Miðvikudagur, 23. mars 2016
Pólland neitar að taka við múslímum
Eftir hryðjuverk Ríkis íslam í Brussel neita Pólverjar að taka við flóttamönnum frá Sýrlandi og Írak. Samkvæmt frétt þýsku útgáfunnar Die Welt mun ákvörðun ríkisstjórnar Póllands setja í uppnám nýgert samkomulag Evrópusambandsins við Tyrkland, um meðferð flóttamanna.
Pólverjar telja hættu á að viðtaka múslímskra flóttamanna muni tefla öryggi pólskra ríkisborgara í hættu, í ljósi þess að hryðjuverkamenn nota flóttamannastrauminn til Evrópu sem skálkaskjól. Áætlað var að til Póllands færu 7500 flóttamenn, þar af 400 í ár.
Áður hafa ríkisstjórnir Ungverjalands og Slóvakíu neitað viðtöku múslímskra flóttamanna.
Með langa glæpaferla að baki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 23. mars 2016
Góða fólkið segir morð eins og mýbit
Egill Helgason, álitsgjafi góða fólksins, gerir lítið úr hryðjuverkinu í Brussel. Hann birtir lista sem á að sýna að hryðjuverk eru mest utan Evrópu og því sé öllu óhætt.
Vandaðir fjölmiðlar, til dæmis FAZ í Þýskalandi, birta annars konar lista: yfir blóðugan feril Ríkis íslam.
Þegar fáfengilegri tölfræði sleppir birtir Egill gagnfræðaskólaanalísu um að vondir menn standi fyrir hryðjuverkum. Það á að heita kjarni málsins.
Samkvæmt rökfræði góða fólksins eigum við að umbera morðingja eins og mýbit.
Blóðug og skelfingu lostin á bekk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 23. mars 2016
Múslímatrú gefur glæpamönnum tilgang
Hryðjuverkamennirnir í Brussel voru ,,góðkunningjar lögreglunnar" - menn sem voru réttir og sléttir þjófar og glæpamenn áður en þeir drápu í nafni trúar. Múslímarnir sem réðust inn á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo voru með sama bakgrunn; glæpamenn sem snerust til öfgatrúar og myrtu saklaust fólk.
Múslímski Daninn, Omar El-Hussein, sem sallaði niður saklaust fólk á götum Kaupmannahafnar er sama manngerðin. Fyrst glæpir, síðan trúarleg morð.
Múslímatrú brúar bilið á milli þjófa og morðingja. Múslímatrú gefur misheppnuðu fólki tækifæri til sjálfsupphafningar með fjöldamorðum á vantrúuðum.
Allir múslímsku morðingjarnir, sem taldir eru upp hér að ofan, eru fóstraðir og aldir upp í vestrænum ríkjum, Danmörku, Belgíu og Frakklandi. Múslímar komast upp með að viðhalda og rækta trúarmenningu sína í nafni fjölmenningar. Þar með girða þeir fyrir aðlögun að vestrænum lífsháttum. Og til að gera illt verra bjóða múslímar upp á trúarlega réttlætingu fyrir morðum á vantrúuðum, þ.e. öllum sem ekki eru múslímar.
Múslímaklerkar vítt og breitt um Evrópu réttlæta og hvetja til hryðjuverka. Reynslan sýnir, núna síðast í Brussel, að trúin er múslímskum glæpamönnum hvatning til að leika guð: ákveða hverjir skulu deyja.
Bræður sprengdu sig upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)