Ólögvarinn þjófnaður og Hagar

Eignastýringarkonan hjá Kaupþingi virðist samkvæmt fréttinni ekki jafn slyng og karlkyns starfsbræður hennar sem  lögverja þjófnað með stjórnarsamþykktum. Glitnir hafi þann háttinn á þegar stóru hluthafarnir mökuðu krókinn á kostnað smælingjanna. Hæstiréttur staðfesti gjörninginn.

Stærstu eigendur Glitnis sáluga eru feðgar kenndir við Baug og eiga verslunarsamsteypu sem kallast Hagar. Kaupþing, sem nú heitir Arion, ætlar að færa Baugsfeðgum marggjaldþrota Haga á silfurfati; skuldir afskrifaðar og einokun fest í sessi.

Strákarnir sjá um sína.


mbl.is Fjárdráttur hjá Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Það verður ekki.

Björn Birgisson, 23.11.2009 kl. 00:54

2 identicon

Jú....

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 01:54

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Ósvífni ef þetta verður - ég bara trúi því ekki

Jón Snæbjörnsson, 23.11.2009 kl. 07:35

4 identicon

Finnur Sveinbjörnsson er ótrúverðugur og raunar alveg getulaus til þess að gegna starfi bankastjóra. Hann hefur ítrekað fengið almenning upp á móti sér og bankanum með heimskulegum ákvörðunum sem eru algjörlega á skjón við vilja þjóðarinnar.

Stefán (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 09:24

5 identicon

Björn; eins og þetta horfir við þeim sem fylgjast með þá virðist það nú víst ætla að verða svo.

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband