Óttinn við pólitískt æðistkast Össurar

Báðir ríkisstjórnarflokkarnir sögðu kjósendum fyrir kosningar að umboðslausa ESB-umsókn Samfylkingar frá 16. júlí 2009 yrði afturkölluð. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að umsóknin skuli afturkölluð.

Það eina sem tefur afturköllunina er óttinn við æðiskast fyrrverandi utanríkisráðherra og aðalhöfundar ESB-umsóknarinnar, Össurar Skarphéðinssonar, og félaga hans í stjórnarandstöðunni.

Helstu rök Össurar eru að Sjálfstæðisflokkurinn gæti klofnað ef ESB-umsóknin yrði afturkölluð. Og eins og alþjóð veit er Össuri sérstaklega umhugað um velferð Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Glórulaust að ganga ekki frá málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sjálfstæðisflokkurinn klofnar ekkert.  Það flísast aðeins úr honum og þannig LOSNAR hann við nokkra "óæskilega" einstaklinga, sem hvort eð er eru  bara til trafala og óþurftar.

Jóhann Elíasson, 6.1.2015 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband