Bankar tileinki sér hófstillingu

Bankar eru á Íslandi það sem kynþáttahyggja er í Þýskalandi; svolítið viðkvæmt mál í pólitískri umræðu. Bankarnir gerðu Ísland nærri gjaldþrota og bankamenn eru helstu glæpamenn hrunsins.

Landsbankinn var djarfur að ætla sér höfuðstöðvar á dýrustu lóð landsins. Samstillt átak stjórnmálamanna og almennings þurfti til að koma vitinu fyrir Landsbankamenn.

Bankar og bankafólk gerir vel í að stíga varlega til jarðar á opinberum vettvangi og derra sig ekki meira en brýnasta nauðsyn krefur.


mbl.is „Frestun breytir engu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Spurning hvort fyrrverandi Seðlabankastjóri, Davíð Oddsson,  fíli þessa tilfallandi athugasemd hjá þér, Páll.

Wilhelm Emilsson, 7.8.2015 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband