Sunnudagur, 22. nóvember 2009
Baktjaldamakk Baugsfylkingar
Ríkisbankinn Kaupþing/Arion er enn í útrás og hefur fengið pólitískt leyfi að hlaða undir auðmennina sem settu þjóðina á hliðina með fjármálalegri fíflsku.
Ríkisbankinn er á forræði viðskiptaráðherra og ríkisstjórnarinnar. Baktjaldamakk ætlar að leiða til niðurstöðu sem er hagkvæm fyrir Baugsfylkinguna.
Er ekki næsta skrefið að sameina Ríkisútvarpið og Stöð 2 undir forræði Jóns Ásgeirs?
Ísland verður Baugsland.
![]() |
Hlutur í Högum ekki til sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já það borgar sig greinilega að borga í baugsfylkinguna!
Það versta við þetta er líka að með þessu er úti öll von um að þessir menn verði dregnir fyrir dóm og látnir taka út sína refsingu.
Ef það væri einhver hætta á því stæðist það tæplega þessar verklagsreglur sem þeir vísa í að fela þessum mönnum stjórnina.
Þar með er úti öll von um að einhverjir verði látnir sæta ábyrgð á gjörðum sínum og að ísland endurheimti einhverja virðingu á alþjóðlegum vetvangi. Er og verður álitið bananalíðveldi! Skömm stjórnarflokkanna ætti að vera algjör.
Erlendur (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 19:16
Vilhjálmur frá Okkheimi var maður nokkur sem fann upp fyrir löngu fínan rakhníf sem svínvirkar þegar verið er að velta fyrir sér hlutunum. Rakhnífurinn er sá, að ef tvær skýringar eru á sama hlutnum, þá er affarasælast að velja þá sem er einfaldari.
Hefur þér dottið í hug að einfalda skýringin geti verið sú að 1998 ehf sé einfaldlega ekki til sölu, vegna þess að með því endurheimti Ari Jón og félagar meir af útitandandi lánum en ef þeir reyndu að selja einhverju leynifélagi?
Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 19:20
Beint í bankann í fyrramálið að færa viðskiptin !!! engin spurning. Og skýringin mun ekki láta á sér standa - aumingjaskapur stjórnenda bankans !!
Sigurður Sigurðsson, 22.11.2009 kl. 19:54
Það verður að stofna samtök til að berjast gegn þessari Baugsfeðgamafíu.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 20:00
Ómar, væri ekki einfaldasta leiðin til að fá sem mest upp í kröfur að selja þetta bara í opnu gegnsæu uppboði. Hvernig er hægt að ná besta verðinu þegar aðeins er tekið við tilboði frá einum aðila? Hvernig fær það staðist, sá aðili veit þá upp á hár hvar hann stendur og hvað hann þarf að bjóða og býður að sjálfsögðu ekki krónu meir.
Einkavæðing símans er jú líklega sú sem heppnaðist einna best allavega upp á verðmiðann að gera, munum bara að láta þá borga núna og tökum ekki einhvern gúmmítékka!
Þessi leyndar rök halda því miður afskaplega illa, en þessi míta er algeng á íslandi, að með leyndinni séu okkar hagsmunir best tryggðir, samanber verðið á raforkunni til stóriðju. Ef það væri svona svakalega gott væri landsvirkjun tæplega með einna lægstu ávöxtun á eigið fé sem þekkist í þessum bransa, 4% er það víst (þar kemur sannleikurinn í ljós, það er hreinlega verið að gefa þetta).
Erlendur (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 20:18
Og það versta er, Erlendur, að sennilega kemur ránsfengurinn heim í einkaþotu, þeirri hinni sömu og þeir voru fluttir út í rétt fyrir bankahrun.
Skítalyktin af þessu tilboði viðskiptafélaga Baugsfeðga er slík að jafnvel yfirgnæfir fnykinn frá fjósinu á Bessastöðum, og þurfti víst mikið til. Þennan spillingarfnyk hefur lagt yfir mestallt landið síðan núverandi forseti settist þar að og greinilegt er að þeir sem valda ólyktinni munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að feðgarnir geti drottnað áfram á íslenzkum matvörumarkaði. Það ætti að reynast þeim auðvelt með mesta spillingarforseta sögunnar á Bessastöðum og stærsta spillingarflokk landsins í forsætisráðuneytinu.
VG hefur því miður brugðist vonum allra sem þann flokk kaus og verður í framtíðinni ekki minnst fyrir annað en að hanga niður úr afturendanum á Samfylkingunni eins og lítil gyllinæð. Dags daglega án vandræða, en pirringsvaldandi í stærri málum.
Sigurður Sigurðsson, 22.11.2009 kl. 20:47
Er þetta ekki mismunun og er það ekki lögbrot af bönkum og ríkisfyrirtækjum???
ElleE (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 20:50
Afhverju er ekki undanskoti Haga útúr Baugi hnekkt? Tilhvers er verið að færa 40 milljarða skuld úr gamla Kaupþingi yfir í nýja Kaupþing með eignaundanskoti sem stendur ekki undir nema 30% höfuðstól lánsins? Afhverju eru ekki skilanefndin spurð að þessu?
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.11.2009 kl. 20:51
Eins og ég hef sagt áður: besta fjárfesting Jóns Ásgeirs var þegar hann keypti ráðandi hlut í Samfylkingunni. Sú fjárfesting ætlar að margborga sig; virkar eins og trygging fyrir því að ekkert geti skaðað hann hversu mikinn skaða hann veldur íslenskri þjóð.Og þessu ætla ráðamenn Samfylkingarinnar að kyngja. Jón Ásgeir er meistari í ósýnilegum peningum.
Helgi (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 21:13
Við eigum að fara fram á rannsókn og nákvæmar GEGNSÆJAR útskýringar fari þetta í gegn.
ElleE (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 21:52
Erlendur
Ólíkt þér þá hef ég ekki hugmynd um hvernig Ari Jón fer að því að finna út hvað er hagkvæmast fyrir bankann.
Mér sýnst hins vegar augljóst að Ari Jôn hefur núna val um reyna að herja út úr eigendum Haga nýtt eigið fé, eða semja við leynifélagið, sem samanstendur af einhverjum öðrum miður geðslegum milljarðamæringum (kannski Finni Ingólfs og Ólafi Ólafs) sem fela sig bak við nokkur þúsund auðtrúa Íslendinga sem eru á móti Baugsfeðgum.
Satt best að segja hryllir mig við tilhugsuninni að þurfa að velja á milli og þakka fyrir ef það gert á hreinum viðskiptaforsendum en ekki tilfinningum eins og Páll boðar í þessum pistli.
Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 22:22
Ómar hvernig er hægt að endurheimta það sem er afskrifað?
http://www.dv.is/frettir/2009/11/23/bretar-eignast-haga/
ES (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 07:32
Til upplýsingar um arðsemi Landsvirkjunar
Arðsemi fyrirtækisins undanfarin ár í samanburði við aðra.
Arðsemismat vegna Kárahnjúkavirkjunar undir lok framkvæmda.
Þorsteinn Hilmarsson, 25.11.2009 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.