Blaðamenn DV auglýsa sig verkfæri annarra

Þórey stefndi tveim blaðamönnum DV en ekki útgáfufyrirtækinu. Blaðamennirnir segja DV útgáfuna hafa knúið þá til að gera sátt við Þóreyju.

Yfirlýsing blaðamannaanna jafngildir játningu um að þeir séu verkfæri en ekki sjálfstæðir fagmenn.

Verkfæri hverra?


mbl.is Vildu mæta Þóreyju í dómssal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyniskyttan og jólavopnahléið

Eitt sérkennilegasta atvik fyrra heimsstríðs, sem hófst fyrir 100 árum, var vopnahléið á jólum 1914. Breskir og þýskir hermenn efndu til vopnahlés án samráðs við herstjórnir, hittust á einskins manns landi milli skotgrafanna og gerðu sér glaðan dag.

Bréf frá breskum herforingja, Walter Congreve, er nýlega komið í leitirnar. Í bréfinu lýsir Congreve vinsamlegum samskiptum andstæðinganna þessi jól og tiltekur breskan hermann sem reykti vindil með bestu leyniskyttu Þjóðverja, sem var 18 ára snáði.

Sá breski segist nú vita hvar leyniskyttan geymir sig og vonast til að komast í færi eftir jólafrí.

Sportið í stríðinu var dauði sem hélt áfram eftir jól.


Engin Viðreisn hjá Þorsteini

Í kvöldfréttum RÚV á miðvikudag var plöntuð frétt um að flokkur Sveins Andra Sveinssonar og Benedikts Jóhannessonar, Viðreisn, muni bjóða fram í þingkosningum 2017. Fréttin var gróðursett í RÚV til að styrkja stöðu Ragnheiðar Ríkharðsdóttur í baráttunni um ráðherradóm í Sjálfstæðisflokknum.

Þorsteinn Pálsson er samverkamaður Benedikts og Sveins Andra í Viðreisn. Ætla mætti að hann nýtti tækifærið á opnum fundi að auglýsa nýja stjórnmálaaflið. En Þorsteinn þagði þunnu hljóði um Viðreisn sem kvöldið áður fékk 15 sek. kynningu í þjóðarútvarpinu.

Líkleg skýring á þögn Þorsteins um Viðreisn er að þegar hann tók til máls um umræðuhefðina í íslenskum stjórnmálum var búið að ákveða að Ólöf Nordal yrði innanríkisráðherra.

Það er svo önnur pæling hvers vegna RÚV beitir sér í innanflokkserjum í Sjálfstæðisflokknum með jafn óskammfeilnum hætti og raun er á.  


mbl.is Nárotta sem þurfti að kaghýða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Ásgeir og leikslok Kaupþings

Kortéri fyrir hrun fékk Jón Ásgeir Jóhannesson, kenndur við Baug, 30 milljarða króna lán frá Kaupþingi. Í frétt af dómsmáli sem reis af þessu láni segir

Í rökstuðningi Hæstaréttar er sérstaklega vitnað í tölvuskeyti sem Jón Ásgeir Jóhannesson, þáverandi stjórnarformaður Baugs, sendi Hreiðari Má Sigurðssyni, þáverandi forstjóra Kaupþings, 9. júlí 2008. Þar segir Jón Ásgeir að hann hafi unnið hörðum höndum að því að bæta stöðu Kaupþings, meðal annars með sölu á Högum. Vonandi finni þeir lausn næsta dag en ef ekki „þá þurfum við ekki að spyrja að leikslokum,“ segir í bréfinu.

Samkvæmt þessum tölvupósti var Jón Ásgeir með leikslok Kaupþings í hendi sér. Af því leiðir gat bankinn tæplega neitað Jóni Ásgeiri um nokkurn hlut. Og allt skal þetta heita viðskipti.


Femínismi kvengerir karlmenn

Femínismi er í tísku, segja talsmenn hreyfingarinnar, og þá er um að gera að koma trúboðinu inn í skólana.

Femínisminn getur aðeins verið fyrir þann hluta þjóðarinnar sem er konur annars vegar og hins vegar fyrir karla sem vilja kvenvæðast.

Karlar sem eru sáttir við að vera karlar eiga ekki að sitja undir femínískum áróðri i skólum.


mbl.is Er femínismi í tísku?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. desember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband