Jón Ásgeir verður Sævar Ciesielski

Fréttablaðið hannar fréttaflutning upp úr lögreglumanni sem var rekinn úr starfi og stóð til að ákæra. Markmið fréttahönnunarinnar er að bæta stöðu eiganda Fréttablaðsins, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, gagnvart ákæruvaldi og dómstólum.

Fréttahönnunin heitir í leiðara Fréttablaðsins ,,uppljóstrun" og er líkt við Guðmundar og Geirfinnsmál. Í leiðara segir

Þessi uppljóstrun er grafalvarleg. Einn af hornsteinum réttarvörslukerfisins hér á landi er að handhafar lögregluvalds skulu ávallt gæta fyllstu hlutlægni og réttsýni. Þeir skulu gæta þess að mönnum verði ekki gert tjón, óhagræði eða miski framar en óhjákvæmilegt er. Þessar kröfur til lögreglunnar fara illa saman við það andrúmsloft sem Jón Óttar lýsti í viðtalinu og samlíking hans við Guðmundar- og Geirfinnsmálið er beinlínis ógnvekjandi.

Sævar Ciesielski er sá sem harðast varð úti í téðum málum; var löngum hafður í einangrun og mátti varla um frjálst höfð strjúka ævina á enda. Að líkja Jóni Ásgeiri við Sævar ber vitni slíku dómgreindarleysi að engin orð ná yfir athæfið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kæri Páll.

Ég tek heils hugar undir það sem þú hefur skrifað um þessi ótrúlegu subbulegu hönnunarskrif og að baki þeim liggur ótrúlegt dómgreindarleysi og siðblinda af verstu tegund.

Það kom svo sem ekkert á óvart úr þeirri átt.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 16.9.2014 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband