Þriðjudagur, 4. júní 2024
Innfluttir glæpir og ónýt pólitík banabiti Vinstri græna
Um 75 prósent af öllum þeim sem sátu í gæsluvarðhaldi á Íslandi á síðasta ári eru útlendingar, segir í frétt Mbl.is Gæsluvarðhaldi er aðeins beitt í alvarlegum brotum. Hverjir eru það sem standa fyrir opingáttarstefnu í útlendingamálum í ríkisstjórninni? Jú, Vinstri grænir.
Hver eru önnur frægðarmál Vinstri grænna? Jú, bábiljufræði um manngerða hlýnun jarðar og transmenningu sem kennir að hægt sé að fæðast í röngum líkama en það er óvart líffræðilegur ómöguleiki.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur líða önn fyrir að púkka upp á Vinstri græna í ríkisstjórn. Neitunarvald jaðarflokks hefur stórskaðað borgaralegu flokkana, sem sést á jafnri og stöðugri fylgisaukningu Miðflokksins.
Starfsmaður þingflokks Vinstri grænna, Sunna Valgerðardóttir, áður aktívisti á RÚV, skrifar færslu þar sem hún kennir Sjálfstæðisflokknum um ófarir Vinstri grænna. Eins og aktívista er háttur snýr Sunna öllu á hvolf.
Vinstri grænir berjast fyrir töpuðum málstað, ekki í einum bardaga heldur á allri pólitísku víglínunni. Vegferð hins meginflokks vinstrimanna hér á landi sýnir glöggt einangrun Vinstri grænna. Samfylkingin klæðir sig upp í að verða borgaralegur flokkur, ætlar að skilja Vinstri græna eftir með Pírötum, sem mynda öxul óreiðuvinstrisins.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar sparkaði í Vg-líkið þegar hún í gær kvartaði hástöfum á alþingi um skort á lögregluliði til að hemja innfluttan afbrotafaraldur Vinstri grænna.
Vinstri grænir ljúka kjörtímabilinu hvorki með fylgi né forseta. Sjálfskaparvítin eru verst.
![]() |
Starfsmaður VG: Samstarfið að þurrka út flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 3. júní 2024
Bíða Kristrúnar Katrínarörlög?
Rétt fyrir kjördag stóð Katrín Jakobsdóttir tæpt gagnvart Höllu Tómasdóttur. Fyrir þrem vikum var Halla Hrund helsti keppinauturinn en lét undan síga þrátt fyrir loforð um að grípa í taumana léti ríkisstjórnin af því verða að selja Landsvirkjun - kosningamál sem ætti að höfða til vinstrihópa. Eitthvað samræmt gerðist á bakvið tjöldin sólarhringinn fyrir kjördag.
Halla Tómasdóttir, skrifar Björn Bjarnason, á ýmislegt að
þakka þeim forystumönnum sem lögðu öðrum frambjóðendum lið fram á síðasta dag en hvöttu svo kjósendur á síðustu stundu til að kjósa Höllu T. í því skyni að koma í veg fyrir að Katrín Jakobsdóttir sigraði.
Það er ekki einleikið að fylgi fyrrum varaþingmanns Samfylkingar, Baldurs Þórhallssonar, sópaðist frá honum á lokametrunum. Örfáum dögum fyrir kosningar mældist fylgi Baldurs 16 til 18 prósent en á kjördag fékk hann átta prósent.
Ef um var að ræða ,,taktískt" val kjósenda hefði fylgi Baldurs átt að dreifast. En það gerðist ekki. Katrín hélt sínu kannanafylgi en Halla Tómasdóttir tók stökk á kjördag. Kjaftakvörn Samfylkingar sendi út samræmd skilaboð.
Stuðningsmenn Katrínar úr röðum vinstrimanna kunna kratakvörninni litlar þakkir. Prinsessa Samfylkingar, Kristrún Frostadóttir, á fyrir höndum langan og strangan kosningavetur. Hún er með í farteskinu óuppgerð mál. Til dæmis lukkupott sem reyndist skattaundanskot.
![]() |
Halla fyrsti forsetinn af hægri vængnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 2. júní 2024
Svarti svanurinn Halla Tómasdóttir
Kynrænt sjálfræði reið ekki feitum hesti frá forsetakosningunum 2024. Stuðningsmenn Baldurs yfirgáfu hann í massavís til að hindra framgang Katrínar á Bessastaði. Kynrænt sjálfræði er lagaheitið á transmenningunni sem Katrín innleiddi með lögum 2019 og Baldur er fulltrúi fyrir, bæði í Reykjavík og Berlín.
Náttúruvernd fékk einnig á kjaftinn. Halla Hrund er 21stu aldar útgáfa af Sigríði í Brattholti. Halla Hrund ætlaði að beita neitunarvaldi á einkavæðingu Landsvirkjunar, líkt og Sigríður kom í veg fyrir að Gullfossi yrði sökkt í byrjun síðustu aldar. En nei, stuðningsmenn Höllu Hrundar, líkt og bakland Baldurs, töldu brýnast að Katrín yrði ekki forseti. Lagði Katrín þó á sig eyðimerkurgöngu að Ok, litlu jökulnefnunni sem hávaðafólkið í hamfarakórnum kallar til vitnis um manngerða hlýnun jarðar.
Sigurvegarinn, Halla Tómasdóttir, er fulltrúi viðskipamenningarinnar. Hún var formaður Viðskiptaráðs og fundarstjóri á Baugsdeginum kortéri fyrir hrun. Græða yfir daginn, grilla á kvöldin. Nú heitir það reyndar að ,,uppfæra viðmið".
Í vísindaheimspeki er til hugtakið svarti svanurinn. Það vísar til óvæntrar niðurstöðu sem byltir skilningi manna á fyrirbærum er áður þóttu fullnumin. Á yfirborðinu átti Katrín að verða forseti. Undirmál kosningabaráttunnar, þar sem þjóðarsálin geymir sig og kannanir nema ekki, voru: Við viljum ekki Katrínu drottningu, þótt hún sé alls góðs makleg.
Halla hefur alla burði til að verða góður og farsæll forseti. Hún er heimsvön eiginkona og tveggja barna móðir. Hálfsextug tekur hún við embætti og lætur það vonandi ekki af hendi fyrr en á níræðisaldri. Þjóðhöfðingjar eiga að sitja lengi og eldast fallega.
![]() |
Halla: Mér líður ótrúlega vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 1. júní 2024
Landsréttur: Þórður Snær féll á eigin bragði
,,Þórður Snær [hefur] sjálfur ítrekað á opinberum vettvangi fjallað á afar gagnrýninn hátt um þá sakamálarannsókn [byrlunar- og símastuldsmálið] sem mál þetta er sprottið af."
Tilvitnunin hér að ofan er í dóm landsréttar sem í gær sneri við dómi héraðsdóms Reykjavíkur og sýknaði tilfallandi af ærumeiðingum í garð tveggja blaðamanna RSK-miðla, þeirra Þórðar Snæs ritstjóra Heimildarinnar og Arnars Þórs Ingólfssonar blaðamanns á sama miðli.
Þórður Snær hefur ítrekað haldið fram stóryrtum ósannindum í byrlunar- og símastuldsmálinu. Skömmu eftir að tilfallandi hóf að skrifa um málið, í nóvember 2021, birti Þórður Snær reiðilestur með fyrirsögninni Glæpur í höfði Páls Vilhjálmssonar. Þar sagði hann enga lögreglurannsókn standa yfir á byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Þórður Snær sagði um bloggara að hann væri ,,skítugur maður með rætna bloggsíðu sem hann notar til að ljúga upp á fólk og gera þeim upp meiningar."
Þórður Snær varð sakborningur þrem mánuðum seinna, í febrúar 2022, vegna sakamálarannsóknar sem átti aðeins að vera hugarfóstur bloggara. Ritstjórinn lagði á flótta undan réttvísinni, mætti ekki í skýrslutöku fyrr en í ágúst. Eftir að fá réttarstöðu grunaðs manns hélt Þórður Snær fram þeim ósannindum að lögreglan væri á höttunum eftir heimildarmanni. En lögreglan vissi um heimildarmann blaðamanna RSK-miðla. Afneitun ritstjórans á veruleikanum náði nýjum lægðum þegar hann fullyrti að Páli skipstjóra hefði ekki verið byrlað og að lögreglan þjónaði annarlegum hagsmunum. Mergurinn málsins er að alvarlegir glæpir voru framdir vorið 2021. RSK-miðlar eru miðlægir í þeim glæpum.
Landsréttur bendir á að Þórður Snær og Arnar Þór vissu áður en þeir hófu umfjöllun sína um Pál skipstjóra að gögnin væru þýfi, tekin frá meðvitundarlausum manni á gjörgæslu:
Í málinu liggur einnig fyrir að stefndu [Þórður Snær og Arnar Þór] höfðu fyrir umfjöllun sína verið varaðir við því að gögnin sem þeir studdust við væru illa fengin. Þrátt fyrir það tóku þeir ákvörðun um að byggja umfjöllun sína á þessum gögnum og máttu þar af leiðandi reikna með að fréttaskýringu þeirra yrði svarað hvasst.
Við dómsuppsögu landsréttar í Kópavogi í gær gerðist skondið atvik. Tilfallandi var ekki á staðnum en fékk þær fréttir frá tíðindamanni að Þórður Snær og Helgi Seljan rannsóknaritstjóri Heimildarinnar hefðu mætt með ljósmyndara til að skrásetja sögulegan atburð. En þegar þeim varð ljóst að dómurinn sýknaði bloggara hurfu þeir á braut með slíku írafári að hastað var á þá af dómverði er gætir formreglna í réttarsal. Atvikið lýsir áliti RSK-liða á réttarvörslunni. ,,Ánægjulegt [er] að vita til þess að réttarkerfið virki eins og það á að gera, sagði Þórður Snær fyrir ári er dómur féll í undirrétti. Í gær rauk ritstjórinn á dyr með bægslagangi er réttarkerfið virkaði ekki í þágu blaðamanna með óhreint mél í pokahorninu.
Dómur landsréttar er tveggja þátta. Í fyrsta lagi staðfestir dómurinn rétt almennra borgara að tjá sig um samfélagslega brýn málefni. Aðkoma blaðamanna þriggja fjölmiðla, RÚV, Stundarinnar og Kjarnans (sem nú heita Heimildin) að byrlun og gagnastuldi er mikilvægt mál þótt þess sjáist ekki merki í fjölmiðlaumfjöllun. Tilfallandi, sem þekkir til blaðamennsku og fjölmiðlunar, rann blóðið til skyldunnar og fjallaði reglulega um stærstu ósögðu frétt íslenskrar blaðamennsku. Dómurinn undirbyggir tjáningarfrelsið sem verður fyrir atlögu þaðan sem síst skyldi. Lifibrauð blaðamanna er rétturinn til tjáningar. Almennt ættu blaðamenn að fordæma tilraunir til að hefta málfrelsið. Nú þegja þeir unnvörpum. Tilfallandi gerir ekki ráð fyrir að vera boðið í teiti hjá Blaðamannafélagi Íslands fyrir að standa vaktina til varnar frjálsri orðræðu og þar með frjálsri fjölmiðlun. BÍ verðlaunar aftur skúrka eins ljósmyndin í viðtengdri frétt ber með sér.
Í öðru lagi tekur dómurinn fyrir Hamas-taktík blaðamanna RSK-miðla. Þeir stökkva fram með geipilegar ásakanir um mann og annan, segjast sem rannsóknablaðamenn vita um spillingu hér og þar í samfélaginu. En þegar ásakanir blaðamanna reynast fjöldamorð á sannleikanum hlaupast þeir á brott og fela sig á meðal almennings. Tilfallandi tók ekki með silkihönskum á RSK-liðum enda ekki ástæða til. Hryðjuverkablaðamennirnir kröfðust verndar dómstóla fyrir æru sína þegar hallaði á þá í umræðunni. Landsréttur gefur lítið fyrir mannlega skildi RSK-liða. Þórður Snær og Arnar Þór, segir í dómnum,
eru báðir þekktir blaðamenn sem njóta rúms tjáningarfrelsis, meðal annars um málefni sem þeir taka sér fyrir hendur að rannsaka og upplýsa almenning um, þótt umfjöllun kunni að koma sér illa fyrir þá er fyrir verða [...] Þurfa þeir sem sinna slíkum störfum að vera undir það búnir að þola óþægilega og hvassa gagnrýni og aðfinnslur við störf sín.
Blaðamenn á ekki að taka neinum vettlingatökum þegar þeim verður á í messunni. Það eru helgispjöll í réttarríkinu að hylma yfir lögbrot, einkum alvarlegum. Með því að neita allri samvinnu við lögreglu um að upplýsa byrlun og stuld grafa blaðamenn undan samfélagsgildum sem þeir í orði kveðnu þykjast þjóna; heiðarleika og löghlýðni. Bloggari lítur á það sem borgaralega skyldu að segja tíðindi af ósómanum þar sem siðlausir blaðamenn leika lausum hala.
Þórður Snær og félagar búa að vitneskju um aðdraganda og skipulag tilræðisins gegn Páli skipstjóra Steingrímssyni. Þeir neita samvinnu við lögreglu og standa almenningi ekki reikningsskil gjörða sinna. Það sem meira er; á bakvið tjöldin herja RSK-blaðamenn á starfsfélaga sína á öðrum fjölmiðlum og krefjast hollustu, að ekki sé fjallað um byrlunar- og símastuldsmálið. Bloggari tekur ekki þátt í þagnarsamsæri fjölmiðla gegn almannahag.
![]() |
Ætla með mál gegn Páli fyrir Hæstarétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 31. maí 2024
Alþingislöggan, þingræði og óreiða
Á Íslandi er þingræði. Þjóðin kýs sér löggjafa ekki sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Meirihluti alþingis myndar ríkisstjórn, sem er æðsti handhafi framkvæmdavaldsins. Í slag um forsetaembættið er talað um alþingislöggu, sem yfirfæri lagafrumvörp meirihluta þingsins og ýmist samþykkti eða vísaði í þjóðaratkvæði.
Af ástæðum, sem að sumu leyti eru skiljanlegar, snýst umræðan um hluti er varða forsetaembættið lítt eða ekki. Engin hefð hefur skapast um hvað séu eðlileg málefni við forsetakjör og hvað út í bláinn. Forsetakosningar eru sjaldan, með nýjum mönnum og tískumálum í hvert sinn. Afleiðingin er lausung í tali og framgöngu.
Forsetinn er þjóðhöfðingi, ígildi konungs/drottningar í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, þeim löndum sem skyldust eru okkur að stjórnskipun. Við kjósum þjóðhöfðingja en látum eins og kosið sé um forsætisráðherra. Það er ekki gert í þingræðisríki. Löggjafinn, þingið, er æðsta ríkisvaldið. Ekkert framkvæmdavald í þingræðisríki stenst án stuðning þings. Það er sjálf skilgreiningin á þingræði.
En þá fara menn að tala um að forseti Íslands hafi synjunarvaldvald, geti neitað undirskrift á lagafrumvarp frá alþingi. Við synjun virkjast málskot, þjóðin greiðir atkvæði. Þau tvö dæmi um beitingu forseta á málskoti, Icesave I og II, eru ekki marktæk. Allsherjarhrun bankakerfis og ótti við þjóðargjaldþrot er góðu heilli svo afbrigðilegt ástand að fullkomlega tilgangslaust er að ímynda sér að það endurtaki sig. Þriðja tilfellið, um beitingu neitunarvalds forseta, fjölmiðlafrumvarpið, er ekki fordæmisgefandi. Það varð engin þjóðaratkvæðagreiðsla. Frumvarpið var afturkallað.
Ef forseti beitir neitunarvaldi en þjóðin samþykkir lögin sem forseti synjaði stendur þjóðhöfðinginn frammi fyrir umboðsleysi - hann verður að segja af sér. Annars er hann orðinn spéútgáfa af einræðisherra.
Þjóðhöfðingi má ekki við umboðsleysi. Við getum skipt um forsætisráðherra eftir hvernig mál skipast á alþingi, eftir kosningar eða á kjörtímabilinu. En forsetaembættið má ekki verða þingræðinu yfirsterkari, heldur þjónn þess og þar með þjóðarvilja.
![]() |
Baldur og Jón deila um málflutning hvor annars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 30. maí 2024
Eitrað samkrull ákæruvalds og blaðamanna
Namibíumálið er tilraun til réttarmorðs. Bandalag blaðamanna, öðru nafni RSK-miðlar, í samvinnu við embætti héraðssaksóknara ætluðu sér að fá dæmda einstaklinga fyrir sakir sem þeir voru saklausir af. Á árarnar lögðust þingmenn, einkum úr röðum Samfylkingar og Pírata.
Namibíumálið verður til með fundi Kristins Hrafnsonar ritstjóra Wikileaks og Jóhannesar Stefánssonar, ógæfumanns sem flæmdist úr starfi hjá dótturfélagi Samherja í Namibíu um miðjan síðasta áratug vegna óreglu. Í hefndarhug bar Jóhannes þær sakir á saklaust fólk að hafa greitt mútur. Kristinn Hrafnsson kallaði í vin sinn Helga Seljan fréttamann RÚV. Helgi hafði nýverið farið með miklar sakir á hendur Samherja í Seðlabankamálinu. Það mál byggði á fölsuðum gögnum.
Félagarnir Kristinn og Helgi fengu til liðs við sig blaðamanninn Inga Frey Vilhjálmsson á Stundinni. Meginkostur Inga Freys er að bróðir hans Finnur Þór Vilhjálmsson er saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara þegar Namibíumáli er hleypt af stokkunum í nóvember 2019.
Auk RÚV og Stundarinnar hér á landi tryggði Kristinn Hrafnsson sér samvinnu við alþjóðlegan fréttamiðil, Aljazeera. Wikileaks, sem Kristinn ritstýrir, lifir á alþjóðlegum framlögum undir því yfirskini að afhjúpa spillingu.
Tilfallandi nefnir tvö dæmi úr fréttaumfjöllun í nóvember og desember 2019 sem hefðu átt að fá fólk með snefil af dómgreind til að efast um orð Jóhannesar og RSK-miðla. Tökum fyrst umfjöllun Aljazeera sem birtist 1. desember. Þar segir strax í fjórðu efnisgrein:
Andspænis Jóhannesi standa ríkir hagsmunir, pólitískt vald og fjármálarisar, allir í bandalagi, segir Jóhannes, við undirheima suður-afrísku mafíunnar.
Facing Johannes was a formidable array of vested interests, political power and financial behemoths, all in league, Johannes claims, with the murky underworld of the South African mafia.
Namibía var lengi nýlenda Suður-Afríku. Ekki er kunnugt um ítök Samherja í mafíunni þar syðra. En síðar í umfjöllun Aljazeera játar Jóhannes að hafa sjálfur verið í samskiptum við mafíuna í Suður-Afríku eftir að hann hætti hjá Samherja. Jóhannes, segir í fréttinni
kunni að meta samtengda heima viðskipta og mafíu í Suður-Afríku.
he came to appreciate the interconnected worlds of business and the mafia in South Africa.
Augljóst er að Jóhannes er með nokkrar skrúfur lausar. Hann stundar ósiðsamlegt líferni, svo vægt sé til orða tekið, og kemst í kast við lögin en kennir öðrum um. Ranghugmyndir Jóhannesar eru öllum skýrar, sem á annað borð nenna að lesa og hlusta. Nú er ekki víst að þeir hjá embætti héraðssaksóknara fylgist með fréttum á útlensku. En Jóhannes mætti í Kastljós á RÚV 11. desember 2019 þar sem alþjóð mátti sjá hann löðrandi í tvöfeldni. Tilfallandi fjallaði um tilhlaup uppljóstrarans til að gera sig að trúverðugri heimild. Hér er kjarninn úr bloggi með yfirskriftinni Kastljós: fer Jóhannes með sanna sögu eða samsæri?
Á fjórtándu mínútu Kastljóssviðtalsins í kvöld segir Jóhannes þetta: ,,Fyrsta skrefið hjá mér var að upplýsa glæpi Samherja gagnvart kvótahöfum sem voru í samvinnu við þá. Svo þróaðist þetta lengra þegar ég fór að gera mér grein fyrir hvað var í gangi og hvað maður var hluti af."
Spyrill Kastljóss var vitanlega of upptekinn af ,,umræðunni" um spillingu Samherja til að kveikja á orðum Jóhannesar og hvað þau þýða.
Jóhannes byrjar sem sagt því að vinna með namibískum kvótahöfum sem eru viðskiptafélagar Samherja. Hér er á ferðinni viðskiptadeila. Ef Jóhannes var enn í starfi hjá Samherja þegar hann tók að vinna fyrir namibísku kvótahafa er augljóst að hann hafi leikið tveim skjöldum.
Jóhannes segir að það var ekki fyrr en eftir að hann fór að vinna með ósáttum viðskiptafélögum Samherja að hann hafi gert sér ,,grein fyrir hvað var í gangi og hvað maður var hluti af". Hér getur Jóhannes ekki verið að vísa í neitt annað en meginþema umræðunnar, þ.e. meintar mútugreiðslur Samherja til namibískra embættis- og stjórnmálamanna.
Það rennur upp fyrir Jóhannesi, eftir atburðina, að hann hafi verið þátttakandi í spillingu. Nærtækt að álykta að meintar mútugjafir hafi haft fremur sakleysislegt yfirbragð fyrst þær fóru framhjá honum í fyrstu. En það er allt önnur mynd en dregin var upp í Kveiks-þættinum. Þar skipti rauð íþróttataska sneisafull af peningum um hendur mútugjafa og þiggjanda. Sá sem ekki er meðvitaður um að hér sé á ferðinni eitthvað misjafnt, tja, hlýtur að vera meðvitundarlaus.
Sem heimild, hvort heldur blaðamanna eða saksóknara, er Jóhannes járnbrautaslys án eftirlifenda. Það sást þegar í upphafi Namibíumálsins að maðkur var í mysunni. Kexruglaður maður, djúpt sokkinn í áfengi og dóp, er tekinn sem góð og gild heimild. Blaðamenn og ákæruvald vildu trúa Jóhannesi. Hann færði þeim boðskap sem rímaði við fordóma í fjölmiðlum og lattelepjandi embættismannaliði. Að ekki sé minnst á vinstripólitíkusa.
Það sem gerist, í stuttu máli, er að fyrir þrýsting frá ósvífnasta hópi blaðamanna sem starfað hefur á Íslandi og með 200 milljón króna hvatningu frá þingmönnum Samfylkingar og Pírata, fór embætti héraðssaksóknara í leiðangur sem aldrei, aldrei átti að fara. Þessar 200 milljónir snúa að ,,að þeim tíðindum sem bárust á síðustu klukkutímum er varða framkomu Samherja í Namibíu," eins og Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar segir í þingræðu 13. nóvember 2019. Það má með sanni segja að sé mútufé fjárveitingavalds til ákæruvalds.
Namibíuleiðangur blaðamanna, ákæruvalds og þingmanna er tilraun til réttarmorðs. Opinbert ákæruvald á hlut að máli og hlýtur það að hafa eftirmála þegar skelfilegar afleiðingarnar blasa við alþjóð.
![]() |
Telur dómara einnig vanhæfa verði ákært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 29. maí 2024
Vanhæfi Finns Þórs gildir einnig um Namibíumálið
Saksóknarinn í Namibíumálinu, Finnur Þór Vilhjálmsson, skrifaði yfirvöldum í Namibíu bréf 17. október fyrir tveim árum. Tilfallandi bloggaði um bréfið mánuði eftir að það var sent og sagði:
Bréfið er ítarlegt, 12 blaðsíður. Sá sem skrifar undir bréfið er enginn annar en Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari og bróðir Inga Freys blaðamanns Stundarinnar. Gagnkvæmir hagsmunir bræðranna í Namibíumálinu voru gerðir að umtalsefni í tilfallandi athugasemd sl. sunnudag.
Finni Þór er umhugað að hann einn sé til svara gagnvart Namibíumönnum. Í bréfinu er aðeins heimilisfang og tölvupóstur Finns Þórs gefinn upp. Í niðurlagi segir hann að ef namibísk yfirvöld vilja ná sambandi við Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknari, skuli þau samskipti fara í gegnum Finn Þór.
Þegar tilvitnað blogg var skrifað, í nóvember 2022, var það eitt vitað um sameiginlega aðild bræðranna að Namibíumálinu að Finnur Þór saksótti og Ingi Freyr bæði skrifaði fréttir um málið og átti aðild að undirbúa það í hendur héraðssaksóknara þar sem bróðir hans starfar. Namibíumálið er ásakanir RÚV og Heimildarinnar (Stundin/Kjarninn) um að Samherji hafi greitt mútur í Afríkuríkinu til að fá veiðiheimildir. Ingi Freyr var ,,kallaður til" eins og segir í bók um upphaf málsins. Alltaf stóð til af hálfu blaðamanna að beita fyrir Namibíuvagninn embætti héraðssaksóknara. Bræðurnir höfðu áður leikið sama leikinn í Sjólamálinu, Finnur Þór saksótti og Ingi Freyr skrifaði fréttir. Nema síðustu fréttina, þegar málinu var vísað frá dómi. Ingi Freyr þagði, Morgunblaðið sagði.
Í mars 2023 er upplýst að Ingi Freyr er sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu. Bjöllur hefðu átt að hringja hjá embætti héraðssaksóknara. Bróðir saksóknarans í Namibíumálinu er sakborningur í nátengdu máli. Yfirlögfræðingur Samherja Arna McClure er með réttarstöðu grunaðs í Namibíumálinu en brotaþoli í byrlunar- og símastuldsmálinu. Menn þurfa ekki í próf í lögfræði til að sjá að vinnubrögð af þessu tæi ganga ekki. Tilfallandi bloggaði fyrir rúmu ári:
Eina réttarfarslega rétta niðurstaðan sem Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari getur komist að er sú að Finnur Þór sé vanhæfur til að rannsaka Namibíumálið. Ólafur Þór er ekki svo skyni skroppinn að hann setji nýjan saksóknara í að berja til lífs dauða namibíska hrossið.
En, nei, það var látið gott heita að Finnur Þór héldi áfram að rannsaka mál þar sem bróðir hans blaðamaðurinn og sakborningurinn Ingi Freyr átti ríkra hagsmuna að gæta.
Undir lok árs 2023 verður Finnur Þór dómari við héraðsdóm Reykjavíkur og fær skipun í embætti í byrjun árs 2024. Kærumál fyrrum yfirlögfræðings Samherja, Örnu McClure, koma fyrir dóminn. Arna tapað og áfrýjaði til landsréttar. Í gær birtust fréttir um úrskurð landsréttar að dómarinn Finnur Þór gerði alla 24 dómara héraðsdóms Reykjavíkur vanhæfa í málum Örnu McClure.
Í niðurstöðukafla dóms landsréttar segir að Finnur Þór sé
vanhæfur til að fara með rannsókn málsins vegna tengsla sóknaraðila [héraðssaksóknari/Finnur Þór] við rannsókn á máli lögreglustjórans á Norðurlandi eystra þar sem bróðir hans hefur réttarstöðu sakbornings og varnaraðili [Arna McClure] hefur stöðu brotaþola.
Landsréttur segir berum orðum að Finnur Þór hefði ekki átt að fara með rannsókn Namibíumálsins eftir að upplýst var um aðild bróður hans að byrlunar- og símastuldsmálinu.
Í haust verður Namibíumálið fimm ára. Það átti aldrei að verða að máli; blaðamenn keyptu fyllibyttu að segja skrök. En fyrst skrökið varð að opinberri rannsókn átti Finnur Þór aldrei að koma nálægt rannsókninni, sem bróðir hans var ,,kallaður til" að eiga aðild að og setti blaðamannsorðspor sitt að veði að væri eitthvað annað en áfengur uppspuni.
Namibíumálið verður til að frumkvæði spilltra blaðamanna sem gefa sér fyrirfram niðurstöðu og skreyta hana óráðshjali áfengis- og fíkniefnaneytanda. Vinstrimenn á alþingi, Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar þar framarlega í flokki, mögnuðu upp rangar sakargiftir og útvegðu embætti héraðssaksóknara 200 milljónir króna í aukafjárveitingu til að rannsaka alvarlegar ásakanir sem voru úr lausu lofti gripnar. Opinbert fé var lagt til höfuðs saklausu fólki.
Síðast fréttist af Namibíumálinu er sex manna hópur frá embætti héraðssaksóknara heimsótti Afríkuríkið í byrjun árs. Þarlend yfirvöld höfðu ekki hugmynd um erindi hvítingjanna úr norðri. Í Namibíu skilja menn ekki þann hátt opinberra embættismanna á Íslandi að eyða auðfengnu fé, fengnu með pólitískum samböndum, í tilgangslausa óráðsíu. Var einhver að tala um spillingu?
![]() |
Allir dómarar vanhæfir í málinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 28. maí 2024
Bræður í glæpum: allir dómarar héraðsdóms vanhæfir
Allir dómarar í héraðsdómi Reykjavíkur eru vanhæfir til að fjalla um kærumál Örnu McClure fyrrum yfirlögfræðings Samherja. Landsréttur kemst að þessari niðurstöðu. Lítil og látlaus frétt prentútgáfu Morgunblaðsins í morgun segir mikla sögu. Fyrirsögnin er Allir dómarar vanhæfir.
Í máli Örnu sameinast tvö sakamál, Namibíumálið og byrlunar- og símastuldsmálið. Í Namibíumálinu, ásakanir RÚV og Heimildarinnar um mútugjafir Samherja, er Arna sakborningur. Í byrlunar- og símastuldsmálinu er Arna brotaþoli ásamt Páli skipstjóra Steingrímssyni.
Arna kærði til héraðsdóms að hún hefði stöðu sakbornings í Namibíumálinu. Héraðsdómur hafnaði kröfu Örnu. Nú úrskurðar landsréttur að allir dómarar héraðsdóms séu vanhæfir.
En hvers vegna er heill dómstóll vanhæfur? Jú, vegna bræðranna Finns Þórs og Inga Freys Vilhjálmssona. Finnur Þór var saksóknari í Namibíumálinu þegar það hófst með ásökunum RÚV og Heimildarinnar (áður Stundarinnar og Kjarnans) í nóvember 2019. Ingi Freyr er blaðamaður á Heimildinni, áður á Stundinni. Hann er jafnframt sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu. Ingi Freyr undirbjó Namibíumálið í hendur Finns Þórs, eins og tilfallandi vakti athygli á í febrúar á síðasta ári.
Finnur Þór varð dómari við héraðsdóm Reykjavíkur í september 2023. Þar með gerði hann allan dóminn vanhæfan til að fjalla um mál Örnu, samkvæmt úrskurði landsréttar. Í frétt Morgunblaðsins í morgun segir:
Lögð voru fram ný gögn sem sýndu að héraðssaksóknari hefði leynt aðkomu sinni að rannsókn í máli lögreglustjórans á Norðurlandi eystra vegna ætlaðra brota fjölmiðlamanna gagnvart Örnu. Í því máli hefur bróðir Finns Þórs réttarstöðu grunaðs manns.
Í þessum orðum sameinast stærsta fjölmiðla- og réttarfarshneyksli í sögu Íslands. Tvö afar ógeðfelld mál, Namibíumálið og byrlunar- og símastuldsmálið, eru búin til af blaðamönnum til að fremja réttarmorð. Landsréttur segir hingað og ekki lengra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 27. maí 2024
Spurningar sem Hamas-vinir svara ekki
Hamas eru hryðjuverkasamtök, stjórna Gasa og réðust þaðan á Ísrael 7. október í fyrra með fjöldamorð í huga. Um 1200 óbreyttir borgarar lágu í valnum og 200 gíslar voru teknir. Síðan er stríð á milli Hamas og Ísrael.
Hamas-vinir á vesturlöndum réttlæta fjöldamorðin með þeim rökum að gyðingar stálu arabísku landi.
Hvaða landi stálu gyðingar? Engu. Áður en Ísraelsríki var stofnað gekk land, þar sem nú er Ísrael, kaupum og sölum. Tyrkjaveldi hafði forræði yfir landinu fram á annan áratug síðustu aldar er Bretar tóku stjórn mála.
Oren Cahanovitc skorar á Hamas-vini í vestrinu að svara spurningunni hvaða landi var stolið en fær engin svör. Landamæri Ísrael eftir 1948 eru niðurstaða stríðsátaka þar sem sameinuðu arabaríki vildu koma gyðingaríkinu fyrir kattarnef.
Arabar vilja ekki gyðingdóm í landi sem þeir telja að eigi að vera að fullu og öllu leyti undir forræði fylgismanna spámannsins. Nær engir gyðingar búa í arabaríkjum en þeir eru töluvert margir arabarnir í Ísraelsríki og njóta þar lífsgæða sem fæstir þegnar arabaríkja þekkja til nema af afspurn.
Múslímsk trúarmenning stjórnast af stækri gyðingaandúð. Oren Cahanovitc tók saman nokkur dæmi sem ættu að vekja menn til umhugsunar um hugarfarið.
Nú má kannski segja að múslímar hafi rétt á sinni menningu og ef hún hefur horn í síðu gyðinga þá verður svo að vera. Kannski. En þá vaknar spurningin: hvers vegna styðja menn á vesturlöndum trúarmenningu sem er í algjörri andstöðu við vestrænt hugarfar?
ps. Hér að ofan er í tvígang vitnað í Oren Cahanovitc sem heldur úti you-tube rás. Tilfallandi vitnaði fyrst í hann í febrúar. Nálgun Oren á sambúðarvanda gyðinga og araba er blátt áfram og öfgalaus.
![]() |
Hamas gerir árás á Tel Avív |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 26. maí 2024
Þegnskylda, frelsi og ungmenni
Ríki nota herskyldu til að verja sig. Þegnskylduvinna er ekki til að verja ríkið innrás óvinveittra heldur skapa einingu, samræmt göngulag í þágu samfélagsins. Aukabónus er að ungmenni, sem þegnskylduvinnan er einkum hugsuð fyrir, þjálfist að vinna að sameiginlegum markmiðum.
Einstaklingsfrelsið, eins og það hefur þróast á vesturlöndum eftir seinna stríð, gerir lítið með samfélag en þess meira með rétt hvers og eins að haga lífi sínu eins og hann kýs. Einn valkostur er að gera ekkert og lifa á atvinnuleysisbótum og opinberum styrkjum - eða þá foreldrum.
Tillaga Íhaldsflokksins breska um þegnskylduvinnu miðast við að ungmenni 18 ára sem ekki eru í skóla og ekki sinna herþjónustu leggi sitt af mörkum til samfélagsins með vinnukvöð. Hún yrði ekki mjög íþyngjandi, ein helgi í mánuði.
En, eins og kerlingin sagði, það er margt í mörgu. Eftirfarandi tilvitnun er í Harald Guðmundsson þingmann á alþingi Íslendinga fyrir rúmum 80 árum:
Og þetta er ákaflega eðlilegt, þegar fyrst og fremst er lítið til þess atvinnuleysis fyrir ungt fólk, sem var þangað til Bretavinnan kom til sögunnar. Og það var fullkomlega eðlilegt, að menn litu til þegnskylduvinnunnar, þegar hundruð eða þúsundir unglinga áttu engrar atvinnu von og höfðu ekki ástæður til þess að afla sér menntunar.
Vandamálið er ekki nýtt, að ungmenni hafi ekki nóg fyrir stafni og sjái ekki ástæðu til að mennta sig.
Íslendingar felldu með afgerandi hætti, 90% andvígir í þjóðaratkvæðagreiðslu 1916, frumvarp um þegnskylduvinnu. Hér á Íslandi virtist hugmyndin um þegnskylduvinnu að einhverju leyti sprottin af ótta um að sjálfræði sveitamannsins ylli vandræðum er hann flytti á mölina. Stoltur hokurbóndinn yrði að læra samræmt þéttbýlisgöngulag og undirgangast þegnskap bæjar- og þorpssamfélags. Þannig skrifaði Lúðvíg Guðmundsson í Vísi vorið 1941:
Íslenska þjóðin, sem alin er upp við einstaklingshyggju í dreifbýli, var ekki enn undir það búin að veita boðskap hans [um þegnskylduvinnu] viðtöku
Íslendingar, góðu heilli, búa hvorki við herskyldu né þegnskylduvinnu. Við látum skattskylduna nægja.
![]() |
Íhaldsflokkurinn lofar þegnskylduvinnu ungmenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)