi er lýsandi fyrir siðferði útrásar. Í prentútgáfu Morgunblaðsins er eftirfarandi haft eftir
Jón segir skjóta skökku við að á sama tíma og stórir þátttakendur í efnahagshruninu stýri stærstu fyrirtækjum landsins á sínum sviðum, s.s. í smásölu, sé þetta mál tafið í þinginu.
Jón þingmaður er þarna að vísa í nafna sinn Ásgeir Baugsstjóra sem fær heimild frá Arion banka að reka áfram Haga. Álit Jón þingmanns Gunnarssonar er að Björgólfur Thor eigi að fá sambærilega þjónustu hjá alþingi og Jón Ásgeir hjá Arion.
Sé það stefna Sjálfstæðisflokksins að veita glæpamönnum allsherjar sakaruppgjöf er rétt að flokkurinn stafi það ofan í almenning.
![]() |
Hugmynd uppi um að Novator njóti ekki arðgreiðslna af Verne |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 23. apríl 2010
Jón Ásgeir Baugsstjóri er prófsteinninn
Prófsteinn á getu nýs bankastjóra Arion er hvernig hann tekur á málefnum Haga, sem er afgangurinn af hrundu Baugsveldi. Forveri Höskuldar fékk viðurnefnið fávísi eftir að hann studdi Jón Ásgeir til áframhaldandi stjórnar á Högum, vegna þess að Jón Ásgeir og familía væru ,,traust".
Banki sem ætlar sér viðskiptavild almennings getur ekki gefið útrásarauðmönnum skuldhreinsaðar eignir á silfurfati.
Haga á að taka frá hrunliðinum sem keyrði félagið í þrot. Högum á að skipta upp og selja fjölskrúðugum hópi kaupenda. Þar með legði Arion eitthvað af mörkum til samfélagsins.
![]() |
Höskuldur H. Ólafsson ráðinn bankastjóri Arion banka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 23. apríl 2010
Hrunsjóðum lokað - en hverjir taka við?
Ríkisvaldið tekur yfir rekstur tveggja stærstu sparisjóða landsins, Sparisjóðnum í Keflavík og Byr, en sá langstærsti, Spron, fór í gjaldþrot skömmu eftir hrun. Græðgishegðun stofnfjáreigenda fékk rökrétta niðurstöðu með þroti hrunsjóðanna.
Ef þeir sparisjóðir sem höfðu borð fyrir báru á tímum útrásar og létu ekki fíflast af auðmönnum hafa burði til að taka yfir reksturinn sem ríkisvaldið leysti til sín yrðu það ágæt tíðindi. Ef sú leið er ekki fær verður að hugsa málið upp nýtt.
Það er ekki góður kostur að ríkið eigi sparisjóðarekstur. Áður hefur komið fram að ríkið hyggst eiga til langframa Landsbankann og hljómar það skynsamlega enda vandfundnir innlendir aðilar sem treystandi er fyrir fjármálastarfsemi. Þó eru þeir til. MP banki kemur þokkalega undan útrás og er eini bankinn sem ekki er á spena ríkisins.
Ef ríkið ætlar að eiga Landsbankann gengur ekki að sparisjóðirnir verði jafnframt á hendi ríkisins. Annað tveggja er í stöðinni; að finna innlenda aðila sem geta átt og rekið sparisjóði eða að fá útlenskan banka, gjarnan norrænan, til að taka yfir reksturinn.
![]() |
Óvissu um sparisjóði lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. apríl 2010
Einstaklingurinn, þjóðin og sjálfstæðisstefnan
Á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem texta frá stofnun flokksins 1929 var hnikað til. Umræður um breytinguna hafa verið nokkrar en engin skýring fengist á þeim. Hér er umrædd klausa úr ályktun flokksráðs nýliðna helgi.
Grunnstef Sjálfstæðisflokksins byggist á víðsýnni umbótastefnu á grundvelli jafnréttis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta að leiðarljósi.
Frumútgáfa þessa texta er enn á heimasíðu flokksins, undir dálkaheitinu Um flokkinn, og hljómar á þennan veg
Þegar Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn sameinuðust árið 1929 undir merkjum nýs flokks, Sjálfstæðisflokksins, var kveðið á um tvö meginatriði sem flokkurinn skildi hafa að leiðarljósi. Annars vegar var því lýst yfir að undanbragðalaust yrði að vinna að því að landið yrði sjálfstætt þegar skilyrði væru til þess samkvæmt sambandslögunum. Hins vegar sagði að flokkurinn ætlaði: Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.
Ítrekað er að hér fari grunntexti sjálfstæðisstefnunnar og segir í beinu framhaldi: ,,Þessi kjarnyrta stefnuyfirlýsing hefur fylgt flokknum allar götur síðan og verið hans leiðarljós."
Flokksráðsfundurinn virðist ætla að breyta leiðarljósi flokksins. Einstaklingurinn og þjóðin víkja en inn kemur jafnrétti.
Hrunið orsakaðist meðal annars af hjarðhegðun ungs fólks sem alið er upp í þeirri jafnréttishugsun að illa gerðu fólki sé jafnvel treystandi og öðru til að fara með forræði í rekstri og mannaforráð.
Þegar flokksráð Sjálfstæðisflokksins gerir eina af forsendum hrunsins að pólitík endurreisnar er kominn upp grundvallarmisskilningur um orsök og afleiðingu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 22. apríl 2010
Byr næstur í þrot
Sparisjóður Keflavíkur hefur það umfram Byr sparisjóð að vera hluti af samfélagi. Byr á ekkert samfélagslegt bakland, það var rifið upp með rótum í græðgisvæðingu eigenda þeirra sparisjóða sem runnu inn í Byr.
Þegar Sparisjóður Keflavíkur fer í þrot er engin ástæða til að halda Byr gangandi. Ríkið getur ekki mismunað sparisjóðum.
Ábyrgðarleysi hefnir sín.
![]() |
Ríkið yfirtekur Sparisjóðinn í Keflavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 22. apríl 2010
Ríkissparisjóður Steingríms J.
Byr er útrásarsparisjóður sem átti að fara á hausinn með Spron og öðru fjármálagóssi útrásarinnar. Steingrímur J. fjármálaráðherra ætlar að gera Byr að ríkissparisjóði samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins. Ríkisstjórnin skuldar okkur skýringar á því hvað hún ætlar með endurreistar fjármálastofnanir. Myndin sem blasir við er ógeðfelld.
Íslandsbanki og Arion banki eru í eigu nafnlausra fjárglæframanna sem hafa keypt kröfur í þrotabú gömlu bankanna. Í þessum bönkum er vélað með framtíð þjóðarinnar eins og útrásin sé enn æðsta boðorðið. Arion færi útrásarauðmönnum eins og Ólafi Ólafssyni og Jóni Ásgeiri Baugsstjóra skuldhreinsaðar eigur á silfurfati. Íslandsbanki er með sérstakt útrásarteymi sem skráð er sem orkuteymi og er ætlað að sölsa undir sig orkulindir þjóðarinnar. Landsbankinn er í eigu ríkisins og heldur m.a. lífi í Baugsmiðlum, væntanlega fyrir orð ríkisstjórnarinnar.
Til viðbótar ætla Steingrímur J. og Jóhanna Sig. að ríkisvæða sparisjóðskerfið og halda á floti ónýtum vörumerkjum eins og Byr.
Hrunið faldi eina af meginstaðreyndum lýðveldssögunnar; ríkisvæddir vinstrimenn eru ekki bestir að reka fjármálastofnanir. Steingrímur J. hættu þessum fíflagangi, láttu Byr gossa og aðra sparisjóði sem græðgisvæddust.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 22. apríl 2010
Jón Ásgeir gerist grátkona
Auðmennirnir sem stóðu að hruninu væla til sín samúð í von um að einfeldningarnir sem féllu fyrir oflæti útrásarauðmanna sjái á þeim aumur. Jón Ásgeir Jóhannesson, kenndur við Baug, skrifar grein í Fréttablaðið, sem Jón Ásgeir á og lætur gjaldþrota matvörukeðju halda uppi með auglýsingafé, en hann fær að stjórna matvörukeðjunni í umboði Arion banka.
Greinin er ekki skrifuð til að játa heldur vekja samúð. Jón Ásgeir skrifaði grein Morgunblaðið í árslok 2008 undir yfirskriftinni Setti ég Ísland á hausinn? - og svaraði auðvitað neitandi. Fyrr í þessum mánuði hótaði Jón Ásgeir fjármálaráðherra undir rós.
Í Fréttablaðinu í dag er Jón Ásgeir ekki með derring heldur væl. Hann er mest sorrí yfir Glitni, bankanum sem hann rændi innan frá. Honum leiðist ekki ránið heldur að hafa verið svo vitlaus að kaupa FL-Group sem óvart átti Glitni.
Eftir hrunskýrslu rennur upp fyrir Jóni Ágeiri að torsóttara verður að fá fyrirgreiðslu hjá íslenskum fjármálastofnunum þegar opinber skýrsla útskýrir hvernig hann rændi banka innan frá. Greinin í dag tilraun til að játa yfirsjónir til að greiða fyrir viðskiptum. Tilvera Jóns Ásgeirs snýst um það sama og á útrásartímum; græða á einfeldningum.
![]() |
Missti iðulega sjónar á góðum gildum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 21. apríl 2010
SA - Samtök afneitara
SA stendur hversdags fyrir Samtök atvinnulífsins og þau héldu aðalfund í dag. Formaður SA afhjúpaði hvað skammstöfunin stendur raunverulega fyrir þegar hann sagði eftirfarandi orð:
Yfirgnæfandi hluti fyrirtækja tók ekki þátt í þeirri hegðan sem lýst er í skýrslu rannsóknarnefndarinnar þótt annað mætti halda af umræðum. Þvert á móti stunda flestir rekstur sinn af kostgæfni, hófsemd, þrautseigju og heiðarleika eins og almennt tíðkast í daglegu lífi fólks.
Formaður Samtaka afneitara hlýtur að telja þjóðina fávita.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 21. apríl 2010
Langvinn kreppa í ESB, stutt á Íslandi
Korktappahagkerfið íslenska skýst upp úr kafi kreppunnar fyrr en ella vegna þess að við höfum íslenska krónu og langa reynslu af því að laga okkur að hagsveiflum sem fylgja atvinnulífi háðu náttúruöflum.
Evrópuríkin, einkum þau á meginlandinu, er með aðra hagsveiflu og atvinnulíf iðnvæddara. Bretar telja sig ekki geta tekið upp evru vegna þess að hagsveiflan er á öðru róli en á Bretlandseyjum.
Samfylkingin bauð upp á Evrópusambandsleið úr kreppunni. Ef farið yrði að ráðum Samfylkingarinnar myndum við hafa hér um 15 prósent atvinnuleysi og ekki sjá fram úr kreppunni á næstu árum.
Drögum umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka.
![]() |
Kreppan grynnri en óttast var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 21. apríl 2010
7,6% atvinnuleysi hér, 10 % í ESB
Atvinnuleysi á Íslandi er minna en spár gerðu ráð fyrir vegna þess að íslenska krónan tók höggið og mildaði áhrif kreppunnar á atvinnustigið. Í Evrópusambandinu er atvinnuleysi 10 prósent að meðaltali. Írar sem fengu yfir sig hrun eins og við en njóta ekki góðs af eigin mynt búa við 13 prósent atvinnuleysi, Spánverjar við tæp 20 prósent.
Ef Samfylkingin fengi að ráða væri hér evrópskt atvinnuleysi upp á annan tug prósenta. Höfum það í huga við næstu kosningar.
![]() |
7,6% atvinnuleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |