Samfylkingarsólskríkja á Mogga

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu skrifar samfylkingarhugvekju á leiðaraopnu í dag um hversu Vinstri grænir eru ómögulegir. Þegar samfylkingarfólk kvartar undan öðrum er það sambærilegt við að hverfistuddinn væli undan einelti. Samfylkingin er safn af ósvífnustu lygaspunastjórnmálamönnum landsins.

Samfylkingin terroriseraði Sjálfstæðisflokkinn til að boða landsfund um að breyta afstöðunni til Evrópusambandaðildar - jafnvel þótt fyrir lægi að flokksmenn vildu ekki inn í ESB.

Samfylkingin svínbeygði Vinstri græna til að svíkja kjósendur sína og fallast á að ríkisstjórnin sækti um inngöngu í Evrópusambandið.

Samfylkingin var stjórnmálaarmur Baugsveldisins og þáði tugmilljónir frá Baugsversluninni enda sinnti flokkurinn hagsmunagæslu fyrir auðhringinn.

Nefnum hlutina réttum nöfnum: Samfylkingin er stjórnmálasubbuflokkur Íslands.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Samfylkingin stjórnmálasubbuflokkur Íslands".

 Sannarlega réttnefni snjalli Páll !

 Jafnframt þyrfti að endurtaka í sífellu  þau óhrekjanlegu sannindi að Samfylkingin - á sínum tíma - samþykkti Icesave samninginn  ÓSÉÐANN !!

 Já, með ÖLLUM GREIDDUM ATKVÆÐUM, og jafnframt ríkisábyrgð vegna samninga sem - svo ótrúlega sem það hljómar - já, samninga sem þingflokkjur Samfylkingarinnar hafði ekki augum litið !!Ótrúlegt en því miður satt.

 Sannkallaður: Stjórnmálasubbuflokkur Íslands".  -  Amen !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 21:52

2 identicon

Flottur pistill.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.10.2009 kl. 00:00

3 Smámynd: Bjarni Kristjánsson

"Samfylkingin var stjórnmálaarmur Baugsveldisins og þáði tugmilljónir frá Baugsversluninni enda sinnti flokkurinn hagsmunagæslu fyrir auðhringinn."

Ertu með eitthvað sem sannar þessa fullyrðingu þína?  Eða er þetta spuni frá þér?

Bjarni Kristjánsson, 11.10.2009 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband