Slétt yfirborð leynir óreiðunni undir niðri

Á yfirborðinu eru stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar/Bf sléttar og felldar. Undir niðri er óreiða. Þrjár ástæður eru fyrir því. Í fyrsta lagi sækir Viðreisn/Bf að Sjálfstæðisflokknum í afar viðkvæmu máli, Evrópumálum.

Í öðru lagi verða gífurlega erfið mál á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar, sala ríkiseigna, þar á meðal bankanna. Ríkisstjórn með eins þingmanns meirihluta á alþingi er þar í afar veikri stöðu, einkum þegar vinstriflokkarnir eru sameinaðir í stjórnarandstöðu. Það ferli verður óðara teiknað upp sem Engeyjarsamsæri.

Í þriðja lagi eru máttarstólpar Sjálfstæðisflokksins, t.d. Styrmir GunnarssonBjörn Bjarnason og Morgunblaðið tortryggnir, svo ekki sé meira sagt.

En á yfirborðinu er allt slétt og fellt.

 

 


mbl.is Einhugur um samstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get ómögulega gert að því en ég finn alltaf til ónota í hvert skipti sem Benedikt Jóhannessyni bregður fyrir á sjónvarpsskjánum og lætur eitthvað út úr sér eða þá ef birtist af honum mynd í blöðum og er vitnað í eitthvað sem hann hefur sagt.  Og ég veit að hann nýtur svipaðs trausts víðar.....

Jóhann Elíasson, 4.1.2017 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband