Fimmtudagur, 22. september 2016
Búvörulögin og vinstribloggherinn
Vinstribloggherinn reyndi að efna til uppþots vegna búvörulaganna. Aðgerðin var með sama svipmóti og önnur sambærileg uppþot. Afmarkað mál var tekið fyrir, það skrumskælt og ýkt. Sagt var að búvörulögin jafngiltu nokkrum Icesave-samningum og þau væru samsæri gegn neytendum. Til að krydda málið enn frekar voru á lofti ásakanir um dýraníð.
Öflugasti flokkur vinstrimanna, Píratar, fékk á sig holskeflu gagnrýni fyrir hjásetu í málinu. Aumasti flokkur, vinstrimanna,Samfylkin, notaði tækifærið að koma sér á framfæri og krafðist uppstokkunar á landbúnaðarkerfinu. Sérkennilegt bandalag auðhrings og vinstrimanna varð til í hita leiksins þar sem krafist var þjóðaratkvæðagreiðslu.
Kröfunni um þjóðaratkvæðagreiðslu var fylgt eftir með undirskriftarsöfnun á netinu. Allt var til reiðu að efna til útifundar á Austurvelli.
En svo dagaði stóra-búvörumálið uppi. Bloggher vinstrimann tókst ekki að fylgja eftir hávaðanum, þrátt fyrir aðstoð RÚV og annarra fjölmiðla.
Og nú skrifar forsetinn undir búvörulögin. En vinstribloggherinn bíður eftir næsta tækifæri að taka æðiskast og efna til nýrrar atlögu.
![]() |
Forsetinn hefur staðfest búvörulög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 21. september 2016
Eftir Brexit er EES-samningurinn dauðadæmdur
Bretar fara úr Evrópusambandinu og ætla sér ekki að ganga inn í EES-samninginn, sem Ísland, Noregur og Lichtenstein halda uppi. Þar með er EES-samningurinn dauðadæmdur.
Evrópusambandið er þegar með tvíhliða samninga við Sviss um fjölmörg mál. Enginn veit hvernig viðskilnaður Bretlands verður við Evrópusambandið, þótt það eitt sé vitað núna að Bretar ætla sér ekki inn í EES-samninginn. Það þýðir að nýir samningar/samningur verður gerður við Bretland.
Evrópusambandið mun ekki standa fyrir einu samningasetti fyrir Sviss, öðru fyrir Bretland en jafnframt reka áfram EES-samninginn - sem upphaflega var biðsamningur fyrir verðandi aðildarríki Evrópusambandsins.
Bretland eitt og sér er miklu stærra en smáríkjasambandið Noregur-Ísland-Lichtenstein. EES-samningurinn verður aðeins handþurrka fyrir embættisverkið í Brussel, sem mun einbeita sér að halda jafnvæginu í samskiptum við Bretland.
Stjórnvöld eiga að undirbúa afnám EES-samningsins. Á meðan viðræður við Bretland um útgönguskilmála og nýjan samning standa yfir nýtur EES-samningurinn diplómatískrar friðhelgi - en líkið verður afhjúpað um leið og Bretar semja við Evrópusambandið.
Við getum róleg lagt á hilluna alla umræðu um breytingar á stjórnarskránni vegna EES-samningsins.
![]() |
Verður ekki lengra komist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. september 2016
Heimalærdómur er ekki leiðindi - heldur þroski
Heimalærdómur er til að ná betri tökum á námsefni. Nemendur eru misfljótir að tileinka sér námsefni og myndu alls ekki ná tökum á því án heimnáms. Sumir nemendur nota skólann til að stunda félagsskap og vinna heima í staðinn. Aðrir nemendur vinna sér í haginn á skólatíma.
Þótt einhverjir foreldrar sjái ekki tilgang með heimalærdómi eða finnist hann leiðinlegur er nokkuð djarft að hefja uppreisn gegn námsháttum sem þróast hafa í áratugi og gefist vel.
Hvað er skemmtilegra en að læra einhljóð og tvíhljóð sérhljóða með barninu sínu á kvöldin? Eða rifja upp an-regluna? Að ekki sé talað um Íslandssöguna eða náttúrufræði.
![]() |
Ákvað að sleppa heimalærdóminum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 21. september 2016
Katrín og Össur leita að bakdyrum ESB fyrir Ísland
Samfylkingu og Vinstri grænum tókst ekki, hvorki með vélráðum né þvingunum, að troða Íslandi inn í Evrópusambandið á síðasta kjörtímabili. Talsmenn flokkanna, Katrín Jakobsdóttir formaður Vg og Össur Skarphéðinsson skuggaleiðtogi Samfylkingar, eru með samræmdan málflutning á alþingi um að breyta stjórnarskránni til að heimila valdaframsal til yfirþjóðlegra stofnana (les Evrópusambandið).
Össur beitir gamalkunnum rökum ESB-sinna að valdaframsalið sé nú þegar orðið of mikið, vegna EES og Schengen, til að það rúmis innan núgildandi stjórnarskrár. Katrín er lúmskari og talar um að fara að fordæmi Norðmanna.
Bæði eru þau á villigötum. Öll umræða í Evrópu, eftir Brexit, er að færa vald frá miðstýringarvaldinu í Brussel heim til aðildarríkjanna. Ungverjar greiða þjóðaratkvæði um að takmarka rétt ESB til íhlutunar í innanríkismál sín. Skotar eru ekki með nein áform um að leita inngöngu í ESB eftir Brexit. Norðmenn eru stöðugir í andstöðu við ESB-aðild.
Katrín og Össur ættu fremur að játa mistökin með ESB-umsókninni fremur en að læðupokast við bakdyr ESB með tillögur um að útvatna stjórnarskrá lýðveldisins.
![]() |
Vill ákvæði um valdaframsal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 20. september 2016
Ríkið styrkir ójafnrétti í boði fjölmiðla
Fjölmiðlar stunda kerfisbundið kynjamisrétti, segir í einni aðalfrétt dagsins. Aukafrétt dagsins, þessi sem er hér viðtengd, segir að ríkið verði að grípa til ráðstafna að styrkja einmitt þessa sömu fjölmiðla.
Ríkið ætti fremur að hætta öllum stuðningi við fjölmiðla og láta karla og konur um að sinna fjölmiðlun eftir efnum og ástæðum.
Varla getur það verið hlutverk ríkisins að stuðla að kynjamisrétti. Kannski er lærdómurinn einfaldlega sá að ríkisafskipti af frjálsum athöfnum einstaklinga, karla og kvenna, gerir ekki annað en að stuðla að misrétti.
![]() |
Vill bæta rekstrarumhverfi fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. september 2016
Faglegt sjálfsmorð fjölmiðla er séríslenska
Í Guardian er greining á áhrifum samfélagsmiðla á fjölmiðla sem stunda blaðamennsku. Feisbúkk er skæðasti óvinur fjölmiðla og blaðamennsku, segir þar.
Samfélagsmiðlar hirða auglýsingatekjur af blaðamennskumiðlum og verða jafnt og þétt veigameiri uppspretta frétta, er fullyrt í greininni.
Greining Guardian á ekki við Ísland. Hér verða fjölmiðlar, sem gefa sig út fyrir blaðamennsku, æ líkari samfélagsmiðlum að gæðum og efnistökum. Faglegt sjálfsmorð hérlendra fjölmiðla tekur ómakið af samfélagsmiðlum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. september 2016
Orð Birgittu eru lög Pírata
Þá er það staðfest. Stefna Pírata er það sem Birgittu Jónsdóttur dettur í hug hverju sinni.
Þingmaður Pírata, Ásta Guðrún Helgadóttir, telur að Birgitta hafi verið misskilin. Vegna þess hversu stór fígúra Birgitta væri í röðum Pírötum kunni fólk að hafa tekið því þannig að það sem hún segði væru lög.
Ef Birgittu líst illa á framboðslista Pírata er efnt til nýs prófkjörs, þar sem Birgitta og nánustu félagar hennar fá leyfi til að smala - en öðrum er það bannað. Orð Birgittu eru lög. Eins og sumir trúarleiðtogar talar Birgitta tungum. Því þarf sálfræðing að túlka orð hennar.
![]() |
Deilt um völd og pólitíska fortíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 19. september 2016
Gargað á alþingi um skýrslu, nei, samantekt
RÚV, auðvitað, flutti ítarlega frétt í kvöld, bæði í sjónvarpi og útvarpi, þar sem aðalefnið var hávær hneykslun þingmanna stjórnarandstöðu um skýrslu sem má ekki heita því nafni heldur skal það vera samantekt.
Alþingi lítilsvirt, sögðu stjórnarandstöðuþingmenn flaumósa. Sömu þingmenn standa iðulega fyrir ófrið á Austurvelli, til að trufla þingstörf. Þeir stunda málþóf þegar svo ber undir til að koma í veg fyrir framgang þingmála. Allt í þágu virðingar alþingis.
Gargið um skýrslusamantektina er enn ein auglýsingin um málefnaþurrð vinstriflokkanna. En RÚV hélt sig gera vinstriflokkunum gagn með því að birta auglýsinguna, auðvitað.
![]() |
Ekki skýrsla í skilningi þingskapa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 19. september 2016
Ríkisstjórn allra stétta
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerir meiri breytingar á lífeyriskerfinu en sést hefur frá tilurð þess. Jöfnun réttinda launafólks í opinberum störfum og á almenna vinnumarkaðanum til lífeyris verður fylgt eftir með jafnaðarstefnu í launamálum þessara hópa.
Ríkisstjórnin vinnur breytinguna í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins sem í áratugi hafa sett jöfnuð lífeyris á oddinn.
Ríkisstjórn allra stétta hlýtur að fá endurnýjað umboð frá þjóðinni við næstu þingkosingar. Allt annað er glapræði.
![]() |
Eitt lífeyriskerfi fyrir allt launafólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 19. september 2016
Aðlögun, sharía-lög og trúarafneitun
Aðlögun að vestrænu samfélagi krefst trúarafneitunar múslíma, sem fallast ekki á grunngildi vestrænnar menningar um aðskilnað trúar og samfélagsþátttöku.
Ítarlegar rannsóknir á viðhorfum múslíma sýna að meirihluti þeirra eru hlynntir sharía-lögum sem byggja á Kóraninum. Sharía-lög banna trúfrelsi og mæla fyrir um dauðarefsingu fyrir trúskiptinga. Sharia-lög boða kvenfyrirlitningu þar sem konur eru annars flokks borgarar.
Ekki er raunhæft að krefjast þess að múslímar afneiti trú sinni þegar þeir flytja til vesturlanda. Heimspekingurinn Slavoj Zizek horfist í augu við sannleikann þegar hann segir vestræna menningu og múslímamenningu ósamrýmanlega. Múslímar verða að finna sér heimili í átthögum sínum.
![]() |
Þurfa að leggja meiri áherslu á aðlögun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)