Auðmaðurinn skammar Árna Pál og Helga Hjörvar

Formaður Samfylkingar, Árni Páll Árnason, og Helgi Hjörvar þingmaður sama flokks eru meðal þeirra vinstrimanna sem sóttu um leiðréttingu lána sinna og fengu.

Best auglýsti auðmaður Samfylkingar, Vilhjálmur Þorsteinsson, skrifar pistil þar sem hann segir leiðréttinguna galna. Auðmaðurinn er meira í takt kjósendur Samfylkingar en formaðurinn og Helgi. Könnun Fréttablaðsins segir að meirihluti kjósenda flokksins séu á móti leiðréttingunni.

Sannfæringakrafturinn mun geisla af Árna Páli og Helga þegar þeir á alþingi harma leiðréttinguna sem þeir þó stinga í eigin vasa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Uss! Það er svo létt í þeirra vasa.

Helga Kristjánsdóttir, 15.11.2014 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband