Benedikt og nafnlausar árásir

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar ritstýrir Hringbraut á bakvið tjöldin með því að taka ákvarðanir um efnisval útgáfunnar. Á Hringbraut birtast undir nafnleysi svæsnar árásir á pólitíska andstæðinga Benedikts.

Benedikt kvartar undan ósanngjarnri umfjöllun um sig, sem er nafnlaus og virðist runnin undan rifjum Pírata.

Ef Benedikt meinar eitthvað með ,,góðri orðræðu" ætti hann sem skuggaritstjóri Hringbrautar að taka ákvörðun um að þar birtist ekki nafnlaus áróður. Yfir til þín, Benedikt.


mbl.is Benedikt svarar ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Þá liggur þetta fyrir, lærður blaðamaðurinn fer hér mikinn (bendi samt á að RÚV tengist ekki pistli höfundar, sem er undur og stórmerki enda hatur höfundar á öllum sem tengjast RÚV yfirlýst) sem fyrr en nú án heimilda.

Vísar í að téður Benedikt stýri Hringbraut. Væri gott að fá það staðfest.

Eins að þeir sem gerðu myndband um téðan Benedikt séu Píratar. Þar er hlekkjað á Eyjuna, þar sem sett er fram fullyrðing án vísunar, meira huglægt en menntaður blaðamaðurinn (og lærður siðfræðingurinn) skeytir því engu. Ef það stendur, þá er það satt.

Þannig að þá með þessum rökum, að séu til skattsvikarar sem hafa kosið Sjálfsstæðisflokkinn, þá séu allir Sjálfsstæðismenn skattsvikarar. Flottur höfundur í dag, hann fer alla leið í dag,þá í bullinu.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 28.11.2016 kl. 12:09

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Athygli vert að þetta myndband kom ekki fram fyrr en slitnað hafði upp úr 5 flokka viðræðunum.

Ragnhildur Kolka, 28.11.2016 kl. 12:40

3 Smámynd: Már Elíson

Það er ekkert athugavert við það að almenningur fái að kynnast skuggahliðum manna, manna sem láta glans-hliðina snúa út á daginn en dansa við skrattan á nóttunni. - Vona að enginn hér inni sé að draga úr því. - Maðurinn á sér ferilskrá sem öllum er(var) ekki kunnugt um og sjálfsagt að að hún komi í ljós á prenti. - Eða er það ekki ?? - Hefur hann eitthvað að fela ? - Þetta er annað sjálf Sljálfstæðisflokksins, og hvað með það..? - Bara að segja það opinmynntur, þá er allt í lagi.

Már Elíson, 28.11.2016 kl. 16:50

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Már

Er ekki rétt að þú varpir ljósi á skuggahliðar þínar til upplýsingar ? 
Eru skaðbrenndir lánadrottnar í skúmaskotum eða fyrrum starfsmenn eða hvaðeina ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 29.11.2016 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband