Píratar á tvöföldum flótta

Píratar eru á flótta frá kosningaloforđum sínum, eins og Eyjan rekur skilmerkilega. Ţeir eru líka á flótta frá kosningum, sem gćtu orđiđ strax í vor, enda Píratar á fallandi fćti í skođanakönnunum.

Smáflokkastjórn undir forystu Pírata vćri á undanhaldi frá fyrsta degi. Málamiđlunin, sem slík stjórn byggđi á, yrđi lćgsti samnefnari fimm ólíkra flokka. Um leiđ og málamiđlunin mćtti veruleikanum á alţingi og úti í ţjóđfélaginu kćmu í ljós brestir.

Í samfélaginu er engin eftirspurn eftir smáflokkastjórn á flótta frá kosningaloforđum og almenningi. Löngun smáflokkanna í stjórnarráđiđ er ekki nćgur hvati til ađ halda saman ríkisstjórn.


mbl.is Birgitta bjartsýn - 90% líkur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Kristni, jólasveinninn og Píratar

Foreldrar leikskólabarna hafa fengiđ ţau skilabođ ađ ,,í skólanum trúum viđ á jólasveina". Skilabođunum fylgja vinsamleg tilmćli til foreldra ađ eyđileggja ekki jólastemninguna međ afneitun á rauđa feita kallinum.

Píratar ýfast ekki viđ jólasveinatrú, svo vitađ sé. En ţeir rífa sig oní rassgat yfir kirkjuheimsóknum grunnskólabarna, núna síđast Helgi pírati.

Kristni og jólasveinatrú eru af sama meiđi, hluti af menningu okkar og koma nćsta lítiđ viđ trúarsannfćringu fullorđinna, sem velflestir eru trúlausir.

Hvađ myndum viđ segja viđ pírataforeldri sem vildi ekki ađ barniđ sitt lćsi sögur eins og Njálu eđa Hrafnkelssögu vegna ţess ađ siđabođskapurinn hćfđi ekki smekk góđa fólksins? Jú, viđ myndum segja viđ pírataforeldriđ: finndu ţér samfélag til ađ búa í - annađ en ţađ íslenska.


Stađleysuveruleiki - orđ ársins

Orđ ársins í Ţýskalandi er ,,postfaktisch" sem er ţýđing á enska orđinu ,,post-truth" en ţađ var valiđ orđ ársins af Oxford-orđabókinni.

Orđin vísa til skynveruleika í trássi viđ stađreyndir og mćtti ţýđa á íslensku sem stađleysuveruleika.

Á Íslandi voru haldnar ţingkosningar 29. október á grunni stađleysuveruleika. Ef ríkisstjórn verđur mynduđ á sama grunni er hćgt ađ tala um stađleysustjórn. Eđa grípa til ţjálla og nćrtćkara orđs, vinstrivitleysu.


Vinstristjórn tryggir hrun 2017/2018

Fimm flokka vinstristjórn myndi steypa Íslandi í hrun ekki seinna en voriđ 2018. Vinstristjórn stefnir á skattahćkkun, sem dregur úr einkaneyslu, og hlađa skuldum á ríkissjóđ til ađ fjármagna kosningaloforđ.

Afleiđingin verđur ósjálfbćr rekstur ríkissjóđs og samdráttur í hagkerfinu. Ţörf ríkissjóđs á lánsfé ţrýstir upp vöxtum og til verđur vítahringur hárra vaxta og samdráttar.

Stefna sitjandi ríkisstjórnar er ađ nota góđćriđ til ađ greiđa niđur erlendar skuldir og hemja vöxt ríkisútgjalda. Viđ ţađ myndast svigrúm til vaxtalćkkunar í framtíđinni ţegar ţörf verđur á vegna minni tekna af ferđamönnum, sem ekki hafa skilning á ađ viđ ţurfum sterkt gengi til ađ halda uppi góđum lífskjörum.


mbl.is Gćti stefnt í annađ hrun
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

BBC spyr: er ESB ađ hruni komiđ?

Á vef BBC er spurt hvor Evrópusambandiđ sé á síđasta snúningi. Einn ţekktasti sagnfrćđingur Bretlands, Niall Ferguson, sem var andstćđingur brotthvarfs Bretlands úr ESB, segir núna ađ hann hafi haft rangt fyrir sér og styđur útgöngu Bretlands. 

Evrópusambandiđ er misheppnađ segir Ferguson og telur ađ Brexit sé bćđi rökrétt og skynsamleg ákvörđun.

Hér heima rćđa fimm smáflokkar međ ríkisstjórnarţrá ađ endurvekja ESB-umsókn Samfylkingar frá 16. júlí 2009, segi og skrifa 2009. Íslenskum ESB-sinnum er ekki sjálfrátt.


mbl.is Breska ţingiđ samţykkti Brexit
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jón Steinar stýrir dómstóli götunnar

Jón Steinar Gunnlaugsson lögmađur og fyrrum dómari viđ hćstarétt ávarpađi almenning í gćr í Kastljósi og hvatti fólk til ađ vantreysta hćstarétti. Jón Steinar er í vinnu hjá auđmönnum ađ grafa undan tiltrú almennings á réttarkerfinu. Hann skrifađi skýrslu fyrir Ólaf Ólafsson, fyrrum Kaupţingsstjóra, sem dćmdur var í Al Thani-málinu, og berst fyrir endurupptöku.

Jón Steinar starfar og skrifar í ţágu auđmanna. Í sumar skrifar hann: ,,Ţađ tímabil í starfsemi Hćstaréttar Íslands, sem nú stendur yfir, verđur ţegar fram í sćkir taliđ tímabil mestu niđurlćgingar í sögu réttarins."

Samstađa Jóns Steinars međ auđmönnum byrjađi ţegar hann var enn hćstaréttardómari. Áriđ 2009 skilađi Jón Steinar séráliti í dómsmáli vegna Kaupţingsmanna. Auđmenn og málgögn ţeirra taka málflutningi Jóns Steinars fagnandi, samanber forsíđu Fréttablađsins í dag.

Í inngangi sínum, sem vitni Kastljóss í gćr, sagđi Jón Steinar: ,,menn geta orđiđ vanhćfir ţótt ţeir séu ţađ ekki í raun og veru."

Ţađ er nóg, segir Jón Steinar, ađ almenningur trúi ţví ađ dómstólar séu vanhćfir. En einmitt ţannig virkar dómstóll götunnar. Fjölmiđlar og álitsgjafar eins og Jón Steinar telja almenningi trú um ađ dómstólar séu vanhćfir og ţá verđa ţeir vanhćfir. 

Međ Jón Steinar sem lögfrćđing og Kastljós í hlutverki almannatengils eru auđmenn í góđum málum.


Andúđ Jóns Steinars á Markúsi...

hefur engin áhrif á afstöđu Jóns Steinars til atlögu Kastljóss ađ Markúsi Sigurbjörnssyni og hćstarétti.

Vitanlega ekki.

Amen.


mbl.is Vanhćfur fyrir og eftir hrun
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fjölmenning og frjálslyndi töpuđu í Brexit og Trump-sigri

,,Viđ eigum ekki ađ láta ćttbálkahefđir, heiđursreglum eđa sharía-lög ganga fyrir ţýsku réttarríki," sagđi Angela Merkel Ţýskalandskanslari á landsţingi Kristilegra demókrata, um leiđ og hún talađi fyrir búrkubanni.

Merkel bregst viđ breyttum ađstćđum í stjórnmálum á vesturlöndum međ orđrćđu um ađ ţýsk gildi skuli aftur á dagskrá.

Á hverjum tíma eru ráđandi viđmiđ í pólitískri umrćđu. Til skamms tíma voru alţjóđahyggja, fjölmenning og frjálslyndi ráđandi. Samfélagsrammi ţjóđríkisins var úr sér genginn og ţótti heyra fortíđinni til.

Brexit-ţjóđaratkvćđagreiđslan, sigur Trump í Bandaríkjunum ásamt niđurbroti Evrópusambandsins og andstöđu viđ alţjóđavćđingu viđskipta er á fullri ferđ ađ breyta ráđandi viđmiđum.

Vöxtur ţjóđernishyggju og andóf gegn alţjóđaelítum verđur áberandi nćstu misseri og ár. Ómögulegt er ađ segja til um hvort upprisa ţjóđríkisins verđi til langframa eđa millibilsástand. Hinu má slá föstu ađ fjölmenning og frjálslyndi síđustu áratuga fá ekki uppreisn ćru í fyrirsjáanlegri framtíđ. Ţeim kafla er lokiđ. Ţađ er stađreynd en ekki tilfinning.


mbl.is Tilfinningar fram yfir stađreyndir
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Vinstristjórn yrđi pólitísk og efnahagsleg afturför

Sjálfstćđisflokkur og Framsóknarflokkur eru ađalhönnuđir ađ endurreisn efnahags heimila og ţjóđarbúsins eftir hrun.

Eftir óróa og pólitíska upplausn vinstristjórnarinnar 2009-2013 fann ríkisstjórn Sigmundar Davíđs leiđ til ađ forđa Íslandi frá erlendum hrćgömmum annars vegar og hins vegar ađ endurreisa fjárhag heimilanna međ skuldaleiđréttingunni. Grunnur var lagđur ađ langtímavexti hagkerfisins og pólitískum stöđugleika.

Undir ţessum kringumstćđum er tilraun til myndunar smáflokkaríkisstjórnar vinstrimanna ávísun á pólitíska og efnahagslega afturför.


mbl.is Endurreisn Íslands vel á veg komin
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

RÚV undirbjó mótmćli - og Píratastjórn

Kastljós RÚV á mánudagskvöld átti ađ kveikja reiđiöldu í samfélaginu sem myndi leiđa til mótmćla á Austurvelli daginn eftir gegn spilltu kerfi og hvetja til kerfisbreytingar á Íslandi undir forystu Pírata. Bein útsending RÚV frá ţingsetningu og mótmćlafundi skyldi sýna óánćgju landsmanna međ ríkjandi stjórnarfar og kalla eftir uppstokkun á stjórnskipun landsins.

Síđdegis á mánudag kynntu ritstjórar Kastljóss, Ţóra Arnórsdóttir og Helgi Seljan, skandal kvöldsins, um spillingu í hćstarétti, hornsteini réttarkerfisins. Spilađ var á tilfinningar öfundar og tortryggni í fréttinni:

Markús Sigurbjörnsson, hćstaréttardómari og forseti Hćstaréttar, átti hlutabréf fyrir tugi milljóna í Glitni banka á árunum fyrir hrun. Bréfin seldi hann međ miklum hagnađi áriđ 2007. Dómarar viđ Hćstarétt eru ćviráđnir og laun ţeirra međ ţví hćsta sem gerist hjá hinu opinbera til ađ tryggja sjálfstćđi ţeirra.
 
Eins og til var ćtlast tóku ađrir fjölmiđlar undir, sérstaklega 365-miđlar Jóns Ásgeirs Jóhannesson, sem er fastakúnni hjá dómskerfinu, bćđi fyrir og eftir hrun. Gamalkunnugt stef frá tímum síđustu ríkisstjórnar vinstrimanna, um ónýta Ísland, var komiđ međ nýtt viđlag: hćstiréttur er líka gerspilltur.
 
Stjörnuvitni RÚV-Kastljóss, Hjördís Hákonardóttir dómari, var klippt til í viđtali Kastljóss til ađ ţjóna meginbođskapnum um spillta Ísland. Dramatískur inngangur Helga Seljan um spillingu á ćđstu stöđum byggđi á leka úr ţrotabúi Glitnis og frjálslegri túlkun á lögum um vanhćfi dómara.
 
Allt var til reiđu á ţriđjudag fyrir fjöldamótmćli á Austurvelli til ađ knýja fram nýja ríkisstjórn undir forystu Pírata sem lofa ađ ,,tćkla spillinguna". Forsíđa Fréttablađsins ţriđjudagsmorgun féll eins og flís viđ rass viđ RÚV-ţemađ um ónýtt stjórnkerfi sem yrđi ađ bylta.
 
En ţótt RÚV gerđi sitt ítrasta bođađi enginn á samfélagsmiđlum til mótmćla. Stjörnuvitni Kastljóss, Hjördís Hákonardóttir, reyndist hikandi og ósannfćrandi. Almenningur sá í gegnum RÚV-fléttuna og líkađi ekki bandalagiđ viđ auđmennina sem myndu grćđa á falli hćstaréttar.
 
Beina útsending RÚV frá Austurvelli í gćrdag var flöt og óspennandi. Og í ţinghúsinu sátu Píratar hnípnir án stuđnings frá öskrandi mótmćlendum. Um kvöldiđ, ţegar allt var afstađiđ, birti RÚV frétt um ađ forseti hćstaréttar hefđi í einu og öllu fariđ eftir reglum um hlutabréfaviđskipti: ţađ var enginn skandall.
 
Í fréttinni er ţví velt upp hvađan upplýsingarnar um verđbréfaviđskipi Markúsar komu. En fréttastofu RÚV datt ekki í hug ađ spyrja Kastljósfólkiđ Ţóru Arnórsdóttur og Helga Seljan hvađan ţau fengu upplýsingarnar. Mađur nefnir ekki snöru í hengds manns húsi.

mbl.is „Fleira hrundi en bankar haustiđ 2008“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband