Föstudagur, 6. janúar 2017
Ábyrgð foreldra á tvöföldum nauðgara
Ábyrgð foreldra 18 ára drengs sem dæmdur er fyrir tvær nauðganir er nákvæmlega engin, samkvæmt frétt RÚV.
RÚV stillir málinu þannig upp á ríkið hefði átt að bjarga samfélaginu frá nauðgaranum. Þessi framsetning er skammarleg.
Hver einstaklingur ber ábyrgð á sjálfum sér. Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum. Mannréttindi okkar hvíla á þessum sannindum.
Ef ríkið á að bera ábyrgð á glæpum fólks verðum við að veita ríkinu víðtækar heimildir til að stjórna heimilishaldi okkar. Og það viljum við ekki.
![]() |
Dæmdur fyrir 2 nauðganir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 6. janúar 2017
Gunnar Smári stofnar sósíalistaflokk - á RÚV
Maðurinn sem stjórnaði fjölmiðlaveldi Baugs, Gunnar Smári Egilsson, stofnar Sósíalistaflokk Íslands á grunni Fylkisflokksins, sem átti að leiða okkur inn í Noreg.
Gunnar Smári steypti Baugsútgáfunni í Danmörku í glötun og kostaði það 25 milljarða. Sami maðurinn gerðist múslími um tíma, til að vinna fjölmenningu brautargengi.
Síðustu misserin gefur Gunnar Smári í slagtogi við þekkta kapítalista út Fréttatímann. Kapítalistarnir yfirgáfu Gunnar Smára fyrir nokkrum dögum.
Svar Gunnars Smára er að stofna sósíalistaflokk og heimta hærri skatta á kapítalista, sem þó myndi skila fimm milljörðum minna en nemur tapi Gunnars Smára í Danmörku. Dýr yrði Smárinn allur.
Alltaf finnur Gunnar Smári sér viðhlæjendur sem ríma við frelsunarguðspjallið hans hverju sinni. RÚV er skelin sem best hæfir kjafti nýorðins sósíalista.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 5. janúar 2017
Pútín-hatrið og lekinn
Rússar eru sakaðir um að brjótast inn í tölvur kosningamiðstöðvar Demókrata stela þaðan upplýsingum og leka í fjölmiðla. Engar staðreyndir eru fyrir ásökuninni, aðeins ályktanir byggðar á kringumstæðum.
Lekinn er aftur sannar upplýsingar sem kom forsetaframboði Hillary Clinton illa.
Reyndir sérfræðingar í samskiptum Rússa og Bandaríkjanna, t.d. Stephen F. Cohen, telja móðursýkina vegna lekans hluta af almennu Pútín-hatri meðal valdahópa í Washington.
![]() |
Háttsettir vitna gegn Rússum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 5. janúar 2017
Stjórnmálaítök í fjölmiðlum
Stundin er rammpólitískur fjölmiðill. Síðasta kjörtímabil var Stundin nær alltaf sammála stjórnarandstöðunni en oftast ósammála ríkisstjórninni. Stundin og RÚV eru á sama róli.
Smári McCarty pírati er einn af eigendum Stundarinnar og eflaust eru þeir fleiri pólitísku áhugamennirnir sem eiga þar hlut. Ritstjóri útgáfunnar segir Smára ,,aldrei beðið um neitt í staðinn".
Píratar og aðrir vinstrimenn kaupa ekki hlut í RÚV. En þeir tala máli RÚV á alþingi þar sem fjárveitingar til RÚV eru ákveðnar.
Smári þurfti ekki að biðja um eitt eða neitt hjá Stundinni. Hann fékk vinstristefnuna óumbeðið - alveg eins og hjá RÚV.
![]() |
Vill selja hlut sinn í Stundinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. janúar 2017
Mótsögn hamingjunnar
Þeir sem þéna minna en í meðallagi búa við ,,sjálfsmisræmi" og eru haldnir ,,stöðukvíða" og ,,metorðakvíða", segir í frétt af rannsókn um hamingju fólks.
Hamingja er að þessum forsendum gefnum spurning um peninga. Ef allir þénuðu jafnt værum við jafn hamingjusöm.
Á síðustu áratugum er krafan um fjölbreytni ríkjandi í samfélaginu. Fólk á að leita hamingjunnar á eigin forsendum, vera það sjálft.
En allir eiga að vera á jöfnu kaupi, annars verður hamingjunni misskipt.
Augljóst er að fólk getur ekki hvorttveggja í senn tileinkað sér fjölbreyttan lífsstíl en samt verið á jöfnu kaupi. Það liggur í augum uppi að samfélag jafnaðarkaups krefst að allir vinni jafn mikið, búi til jafn mikil verðmæti.
Þessi hugmynd um hamingju gerir ráð fyrir að maðurinn sé neysludýr sem stjórnast af efnislegum verðmætum. Í framkvæmd felur lífsspekin í sér sósíalisma neyslunnar með stöðluðum lífsháttum. Fjarska lítil fjölbreytni þar.
![]() |
Óhamingjusamari ungmenni í góðæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 4. janúar 2017
Góða fólkið og félagsleg sannindi
Félagsleg sannindi eru hálfsannleikur, ýkjur og skröksögur sem magnast upp með endurtekningu, - nú á dögum einkum á samfélagsmiðlum.
Góða fólkið, sem er heilagra en allt annað, hagar lífi sínu í takt við félagsleg sannindi.
Á 16. og 17. öld stóðu svartklæddir menn í predikunarstólum og síbyljuðu félagsleg sannindi þess tíma. Góða fólkið sá um að útfærsluna og brenndi mann og annan lifandi. Í dag er Twitter predikarinn.
![]() |
Vill ekki sjá hana í þættinum hjá sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 4. janúar 2017
Birgitta sniffaði af röngu efni
Birgitta Jónsdóttir pírati er alltaf með svar á reiðum höndum þegar eitthvað gerist í þjóðfélaginu: stofnanir brugðust. Ástæðan er einföld.
Í stofnunum samfélagsins starfa sérfræðingar, fólk með háskólapróf. Birgitta veit að í röðum pírata er nær enginn með æðri prófgráðu. Nokkrir eru með upplognar prófgráður en þær telja ekki. Birgitta móðgar engan pírata þegar hún kennir stofnunum samfélagsins um þegar eitthvað bjátar á.
En í þetta sinn sniffaði Birgitta af röngu efni. Kísilryk er ekki eiturefni.
![]() |
Birgitta segir eftirlitsstofnanir bregðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 4. janúar 2017
Slétt yfirborð leynir óreiðunni undir niðri
Á yfirborðinu eru stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar/Bf sléttar og felldar. Undir niðri er óreiða. Þrjár ástæður eru fyrir því. Í fyrsta lagi sækir Viðreisn/Bf að Sjálfstæðisflokknum í afar viðkvæmu máli, Evrópumálum.
Í öðru lagi verða gífurlega erfið mál á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar, sala ríkiseigna, þar á meðal bankanna. Ríkisstjórn með eins þingmanns meirihluta á alþingi er þar í afar veikri stöðu, einkum þegar vinstriflokkarnir eru sameinaðir í stjórnarandstöðu. Það ferli verður óðara teiknað upp sem Engeyjarsamsæri.
Í þriðja lagi eru máttarstólpar Sjálfstæðisflokksins, t.d. Styrmir Gunnarsson, Björn Bjarnason og Morgunblaðið tortryggnir, svo ekki sé meira sagt.
En á yfirborðinu er allt slétt og fellt.
![]() |
Einhugur um samstarfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. janúar 2017
Róbert og Brynhildur setja stjórnarviðræður í uppnám
Björt framtíð er í stjórnarmyndunarviðræðum og tveir fyrrverandi þingmenn flokksins segja sig úr honum. Þetta eru pólitísk skilaboð.
Þingmennirnir tveir fyrrum, Róbert Marshall sérstaklega, eru af vinstri væng flokksins. Róbert kom úr Samfylkingunni.
Það er hægt að segja sig úr stjórnmálaflokki þegjandi og hljóðalaust. En það er líka hægt að gera það í fjölmiðlum á viðkvæmum tímapunkti.
Uppsagnir Brynhildar og Róberts vekja spurningar um hve heil Björt framtíð er í stjórnarmyndunarviðræðum. Og vangaveltur hvort ríkisstjórnarmeirihluti upp á einn þingmann sé á vetur setjandi.
![]() |
Brynhildur og Róbert hætt í BF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. janúar 2017
Betri fjölmiðlun án RÚV
RÚV er merkisberi ófaglegrar og óvandaðrar fjölmiðlunar hér á landi. Þetta gildir sérstaklega um fréttastofu RÚV sem spinnur upp lygafréttavefi, t.d. með atlögunni að hæstarétti í haust og Panama-skjölunum sl. vor.
Ríkissjóður fjármagnar RÚV og ber ábyrgð á uppgangi óvandaðrar fréttamennsku hér á landi síðustu misserin.
Fyrsta skrefið í átt að betri fjölmiðlun er að loka fréttastofu RÚV.
![]() |
Stjórnvöld treysti stöðu og framtíð fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |