Sunnudagur, 14. desember 2014
Fréttahönnun vinstrimanna, eitraða RÚV-DV bandalagið
Engin almenn skilgreining er til á frétt. Eitt algengasta innleggið á Fjölmiðlanördar, umræðuvettvang blaðamanna á feisbúkk, er að hlekkja á frétt og spyrja: er þetta frétt?
Í skjóli þess að fréttamenn vita ekki sjálfir almennilega hvað er frétt og hvað ekki er tiltölulega einfalt að hanna fréttir í þágu tiltekins málstaðar. Vinstrimenn eru þar iðjusamir enda yfirfullt af þeim á fjölmiðlum og þó RÚV og DV sérstaklega.
Í fréttahönnun skiptir máli að ná fram samspili nokkurra fjölmiðla annars vegar og hins vegar stjórnmálamanna. Og ekki er verra ef einhver nennir að smala í mótmæli á Austurvelli. Vinstrimönnum tókst fréttahönnun í máli Hönnu Birnu, þar sem DV og RÚV spiluðu saman með stjórnarandstöðunni, og það tókst að tengja við ókyrrð á Austurvelli, sbr. jæja-hópinn.
Í öðrum tilvikum mistekst fréttahönnun. Stjórnarandstaðan ásamt RÚV-DV bandalaginu reyndi að knýja ríkisstjórnina til eftirgjafar og veita meira fé í RÚV. Fréttir voru búnar til í þágu málstaðarins og efnt var til mótmæla en innan við 300 mættu - um það bil starfsmannafjöldi RÚV.
Eftir þessa misheppnuðu fréttahönnun komu fram pælingar um að RÚV væri elítuútvarp sem ætti að reka með frjálsum framlögum.
Bandalag RÚV og DV í fréttahönnun stórlega gróf undan tiltrú á RÚV. Þekktir RÚV-arar, Egill Helgason og Hallgrímur Thorsteinsson, skynjuðu hve illa RÚV stóð meðal hefðbundinna stuðningsmanna og gáfu út neyðarkall.
Löngum var litið á RÚV sem ábyrgan fjölmiðil en DV faglega ruslahrúgu. RÚV tapar stórt á bandalaginu enda fréttahönnunin bæði ófagleg og óábyrg.
Nýjasta dæmið um fréttahönnun vinstrimanna er tilburðir til að tortryggja að forsætisráðherra fór með eiginkonu sinni til útlanda. Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG og fleiri stjórnarandstöðuþingmenn kyrjuðu á alþingi sönginn um að forsætisráðherra væri fjarverandi á mikilvægum tímapunkti. Svandís kom í RÚV að flytja þessa messu; DV tók málið upp og þar á eftir Grapevine. Tilgangurinn var að hanna þá fréttamynd að forsætisráðherra sinnti ekki vinnunni sinni.
RÚV er miðlægt í fréttahönnun vinstrimanna. Þess vegna sameinuðust þeir á alþingi að krefjast þess að RÚV yrði haldið á floti með skattfé almennings.
![]() |
Dr. Gunni: Vandi RÚV leystur með frjálsum framlögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 13. desember 2014
Vinstrimenn skilja ekki fjölskyldulíf: sjáið Svandísi
Svandís Svavarsdóttir kom í sjónvarp vinstrimanna, RÚV, og sagðist undrast að forsætisráðherra væri fjarverandi fjárlagaumræðu og vildi ekki hlusta á líma-afrita ræður stjórnarandstöðunnar. Tilgangur Svandísar var að tortryggja að forsætisráðherra sinnti fjölskyldu sinni.
Svandís og stjórnarandstaðan reyndi að búa til áhlaup á forsætisráðherra með stuðningi fjölmiðla. Tilefnið var að forsætisráðherra tók fjölskyldu fram yfir ræður stjórnarandstöðu á þingi.
Svandís ætti kannski að fjalla um eigið fjölskyldulíf á opinberum vettvangi, og jafnvel föður síns, áður en hún leggur til atlögu við fjölskyldu forsætisráðherra.
![]() |
Reconsider var endurskoða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 13. desember 2014
Umboðslaus Gunnar Smári? Getur ekki verið.
Gunnar Smári Egilsson setti saman fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Íslandi undir merkjum 365 miðla. Hvorugur þeirra er þjakaður af lítillæti og hógværð og því var næsta skref prentsmiðjurekstur í Bretlandi og blaðaævintýri í Danmörku.
Ógrynni peninga brann upp hjá þeim félögum og komu þeir peningar m.a. frá íslenskum lífeyrissjóðum. Eftir því sem verr gekk í rekstri hljóp veldisvöxtur í draumórana. Gunnar Smári kynnti til sögunnar blaðaútgáfu í Bandaríkjunum, sem ekkert varð af. Umboð sem jafnvel bíræfnustu starfsmenn lífeyrissjóða höfðu til að fjárfesta í skýjaborgum Gunnars Smára og Jóns Ásgeirs hlaut að þverra.
Núna undirbýr Gunnar Smári stofnun stjórnmálahreyfingar sem á að leiða Ísland inn í norska konungsríkið. Hvorki er eftirspurn eftir hugmynd Gunnars Smára hér heima og enn síður í Noregi.
En Gunnar Smári þekkir ekki umboðsleysi. Og er núna kominn með dóm upp á það.
![]() |
Tjón vegna umboðsskorts Gunnars Smára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 13. desember 2014
Hrun, kreppa og reikul valdahlutföll
Hrunið 2008 og kreppan í kjölfarið settu í uppnám valdahlutföll samfélagsins. Auðmenn, sem verið höfðu nokkurs konar þjóðfélagslegir spámenn, og mættu sem slíkir á landsfundi flokkanna, urðu á einni nóttu skúrkar. Ríkisstjórn Geirs H. Haarde féll með brauki og bramli; fyrsta hreina vinstristjórnin var mynduð vorið 2009.
Vinstrimenn trúðu því að nýtt skeið vinstrimeirihluta landsstjórnarinnar væri runnið upp með ríkisstjórn Jóhönnu Sig. Ætlun vinstrimanna var að breyta Íslandi i grundvallaratriðum, með inngöngu í Evrópusambandið og nýrri stjórnarskrá.
Valdadraumar vinstrimanna urðu að martröð þegar rann upp fyrir þeim að leiðangur Jóhönnustjórnarinnar til Evrópu og uppstokkunar stjórnskipunar landsins naut ekki stuðnings þjóðarinnar. Í kosningunum 2013 fékk vinstristjórnin verstu útreið stjórnarflokka i eftirstríðsárasögu vestrænna þjóðfélaga.
Valdahlutföll samfélagsins fengu ekki kjölfestu með ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það sást best þegar embættismenn, fjölmiðlarnir RÚV og DV, ásamt stjórnarandstöðunni tókst að knýja innanríkisráðherra til afsagnar með því að gera litla fjöður að hænsnabúi.
Regluleg mótmæli á Austurvelli eru annar skýr vitnisburður um reikul valdahlutföll. Þeir sem mæta þar, hvort heldur í þágu ESB-umsóknar, Jæja-hópsins eða RÚV telja sig geta sett fyrirætlanir stjórnvalda í uppnám - auðvitað með stuðningi stjórnarandstöðu og fjölmiðla eins og DV og RÚV.
Valdahlutföll festast í sessi með stöðugleika í efnahagsmálum og festu í stjórnmálum. Hvorttveggja tekur tíma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 12. desember 2014
Jón Ásgeir á bak við kaup Binga á DV
365 miðlar verða fjarskiptafyrirtæki Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Fjölmiðlahluti 365 miðla verður sameinaður DV/Eyjunni/Pressunni undir forystu Björns Inga Hrafnssonar.
Jón Ásgeir er með tögl og haldir á útgáfufyrirtæki Björns Inga sem er þekktur fyrir tengsl sín við útrásarauðmennina allt frá REI-málinu þegar Björn Ingi var í hlutverki borgarfulltrúa að veita auðmönnum aðgang að eigum Orkuveitu Reykjavíkur. ,,Besti díll Íslandssögunnar", var sms-ið sem Björn Ingi fékk frá Jóni Ásgeiri á sínum tíma.
Björn Ingi er kominn með undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu og byrjaður að samþætta DV og Eyjuna/Pressuna. Hvergi er komið fram opinberlega að Jón Ásgeir er maðurinn á bakvið uppgang Björns Inga, sem er með reglulegan Eyju-þátt á 365-miðlum Jóns Ásgeirs.
Samkeppniseftirlitið myndi ekki líta það hýru auga að DV/Eyjan og Pressan auk fjölmiðlahluta 365 miðla yrði eitt og sama fyrirtækið. Enda fer það ekki hátt.
![]() |
365 miðlar og Tal hafa sameinast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 12. desember 2014
300 vinstrimenn vilja RÚV
Þarf að ræða þetta eitthvað frekar?
![]() |
Hátt í 300 sýna samstöðu með RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 12. desember 2014
Rekum RÚV á frjálsum framlögum
Mælikvarði á meðbyr RÚV í samfélaginu væri að láta fyrirtækið reka sig á frjálsum framlögum annars vegar og hins vegar auglýsingatekjum.
Þegar talsmenn RÚV stinga upp á þessari leið ætti meirihluti alþingis að taka áskoruninni og afnema allar greiðslur til RÚV úr opinberum sjóðum fyrir þriðju atkvæðagreiðslu um ríkisfjármálin eftir helgi.
Við sem teljum RÚV gallaða vöru erum þá ekki lengur neydd til að borga í hítina.
![]() |
Vilja fá að borga tvö þúsund kallinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 12. desember 2014
Norska krónan hrynur, íslenska krónan stöðug
Norska krónan tekur dýfu gagnvart dollar á meðan sú íslenska er stöðug, eins og Gunnar Rögnvaldsson tekur saman í bloggi.
Í heiminum geisar gjaldmiðlastríð þar sem dollar styrkist en aðrir gjaldmiðlar veikjast, mismikið og mishratt. Fall norsku krónunnar stafar þó fyrst og fremst af hríðlækkandi olíuverði.
Íslenska krónan er traustasti vinur íslensks almennings í þessum ólgusjó alþjóðahagkerfisins.
![]() |
Spá verðbólgu niður í 0,5-0,8% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 12. desember 2014
Kröfur lækna vondar fyrir samfélagið
Læknar eru með á aðra og þriðju milljón i laun á mánuði og krefjast 50 prósent hærri launa. Kröfur lækna eru ávísun á verra samfélag enda stuðla þær að launaójafnrétti sem OECD segir í nýrri skýrslu að skaði samfélög.
Læknar beita fyrir sér þeim rökum að ef kaupið hækkar ekki hér þá fari þeir til útlanda þar sem þeir fá hærra kaup. Nú háttar þannig til að læknar í Noregi hafa á skömmum tíma fengið á sig kjaraskerðingu upp á 20% vegna falls norsku krónunnar.
Rök lækna um að þeir fari þangað sem best er borgað hverju sinni eru hlægileg enda yrðu þeir eins og hoppandi kanínur á milli gjaldeyrissvæða eftir því hvernig alþjóðahagkerfið hagar sér.
![]() |
Tæp 40% lækna erlendis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 11. desember 2014
Helgi kapítalisti og Lífeyrissjóða-Helgi
Helgi Magnússon er kapítalisti og ávaxtar sitt pund sem slíkur. Sami Helgi er varaformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna sem er í eigu almennra launamanna.
Kapítalistinn Helgi og þjónninn Helgi í þágu almannahagsmuna eru ekki í mótsögn, segir téður Helgi.
Vitanlega ekki, hugsar fólk, enda engin dæmi í sögunni um andstæða hagsmuni almennings og kapítalista. Og við trúum líka öll á jólasveina.
![]() |
Hagsmunirnir fara saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)