Krónunni kennt um lélegan rekstur

Kortéri fyrir hrun komu íslensku banka-auðmennirnir fram með þá kröfu að Ísland ætti að taka upp evruna, ekki væri vinnandi vegur að stunda rekstur með krónunni. Bankamennirnir voru nógu ánægðir með krónuna þegar þeir byggðu upp veldið sitt og heyrðist hvorki hósti né stuna um að krónan væri til trafala.

Jón Sigurðsson forstjóri Össurar, sem þiggur litlar 119 milljónir króna í laun, er kominn með rekstur fyrirtækisins á hálan ís.

Jón reynir að bjarga sér með því að kenna krónunni um stöðu fyrirtækisins. Hvaða gjaldmiðill skyldi hafa verið hér á landi þegar Össur byggði upp alþjóðlegt veldi sitt? 


mbl.is Svartsýnni á horfur Össurar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

fljótandi gjaldmiðill er vandamál hjá fyrirtækjum sem stunda "stór" viðskipti á alþjóða vísu ....... þarf ekki hagfræðing til að lesa það út ...... eða hvað

Jón Snæbjörnsson, 10.3.2011 kl. 14:26

2 identicon

Sæll.

Flott færsla. Annars ætti krónan ekki að vera útflutningsfyrirtækjum fjötur um fót ef þau eru vel rekin. Ég held að nauðsynlegt sé að skoða þessi ummæli í því ljósi líkt og þú gerir.

Helgi (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 17:44

3 identicon

 Nákvæmlega með þetta rett Páll ! 

ransý (IP-tala skráð) 10.3.2011 kl. 23:12

4 Smámynd: Halldór Jónsson

margar litlar krónur saman gera líka skugga. Eins og 119 mjónir af þeim

Halldór Jónsson, 11.3.2011 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband