Vestrænar konur eru móðgun við múslíma

Múslímar stóðu fyrir skipulögðum árásum á þýskar konur á nýársnótt, segir dómsmálaráðherra Þýskalands, Heiko Maas. Die Welt skrifar að arabískt heiti sé á skipulögðum árásum á konur, ,,taharrush gamea" sem felur í sér að karlmenn taka sig saman um að einangra konur á opinberum svæðum með kynferðislega áreitni og þjófnað í huga.

Í trúarmenningu múslíma er konan undirgefin karlinum. Konan sýnir undirgefni sína með því að hylja ásjónu sína og oft líkamann allan, á bakvið slæðu eða búrku, þegar hún er utan dyra heimilis. Á almannafæri er talið eðlilegt að konan sé í karlmannsfylgd.

Öfgafyllsta útgáfa múslímatrúar, wahabismi, sem m.a. Ríki íslams stundar, iðkar kvenfyrirlitningu samkvæmt bókstaf kóransins, trúarrits múslíma. Frönsk kona, sem gerðist liðsmaður Ríkis íslams, lýsir því að komið er fram við konur sem verkfæri til að fjölga stríðsmönnum múslíma.

Konur eru ekki sjálfstæðir einstaklingar í menningarheimi múslíma heldur viðhengi karlmanna. Þegar vestrænar konur eru án fylgdar karlmanns á almannafæri, og bera ekki á sér tákn undirgefni, s.s. slæðu eða búrku, storka þær trúarmenningu múslíma. Vestrænar konur minna múslíma á hve trúarmenning þeirra er frumstæð. Og það er einmitt vegna frumstæðra hátta múslíma sem samfélög þeirra í Norður-Afríku og miðausturlöndum eru á fallandi fæti.

Múslímar skammast sína ekki fyrir miðaldaviðhorf til kvenna. Samtök múslímaríkja gáfu út sérstaka mannaréttindaskrá árið 1990 sem segir skýrt og greinilega að karlmaðurinn fari með forræði kvenna og barna á heimilinu.

Ungir múslímskir karlmenn, sem flýja heimahagana til stórborga Evrópu, þar sem bíður þeirra tilvist meðal lágstétta, taka með sér trúarmenninguna. Veigamikill þáttur trúarmenningarinnar er að konur skuli undirgefnar körlum. Með því að hópast að vestrænum konum, þegar þær standa vel til höggs, áreita þær og niðurlæga tjá múslímskir karlmenn skoðun sína á vestrænni menningu.

Vesturlandabúum er kennt að móðga ekki múslíma með því að teikna mynd af spámanninum. Vestrænar konur og staða þeirra í samfélaginu, sem jafnokar karlmanna, er einnig móðgun við múslíma.

Þjóðverjar tóku á móti milljón flóttamönnum á síðasta ári, flestum múslímskum. Ráðherrann sem fer með málefni flóttamanna segir að um 20 milljónir múslíma bíði eftir að komast til Þýskalands. Gangi það fram munu þýskar konur þurfa að venja sig að fara ekki út fyrir hússins dyr nema með slæðu eða búrku og í fylgd karlmanns.  


mbl.is Konur mótmæltu í Köln
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í þessari svörtu sýn er gert ráð fyrir að landslög, skólauppeldi og jafnréttisákvæði stjórnarskráa vestrænna ríkja megi sín einskis.

Er það ekki dálítið hæpin forsenda?

Ómar Ragnarsson, 10.1.2016 kl. 13:46

2 Smámynd: Hörður Þormar

Ahmad Mansour er sálfræðingur sem starfar innan islamska samfélagsins í Þýskalandi. Hér er hann með fróðlegt innlegg í þessa umræðu:Ahmad Mansour: "Politische Planlosigkeit im Umgang mit ...

Hörður Þormar, 10.1.2016 kl. 14:15

3 Smámynd: Bjarni Jónsson

Múhameðsmenn í Evrópu leita til næsta Ímans um andlega leiðsögn, og það þarf ekki langt að fara innan Vestur-Evrópu til að finna Íman.  Hann vinnur með öllum ráðum gegn því, að múhameðskir innflytjendur, flóttamenn og aðrir, tileinki sér vestræn gildi.  Til að halda ítökum sínum í trúarlífi og sálarlífi fólksins ala þessir trúarleiðtogar á hatri í garð Vesturlanda.  Það er þess vegna borin von, að múhameðsmenn muni aðlagst menningu Vesturlanda og taka upp neyzluhyggju og frelsishugsjónir.  Atburðirnir á Nýársnótt í mörgum borgum Evrópu voru samstilltar árásir á einn af hornsteinum frelsisins, jafnrétti kynjanna. 

Bjarni Jónsson, 10.1.2016 kl. 16:05

4 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson


Ómar, ekki alveg, en næstum því. Staðreyndin er samt þessi: Hófsamir múslimir (sem eru líklega um 70% þeirra) hafa lengi varðað við því sem byggist á því sem gerist þegar ungir, ómenntaðir karlmenn koma til Evrópu í algert frelsi úr aga sem byggist á ströngum boðum, bönnum og refsingum og gerólíkum lífsviðhorfum.


Við því liggur blátt bann að ræða um þetta og rekja t.a.m. tölfræði um glæpi þessu tengda að viðlagðri femínískri útskúfun vinstrimanna. Er það ekki umhugsunarefni af hverju femínistar og vinstrimenn geta ekki rökrætt þá tölfræði? Liggur hatur á einhverju öðru en vestrænum karlmönnum að baki, hatur á öðrum gildum?


Ataturk þekkti hætturnar sem stafa af bókstafstrú múslima. Þeim voru settar strangar skorður í löggjöfinni á hans tímum sem vel dugðu. Þær skorður væru okkur góð fyrirmynd. Ataturk var hin mikla fyrirmynd Reza og föður hans. Að frumkvæði vinstrimanna svikum við svo Reza með miklum afleiðingum sem sjá má.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 10.1.2016 kl. 22:42

5 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Páll

Við þeesu má bæta að kristni hefur verið í undanhaldi gegn múslimum með hléum frá byrjun. Miðjarðarhafið var allt kristið. Nú er hin mikla "Dómkirkja Afríku" auð og yfirgefin og hvar? Koptar eru yfirgefnir og engir Íslendingar biðja þá afsökunar á því, þeir hafa verið myrtir í hrönnum. Ung kona biður hins vegar afsökunar f.h. þjóðarinnar á óförum múslima, og sem ekki skyldi gera lítið úr. - Þessi kona gengur þó of langt. Ég þarf ekki að biðjast afsökunar að þessu leyti og ég er hluti þjóðarinnar; ennþá. Hver skyldi tala fyrir sig.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 10.1.2016 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband