Leiðrétt blogg: kennarar vilja EKKI launahækkun

Í bloggi hér áðan hljóp undirritaður á sig og sagði framhaldsskólakennara í þeirri stöðu að stöðva styttingu ráðherra á námi til stúdentsprófs.

Eftir að ráðfærslu við starfsfélaga er niðurstaðan ótvíræð: ráðherra getur stytt námið hvort heldur í núverandi kerfi eða nýja vinnumatskerfinu, sem var fellt.

Kennarar vilja einfaldlega ekki kauphækkun.


Kennarar hafna styttingu Illuga

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra fær þvert nei frá kennurum við hugmyndum um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Þótt Illugi bjóði þeim tíu prósent launahækkun þá segja kennarar honum að éta það sem úti frýs.

Án samninga við kennara verður engin stytting framhaldsskólans.

Svo einfalt er nú það.


mbl.is Vinnumatið fellt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingarfræði á Bifröst

Bifröst var einu sinni samvinnuskóli, í smá tíma samfylkingarsetur en lýtur nú forystu fyrrum formanns Samtaka atvinnulífsins og þar áður Verslunarráðs.

Við hæfi er skóli með sögu Bifrastar bjóði upp á byltingarfræði sem námsleið.

Bylting á íslensku er líka allt annað en þegar hún er upp á útlenskuna.

 


mbl.is Hvað er byltingafræði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslíma-Jón, Breivik og trúarfantasían

Múslíma-Jón, Mohammed Emwazi, er breskur frá sex ára aldri þegar hann kemur frá Kuwait. Vegna róttækra múslímskra skoðana er hann orðinn viðfangsefni bresku leyniþjónustunnar fyrir tvítugt.

Áður en Múslíma-Jón tók til við að skera fólk á háls í þágu trúarinnar var hann í liði Ríkis íslams í Sýrlandi. Þar hittu hann tveir breskir hjálparliðar og bera honum vel söguna, segja Múslíma-Jón vingjarnlegan og sinna vel veikum vopnabræðrum, þótt hann legði fæð á Bretland.

Bresku hjálparliðarnir vekja athygli á tvennu í fari böðulsins; hann var hégómmlegur, klæddist dýrum fatnaði og bar vopn sem aðeins fáir áttu efni á í Sýrlandi auk þess sem hann var ekki í neinu sambandi við konur.

Ian Buruma gerir samanburð á múslímaböðlum eins og Jóni og norska morðingjanum Andres Breivik, sem deyddi 77 samlanda sína fyrir fimm árum. Hann skrifar

What is striking is how much Breivik’s profile – the social and sexual failures, the sense of isolation, the conversion, often through the internet, to a grand and empowering cause – matches that of jihadi killers. Indeed, Breivik told his police interrogators that he was actually inspired by the fighting spirit of al-Qaida.

Múslíma-Jón og Breivik eiga það einnig sameiginlegt að þrífast á fjölmiðlafrægð, segir Buruma. Og fjölmiðlar taka þátt í leiknum; gera stórstjörnur úr þessum kumpánum sem ekki gagnast konum en leita á náðir trúarfantasíunnar eftir fullnægingu. 


mbl.is Vill að „Jihadi John“ náist lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. febrúar 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband