Þriðjudagur, 17. nóvember 2009
Útrásarklappstýra með ESB-spuna
Evrópusambandið gerir ráð fyrir að þær þjóðir sem vilja inn í sambandið vinni heimavinnuna sína og kynni sér helstu þætti sambandsins. Engri þjóð hefur látið sér til hugar koma að sækja um til að ,,sjá hvað er í pakkanum." Pakkinn er sjálft Evrópusambandið. Þess vegna stundar sambandið ekki samningaviðræður við umsóknarríki heldur er lagt upp aðlögunarferli sem felur í sér að umsóknarríki lagar sig að regluverki sambandsins.
Samfylkingin hefur blekkt þjóðina til að halda að Ísland sé á leið í viðræður við Evrópusambandið. Svo er ekki. Við erum á leið í aðlögun að Evrópusambandinu.
Jón Kaldal ritstjóri Fréttablaðsins gat sér orð sem trúgjörn klappstýra útrásarinnar enda þjálfaður Baugsblaðamaður. Í leiðara í dag tekur hann upp hráan samfylkingaráróður um samningaviðræður við Evrópusambandið.
Barnslegri ákefð aðildarsinna eftir nýrri blekkingu, þegar sú síðasta er hrunin, minnir á margt sama fólkið var í útrásarliðinu og vill nú inngöngu í Evrópusambandið.
Athugasemdir
Virkilega flott hjá þér Páll.
Sigmar Þormar, 17.11.2009 kl. 09:33
Alltaf góður, Páll, og hittir alltaf beint í mark.
Hjákátlegt að heyra yfirlætið og hrokann í þessum ESB-sinnum. Þeir tala alltaf eins og það sem þeir predika um ESB sé það eina sanna og rétta, en að allt annað séu rangindi byggð á heimsku. Í svona tilvikum má svo sannarlega segja að hroki og dramb standi til falls.
Steingrímur Fr. Þorvaldsson (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 10:29
Þetta kjarni málsins!
Birgir Viðar Halldórsson, 17.11.2009 kl. 11:19
Hjartanlega sammála.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 11:49
Sorglegt að hér sé svona mikið af fólki sem berst fyrir að selja þjóð sína inn í þetta ólýðræðislega valdsamanþjappaða gerræðislega kommúnistabatterí sem ESB er. Afskrifa atkvæðisréttinn og tækifæri á að móta eigin framtíð og afhenda stórþjóðum evrópu og kúgurum okkar.
Jóhann (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 19:32
Algerlega sammála öllum að ofan.
ElleE (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 18:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.